Lesbók Morgunblaðsins - 15.03.1980, Blaðsíða 2
t 1801
TEÍKMAPUR.
TMNA WÆí>AÚwu\<.okt
Tv/ •jAM.'SO
lAMPAKota
14 aÍv-x ar S tv.
Afca\ stv-92±
LotUvA.rínrv'^ --'s-^
L^/ 3k6la\/6k^
PónrvVarV'
(tirvntJr Vvje
iTJÓMf
\*Re VKÍAV/ÍK 1801
EnduHB. BÆÍA^ÍMS
'k evoÍMu í \7i«&v
T\J ÍAW.'So
Hötgisi
VCSTARÍ
&X1AH
r'J^T*~^a.nqafn.ú.'sitS'
.T4afrv«rstr»«lL
Aia\strs«ti
■stlcviri
Verður
reist á
gamla Reykjavík endur
eiðinu í Viðey?
Hugmynd
Trausta Valssonar
arkitekts
um að reisa Reykja"'1'
ársins 1801 sem sumarhúsabyggð vegna 2
ára afmælis borgarinnar 1986
Reykjavík miöar afmæli sitt viö fengin
kaupstaðarréttindi 18. ágúst 1786. Eftir 6
ár eöa 1986 á borgin stórafmæli, er hún
veröur 200 ára.
Fyrri afmæla borgarinnar hefur veriö
minnzt á glæsilegan hátt, t.d. 150 ára
1936 og 175 ára 1967 meö umfangsmikl-
um sýningum, útiskemmtunum, og fleiru.
Fljótlega hlýtur aö koma aö því aö
borgaryfirvöld ákvaröi hvernig minnzt
veröur 200 ára afmælisins því slíkt
þarfnast jafnan nokkurrar umræöu og
aödraganda. Skemmtilegt væri ef hér
gæti orðið um eitthvert varanlegt framlag
að ræöa sem opnaöi framtíöinni mögu-
leika á gleggri skiiningi á sögulegum
efnum borgarinnar.
í eftirfarandi grein er sett fram hug-
mynd um slíkt átak en hún er í stuttu máli
sú, aö endurreisa Reykjavík ársins 1801 á
eiöinu í Viöey. Líkindi eru til að þetta yröi
framkvæmanlegt með aö úthluta „gömlu
lóðunum“ upp á nýtt og gefa fólki færi á
aö reisa sér þar sumarhús eftir útlits-
teikningum gömlu húsanna. Gæti þaö
orðiö næsta forvitnilegt fyrir borgarbúa
og gesti borgarinnar aö sjá þetta gamla
þorp í nánast upprunalegu umhverfi.
Ómetanlegir möguleikar á kvikmyndun
á sögulegu efni yröu í þessu þorpi eins og
viklö veröur aö nánar.
Byggingaminjar
Flestar borgir reyna aö varöveita aö
einhverju leyti andrúmsloft sögu sinnar
meö varöveizlu byggingalegra minja.
Þetta nær þó tæpast tilgangi sínum nema
þar sem hægt er aö varðveita sæmilega
heilleg svæöi. Slík gömul svæöi eöa
bæjarhlutar í borgum erlendis hafa notiö
mikillar hyili. Má í þessu sambandi minna
á Gamla stan í Stokkhólmi þar sem bílar
hafa ekki aögang og verzlanir eru hafðar
í upprunalegum stíl til aö draga fram hið
gamla og skemmtilega andrúmsloft.
í Reykjavík eru engin slík heilleg svæöi
til eldri en laust fyrir síöustu aldamót
(Þingholtsstræti, Vesturgata, Grjóta-
þorp).
Reykjavík fyrstu 100 áranna, þ.e. frá
1750 til 1850, sér nánast ekki staö nema
í gatnaskipan. Einu húsin sem standa í
dag og teljast mega til þessa tímabils eru
Aðalstræti 10, hús Bernhöfts bakara,
Stjórnarráöshúsiö (án kvistsins) og
dómkirkjan sem reyndar hefur veriö
hækkuö um eina hæð og breytt mikið aö
ööru leyti.
Þessarar vöntunar á byggingalegum
minjum verður tilfinnanlega vart þegar
draga þarf fyrri tímabil fram t.d. viö gerö
kvikmynda. Verður þá aö grípa til þess
ráös að reisa framhliöar gatna eöa ytri
skel húsa, sem er aðeins á færi mjög
fjársterkra aðila. í einu meiriháttar
Reykjavíkurmyndinni til þessa: Brekku-
kotsannál, varö aö reisa Brekkukotiö og
„Hafnarstræti" fyrir um 50 milljónir til aö
nota sem bakgrunn í kvikmyndinni en
síöan var hvorutveggja rifiö.
Ef Árbæjarsafni heföi veriö valinn betri
staöur og umhverfið veriö gert líkt því
sem var í sjávarþorpinu Reykjavík heföi
þaö getað nýtzt aö nokkru til kvikmynd-
unar.
Safniö hefur aö vísu nokkuö veriö
notaö til myndunar innanhúss en jafnvel
þaö er verulegum annmörkum háö þar
sem hvarvetna sjást blokkir og raf-
magnslínur út um gluggana.
Þáttur Viöeyjar
Þegar Minjasafn Reykjavíkur var stofn-
aö 1954 var Viðey til umræöu sem staður
fyrir safniö, m.a. vegna þess aö þar eru
tvær sögufrægar byggingar; kirkjan og
Viðeyjarstofa. Þar er nálægö viö sjó og
mikil náttúrufegurö. Því miður varð ein-
hverra hluta vegna ekki af þessari
ráöagerö, heldur var safninu valinn staö-
ur uppi á túni hjá sveitabýlinu Árbæ.
Síöan fyrrgreindar hugmyndir voru uppi,
hafa borgaryfirvöld ekki haft neina stefnu
er varöar stööu Viðeyjar og enn er allt
óljóst um þau mál.
Einhverju sinni þegar undirritaöur var
aö velta fyrir sér framtíö Viðeyjar yfir
korti, kom hann auga á aö landsháttum
viö eiðið í Viðey virtist svipa til uppruna-
legra staöhátta á eiðinu í Reykjavík, sem
nú er oftast kallað kvosin.
Viö athugun á tveimur kortum í sama
mælikvaröa (endurteiknun þeirra fylgir)
kom í Ijós aö það er meö ólíkindum,
hversu allir staöhættir eru áþekkir; eiöin
eru álíka löng og breiö, vatnsflötur liggur
aö noröri og suðri, fyrir vestan eru hæöir
báöar um 20 m og fyrir austan eru hæöir
báöar um 30 m yfir sjó. Útsýni til
Esjunnar er áþekkt en nokkur ókostur er
aö eiöiö í Viöey snýr austlægar viö noröur
en eiöiö í Reykjavík.
Af þessu skaut sú hugmynd upp
kollinum aö hér væri einstæður möguleiki
til aö ná fram andblæ gömlu Reykjavíkur,
en eins og bent var á hér aö framan, eru
það ekki nema aö takmörkuðu leyti húsin
sjálf, sem miölað geta andblæ liöins tíma.
í þessu sambandi eru allir þættir
umhverfisins mikilvægir; garöar, grind-
verk, hjallar og kofar viö húsin, kyrrlát
fjaran meö bátum og ööru sem tengist
sjósókninni og ekki síður önnur lands-
lagseinkenni; — göngustígar, lækur,
strönd og holt með sínu fjölbreytilega
fuglalífi og gróðurfari.
Einhver kann aö segja aö það sé meira
en aö segja þaö að reisa þorp meö um 50
húsum, sem eiga aö vera í gömlum stíl
a.m.k. aö ytra útliti. Kemur þá upp sú
hugmynd hvort ekki mætti reisa þessi
hús sem sumarbústaði, en Viðey hefur
marga kosti sem sumardvalarstaður fyrir
Reykvíkinga. Stærö húsanna, — 40—60
fermetrar — er hentug fyrir sumarhús og
vegna aukins áhuga á gömlum húsum er
ekki ólíklegt að nógu margir aöilar
findust.
Auövelt er að ganga úr skugga um
þetta atriði með einfaldari athugun, en
meö þessari tilhögun gæti þorpiö risið
meö litlum tilkostnaöi fyrir borgina. Hér
væri því fyrst og fremst um aö ræða aö
taka frumkvæðið og stjórna aögeröum.
Aö sjálfsögöu yröi þetta aö gerast í
góöri samvinnu viö eiganda landnæöisins
en e.t.v. koma makaskipti á landi borgar-
innar til greina, — en hún á land vestast
og austast á eyjunni, — ef fjármunir til
kaupa á svæöinu eru ekki fyrir hendi.
Ccö tsl OLUV.'aW.W
TrÁ GtiAT:w.WEf>Í TÍL
AU STU ILEVlþ A MÍBTVÍ AJ?,
TV/ ÍAM-'tO--