Lesbók Morgunblaðsins - 10.11.1979, Blaðsíða 2
Konan f garðinum
úr mannheimi
Frá
sýningu
Einars
Hákonar-
sonar sem
nú stendur
yffir á
Kjarvals-
stöðum
Einar
Hákonar-
son við
aitt
verka
sinna á
Kjarvals-
stöðum
Einar Hákonarson er meðal
þeirra myndlistarmanna okkar,
sem hvað mest láta til sín taka
um þessar mundir, enda
maður á bezta aldri og fyllir
ekki þann flokk, sem sífellt
bíður eftir „inspírasjóninni“ án
þess að nokkuð gerist. Einar
hefur raunar haft fleiri járn í
eldinum; hann hefur verið að
byggja íbúðarhús og vinnu-
stofu og hann hefur um liðlega
eins árs skeið verið skólastjóri
Myndlista- og handíðaskóla
íslands. Þetta er lýsandi fyrir
aöstöðu margra íslenzkra lista
manna, sem vinna fullan vinnu-
dag og bæta síðan við öðrum
vinnudegi í nafni listarinnar.
Allt frá því Einar kom heim
frá námi, hafa myndir hans
verið mjög undir merki nútíma-
listar. Ahrifin virtust í upphafi
ættuð frá brezkri nútímalist, en
þaö hefur breytzt. Fólkiö í
myndum hans var lítið meira
en abstrakt form; Einar hafði
mjög ákveðna forskrift eða
formúlu, sem hann vék ekki frá
og skyldleikinn viö nútíma
©