Lesbók Morgunblaðsins - 17.11.1979, Side 5

Lesbók Morgunblaðsins - 17.11.1979, Side 5
í Skálholti „I heyönnum miðjum verður guð harla léttvægur og gagnslaus í lífsbaráttunni. Það voru því fáir, sem hlýddu messu þennan dag í Skál- holti. Presturinn talaði um farísea og tollheimtumenn og hélt með báðum. Svona hefur guðfræðinni líka fleygt fram á öld byltinga og tæknileikni“. Sigurður Þór Guðjónsson rithöfundur Ég haföi aldrei komið í Skálholt. Mór hefur veriö sagt aö þar hafi gerst mikil saga. En ég kann ekki þá sögu og veit ekki hvort hún er meiri en aörar sögur. Ég kom meö fólki sem iökar söng. Og söngur leysir menn frá sögum. Skálholt haföi einkennileg áhrif á mig. Dalurinn er hringlaga og þröngt til allra átta en opin sýn í suövestur þar sem Ingólfsfjall býr langt í burtu. Skálholt er því dálítiö eins og kuö- ungur í laginu en eins og allir vita er sagt aö ef maður beri kuöung í flæöarmafi aö eyra heyrist niöur hafsins. En hér vantar hafiö. Og það breytir öllu. Kyrröin á morgnana er öðruvísi en úti við sjóinn. Þaö er líkt og hún hafi engan andardrátt og heyri allt. Áin er sem stöðutjörn og svo föl álitum aö hvíslar geig. í henni stendur Vöröufell á höföi langt fram á dag, ekki fíngáraö léttu geislaspili eins og mynd er glitrar á haf, heldur stirt og þétt líkt og skuggi er fellur á gler. Hjá brúnni yfir fljótið dreymir hlýlegur trjálundur en í holtinu vakn- ar iækjaseyra og læöist í ána um melafláka og græna haga. i mér lifnuðu daufar vonir frá friösælum einverustundum í innlöndum Evrópu. En í austri þrumar Hekla upp úr fjarskanum eins og reiöur spámaður er hótar dómsdegi yfir spilltum lýö og hefur sér til sálufélags annan berg- risa, fáisa og kaldan í sjón og trúlega ýfinn í reynd. Sólin kemur upp í landi þessa jötuns hreykist hátt yfir Heklu eins og milli þeirra ríki gagnkvæmur ótti og virðing, lækkar flugiö alþýö- lega yfir Vöröufelli til aö spjalla viö þennan hógværa einbúa, sest loks í náöum eftir langan dag við rætur Ingólfsfells. Viö sólsetur lýsir kvosin furöulegri birtu. Þaö er sem hún komi upp úr jörðinni, frá hólum og grjóti, en ekki af himnum. Þó hafiö sé langt undan lætur þaö sig Skálholt nokkru varöa. Milli há- degis og nóns spillist logniö allt í einu og stinningsgola þyrlar dalinn. Þessi gustur er eftirlitsferö hafsins til sveitarinnar. Og það fer hratt yfir og lýkur könnun og erindi á miöjum aftni. Engum tíma er til ónýtis varið á svona sumardegi. Þessi sólarleikur hafsins viö landiö minnti mig ávallt á háværa krakkaþvögu er ólmaöist og þreyttist í ærslandi síöastaleik uns allir hættu aö leika, rjóöir um vanga sælir þegjandi þreytu. Um svipaö leyti hættu söngleikarn- ir í kirkjunni. Hér höföu menn reist hana 6 þeim eina staö þar sem hún heföi getað gert tilkall til lands. Hún kemur frá noröaustri og fer í suðvest- ur eins og allt umhverfiö. Eg var mikiö í kirkjunni og fylgdist meö fólki og söng. Þaö virtist áreynslulaus athöfn eins og flest verk vel unnin. En ég stóö líka oft á stéttinni fyrir kirkjudyrum, leit til átta og heyröi sönginn óma upp í himinblámann yfir höföi mér. Mér fannst leitt aö vera eini áheyrandi þvílíks söngs. En í heiöloftunum búa vindar er ferðast um alla jörö. Síöasti dagurinn minn í Skálholti var sunnudagur. Fólk klæddist spari- fötum og var fallegt. Veörið var þannig síösumarsblíöa er skáld þjóö- arinnar hafa reynt aö lýsa í tvær aldir. Um miöjan dag hringja klukkur Skál- holtskirkju til tíöa. En í heyönnum miöjum verður guö harla léttvægur og gagnslaus í lífsbaráttunni. Þaö voru því fáir sem hlýddu messu þennan dag í Skálholti. En sjaidan hefur hljómað þar stærri kór. Presturinn talaði um farísea og tollheimtumann og hélt með báöum. Svona hefur guöfræöinni líka fleygt fram á öld byltinga og tæknileikni. Þaö var barn skírt. Það vissi ekki sitt vit og grét sáran viö kalda og vota snertingu hins vígða manns. En kórinn kæföi þann veika og spyrjandi grát með sigursælum óöi til skapar- ans. Á eftir var boöiö til málsveröar viö altari og mátti hver af eta og drekka. Ef til vill leyndist heil eilífð af guölegri dulhyggju aö baki þessa einfalda matseðils er bauð brauö og vín. En ég var ekki svangur og langaði ekki í vín. Ég vildi vera allsgáöur. Aö messu lokinni tók fólk aö týnast burtu og hljóðnaði Skálholt af mannakliö. Ég gekk undir kirkjuvegg og hugöi mig einan fara. En við erum sjaldan ein. Mér birtist út úr logninu ung kona er gaf mér rós og koss — og var horfin. Hvaö átti ég aö halda viö atburö svo skjótan og allt í einu? Var hún huldumey úr kletti? Eöa loftdís er sté til jarðar? Kannski andi fortíöar að heilsa mér heilum eöa ósksýn augnabliksins til framtíöar? Rósin var rauð sem blóö og blekk- ingar mannshugans. Ég horfði á hana lengi. Hve margt eitt líf fær ekki aö lifa sumariö. Skálholt var oröiö autt. Vöröufell þagöi. Svona gömul fell, hafa ekki hátt. Hvítá var lygn að sjá en straum- urinn flýtti för aö ósum í úthafiö kalda. í haganum græna við lækinn voru nokkur hross á beit. Hekla var skýjum hulin eins og hiö ókomna. Til Reykjavíkur lá mín leiö til siðmenn- ingar og erils enn á ný. Þú siðmenn- ing, fölsk og köld, hve langt þú hefur villt okkur frá upphafinu. Þú sið- menning, föst og djörf; lausn til lífs, von um friö. Ég gekk grasbalann frá kirkjunni niður á malarveginn, einn maöur undrandi í hjarta meö rós í hendi. Var hún mér ef til vill gefin af mennskri veru, einni konu með heitar hendur og ást í hjarta? Gísli Magnússon RABB um „Rabb“ - þættir Lesbókar eru næsta misjafnir aö efni og gæöum enda margir, sem þar halda á penna. Jafnbezt er Rabbiö hjá nafna mínum, ritstjóranum. Ég er honum aö vísu eigi alltaf sammála. En hann er jafnan hress í máli, orðhvatur og ósmeykur viö aö stinga á kýlum. Annars eru „Krækiberin" hennar Önnu Maríu Þórisdóttur betri á bragöið en annaö RABB flest, sem Lesbók færir mani í hendur. Þau eru mörg, Krækiberin hennar, hreinasta sælgæti. í öllum sínum hversdagslega einfaldleika eru þau Ijúfur lestur, geöþekkur og nota- legur, og bera ósvikinni skáldgáfu órækt vitni, — hugljúfu, rómantisku raunsæi. Erlendur Jónsson skrifar „Rabb“ — þátt í Lesbók 29. sept. s.l. (33. tbl.). Þar segir hann m.a. „Áratuginn, sem brátt er á enda, hafa hér oröiö nánast engar framfarir". Þaö er álfur út úr hól, er svo mælir. Viö upphaf áratugar: Landhelgin 50 mílur. Undir lok sama áratugar: Landhelgin 200 mílur. íslenzk þjóö hefur á tæpum áratug (rösklega eitt ár eftir) unniö sinn stærsta sigur frá upphafi vega, þegar alls er gætt, — unnið sigur í sínu „lífsstríöi", eins og fv. forsætisráöherra komst aö oröi í útvarpsræðu. Eru þetta engar framfarir, álfur minn? í upphafi áratugar: Vonleysi, eymd og flótti úr kauptúnum og sjávarþorp- um hringinn í kringum land, húsin stóöu eftir auö og yfirgefin. Undir lok sama áratugar: Allar hendur hafa æriö aö starfa — og skortur auk heldur á vinnuafli. Menn keppast hvarvetna viö aö reisa íbúöarhús og önnur, þar sem áöur var flótti brost- inn í liöiö, og alls fjarri því, aö unnt sé aö anna eftirspurn. Fleiri dæmi eru tiltæk. En þetta eru ekki „framfarir“ aö dómi Erlends. Undarlegt hvað áttundi áratugurinn bögglast fyrir brjósti honum. Hvaö skyidi valda? En álfurinn áttar sig nokkuð er vanizt hefur dagsbirtunni eftir allt myrkriö í hólnum. „Rabbi“ sínu lýkur hann meö þessum oröum: framhald á bls. 12 ©

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.