Lesbók Morgunblaðsins - 15.03.1980, Page 10
KARL
BRETA-
PRINS
Karl er önnur manngerö
en faöir hans
Nánustu vinir prinsins eru innan fjöl-
skyldunnar baeöi vegna stööu hans og
eölisfars. Móöir hans er meginstoð hans í
lífinu. Bæöi hafa þau erft hina miklu
vanmetakennd Georgs VI. og bæöi reynt
af fremsta megni aö sigrast á henni.
Hvorugt fá notiö sín í umheiminum, í
kurteislegum samræðum og undir eilífu
fargi óaöfinnanlegrar og hátíölegrar
framkomu. Þau eru bundin öörum bönd-
um en nokkrir aðrir meölimir fjölskyld-
unnar. Þau eiga sérstæð örlög sameigin-
leg.
Karl prins byrjaði ævina á því aö dýrka
fööur sinn sem hetju. Alla sína bernsku
viröist hann hafa variö mestum tíma
sínum í aö reyna að leika eftir afrek hins
unga og athafnasama fööur síns. En þaö
er honum enginn leikur aö feta í fótspor
hans. Karl prins er allt önnur manngerð.
Hann er gætinn, blíðlyndur og góöhjart-
aður, en faöir hans er oft hvatvís,
beroröur og stundum haröur í horn aö
taka.
En þeim kemur ágætlega saman,
þegar þeir stunda útilíf í leyfum í
Sandringham og Balmoral. Filippusi líkar
þaö, aö sonur sinn skuli hafa tekiö sér í
hönd pólókylfuna, sem hann sjálfur varö
að leggja frá sér á miðjum aldri, en þykir
leitt, hann skuli ekki hafa fengið áhuga á
siglingum. Honum tókst aö vekja áhuga
Karls á vatnslitamálun til afþreyingar, en
á aö öðru leyti ekki samleiö meö syni
sínum sem listunnanda. Hann heföi
kosiö, aö Karl heföi sýnt tækni og
vísindum meiri áhuga, en er ánægöur yfir
því, aö hann skuli í vaxandi mæli vera
fylgjandi sér í hinni höröu, alkunnu
konunglegu gagnrýni sinni á brezkan
iönaö sem og í baráttu sinni fyrir
umhverfisvernd.
í bernsku var sennilega nánara sam-
band mill Karls prins og fööur hans
heldur en móður, en eftir aö hann varö
fullorðinn, hefur þaö snúizt viö. En
óbreytt hefur aftur á móti haldizt hiö
ástúðlega samband hans við ömmu sína,
drottningarmóöurina, sem ef til vill á
mestan trúnaö hans. Sagt er, aö Elísabet
HvaA garir tiginn piparsveinn, þegar
gullfalleg, ókunn stúlka svílur á hann í
margmenni á baðströnd og vefur hann
örmum? Áreiðanlega er úr vöndu að
ráða, en hór er Karl að „skoöa mólið“
eins og íslenzkir pólitíkusar mundu
segja.
finni meira af manni sínum, Georgi
heitnum sjötta, í Karli prinsi en í nokkru
ööru barnabarni sínu.
Þegar Georg konungur dó 5. febrúar
1952, spuröi Karl, sem þá var 3ja ára,
barnfóstruna, af hverju þjónustustúlkurn-
ar væru aö gráta. Af því aö afi hans væri
farinn, var honum sagt, en hann varö þá
hissa á því, aö afi skyldi ekki hafa kvatt
hann. Hann vildi þá fá aö hitta ömmu, en
var sagt, aö hann yrði aö bíða. Þegar
Elísabet ekkjudrottning kom svo loksins í
barnaherbergiö, tók hún Karl á hné sér
og hlustaði á mas hans um stund. En
þegar Karl spuröi, hvert afi heföi farið,
brast hún í grát. En Karl sagöi blíðlega:
„Ekki gráta amma mín.“
Amman varö honum
mikil stoð
Drottningarmóðirin varö stoö hans og
stytta í æsku, næstum því eins konar
„skriftarmóöir", þegar kröfurnar sem
foreldrarnir gerðu til hans, virtust vera
honum um of. í Balmoral kenndi hún
honum aö veiöa fisk á flugu, en þaö er
sérgrein hennar innan fjölskyldunnar.
Meðan foreldrar hans voru langdvölum í
burtu, innrætti hún honum þá blíöu og
umhyggju, sem hún nú telur vera hans
beztu eiginleika. Hún og frændi hans,
Mountbatten heitinn lávaröur, eru sögö
hafa átt trúnaö hans í málum, sem hann
trúöi ekki alltaf foreldrum sínum fyrir,
nefnilega ástamálum.
Alla sína ævi hefur hann borið lotningu
fyrir „Dickie frænda", hinum aldna stjórn-
vitringi konunglegu fjölskyldunnar. Dóttir
Mountbattens og tengdasonur hans,
Brabourne, lávarður, sem særöust viö
sprenginguna, sem varö lávarðinum aö
bana, hafa lengi veriö nánir vinir drottn-
ingar og Filippusar, prins, og eru nú
jafnnánir vinir Karls. Hann er oft í leyfum
heima hjá þeim á Eleuthera eyju í
Karíbahafi, þar sem hinar tígulegu dætur
þeirra, Knatchbull stúlkurnar, eru gest-
gjafar. Sonur þelrra, Norton Knatschbull
var í Gordonstoun meö prinsinum og
umgengst hann mikiö. Hann starfar í
kvikmyndaiönaöinum eins og faðir hans
og hefur stundum meira aö segja fengiö
hann til aö klæðast auglýsingaskyrtum aö
kvikmyndum, sem hann hefur unniö aö,
eíns og t.d. „A Bridge too Far“, en þaö
var innan konungsfjölskyldunnar taliö
hafa gengið of langt, too far, þegar
prinsinn mætti í skyrtunni til Windsor
pólókeppni.
Hélt áffram aö vera
Margréti hliðhollur
Hvaö varöar aöra meölimi konungs-
fjölskyldunnar, þá hefur Karl ávallt reynt
aö bera blak af frænku sinni og guömóö-
ur, Margréti, prinsessu, á hinu langa
skeiöi óvinsælda hennar meöal þjóöar-
innar og á stundum innan fjölskyldunnar.
Á sama tíma og hann varö fullgildur í
hinni opinberu stöðu sinni, á 25 ára
krýningarafmæli drottningar, olli Margrét
systur sinni mestum leiöindum og
áhyggjum. Hún var þá skilin viö eigin-
mann sinn, Snowdon, lávarð, og varö
hinn lystilegasti blaðamatur hinnar
óprúttnu pressu. Hún var þá í tygjum viö
sér 15 árum yngri mann, Roddy Llewell-
yn, og þau höfðust aðallega viö á
Mustique eyju í Karíbahafi. Þar sem
athygli almennings beindist mjög að Karli
um þessar mundir, varö þaö til að draga
nokkuð úr hinum óþokkalegu fyrirsögn-
um. En Karl hélt áfram aö vera henni
hliöhollur innan fjölskyldunnar. Og þegar
hjónaband Margrétar endaöi svo loks
meö fullum skilnaöi, geröi hann sér far
um aö halda vináttu viö Snowdon, lávarð,
sem kvæntist aftur. Hin óhefðbundna
nærvera manns eins og Snowdons innan
konungsfjölskyldunnar og hin frjálslega
framkoma hans var Karli mikils virði á
árunum um tvítugt.
Allt frá æskuárunum hefur samkomu-
lagiö milli Karls og Önnu, systur hans,
veriö fremur stirt og erfitt. Anna var alger
Framhald á bls. 14.
Jón Gunnar Jónsson
VISNAÞATTU
Þá sagði
Þórbergur...
Vísnaþættir í blööum eru aftur eftir
nokkurt hlé að komast í tísku. í þeim
hlýtur alltaf aö vera töluverð skemmtun,
ef vel er aö þeim staðiö. Þeir mega ekki
veröa allsherjar ruslakista fyrir leir-
hnoöara, heldur miklu fremur leiðbein-
ing og kennsla fyrir þá, sem yrkja vilja
eöa eru njótendur velkveöinna vísna.
Þess vegna verður vel aö vanda til
slíkra þátta. Auk skemmtanagildis flytja
vísur frá liönum tímum fróöleik um
menn og málefni og um þjóðlífiö á
vistardögum höfundanna. Til þess aö
þetta geti orðið veröur lesandi helst aö
vita nokkur deili á höfundunum, hvenær
þeir voru uppi og hvar þeir áttu heima,
helst líka vita um stétt þeirra og stöðu.
Á sama hátt veröa svo nýjar vísur
heimild um okkar tíma.
Vísnasafnarar eru fleiri á landinu, en
ætla mætti aö óreyndu, en hver þeirra
stendur aö málum meö sínum hætti. —
Ég vil gjarna komast í samband viö
vísnavini víösvegar aö af landinu og
víösvegar á landinu.
Ég hef safnað vísum — meö nokkr-
um hléum — í a.m.k. 40 ár, hripaö þær
á miöa mér til minnis, ætlað aö gera
þeim betri skil síðar. En þaö er fyrst nú,
þegar ég fer alvarlega aö reskjast, sem
ég gæti gefiö mér tíma til aö sinna
þessu verkefni svo aö verulegt gagn
yröi aö. Nánar um þetta síöar.
Borðaminni. Kristján H. Breiödal,
kunnur hagyröingur á suðvesturlandi
minntist reiðhests, sem hann átti á
sínum yngri árum. Vísurnar birtust á
prenti 1952, en voru ortar 12 árum
áöur. Hesturinn mun hinsvegar hafa
veriö upp á sitt besta á fyrstu árum
þessarar aldar. Lengi hefur því minning
hans lifaö.
Hófadyn ei heyra má,
hraustar sinar bugar ellí.
Nú er vinur fallinn frá,
fagur hlynur laut að velli.
Fyrri hnaut ei fákur sá,
fjörið laut » boði mínu.
Gneistum skaut svo birtu frá,
er Borði þaut á tölti sínu.
Aö fangi reistur, frjáls í lund,
fjöriö hreysti gaf til kynna,
er óg þeysti yfir grund,
afli treysti fóta þinna.
Þó tíðum vinni tíminn spil,
tapast minni ei þín saga.
Jafnan finnur andinn yl
í endurminning fornra daga.
Um annan reiöhest sinn er Faxi hét
orti sami höfundur nokkrar vísur, þá
oröinn gamall og hættur búskap. Hér
eru tvær þeirra.
Er óg að kneifa öl af krús,
eftir þreifa minningunni:
Fákur, skeifa, hey og hús,
hinstu leifar þess óg unni.
Nú skal hefja nýjan leik,
nýtt þarf Ijós að skína.
Prestkonan, móöir Jónasar Margrét
Jónasdóttir, bætti viö:
En verst er ef þig vantar kveik
á vonartýru þína.
Einhverntíma á árunum fyrir 1930 var
ráðsmaöur á Hólum í Hjaltadal, er
Flóvent hét. Hann haföi nokkrar áhyggj-
ur af vinnukonum staðarins þar sem
annarsvegar voru margir skólasveinar á
góöum aldri og gjörfilegir. Engar sögur
fara af því hvaö hann hefur sagt viö
stúlkurnar. En viö strákana sagöi hann,
að þeim væri haröbannaö aö gantast
viö þær. Ef upp kæmist væri þaö
brottrekstrarsök. — En holdiö er veikt.
Piltarnir þurftu að aðstoða mjalta-
konurnar í fjósi, þar var oft fallhætt.
Einhverju sinni datt stúlka og piltur
greip hana áður en slys varö. Hagyrð-
ingur kvaö í orðastaö þess heppna.
Ákaflega ann óg þór,
enga betri þekki.
En fleygðu þór ekki í fang á mór,
hann Flóvent vill það ekki.
Einn af sonum Jóns í Víölmýri í
Skagafirði hét Sigurjón. Hann hafði
áhuga á stúlku, sem líklega hefur heitiö
Karólína, en fólki hennar leist ekki á
þann ráðahag. Ekki veit ég hvernig fór.
En frá þessum tíma er vísa eftir Símon
Dalaskáld. Hún er svona:
Lína rýjan grett og grá,
gröm af nýju ástartjóni,
hennar því aö frændi frá
fór að 8tía Sigurjóni.
Hér er og önnur vísa eignuö Símoni
Dalaskáldi. Hún er um Guðmund fööur
Stephans G. Vísan mun vera úr bæja-
rímu úr Skagafirði, sem ort var áöur en
Guðmundur og fólk hans fluttist til
Ameríku.
Guðmund skýran meta má,
mínir dýru bræður.
Víöimýrarseli sá
sveröatýrinn ræður.
En nú skulum viö víkja til vorra tíma.
Á sínum yngri árum í Reykjavík orti
Guömundur G. Hagalín:
Meö þór fallið, Faxi, er
fyrsta kallið : bónda starfiö.
Degi hallar, dimma fer,
Drúpir kall við minjahvarfið.
Þetta er góö heimild um gamlan
bóndamann.
Jónas Guölaugsson skáld var sonur
séra Guölaugs Guömundssonar, sem
lengi var prestur á staö í Steingríms-
firöi, áöur viö Breiöafjörö. Einhverju
sinni á jólum bað Jónas um nýjan kveik
í lampa.
Séra Guölaugur byrjaöi vísu:
Keisarinn í Asíuá
átti dóttur hreina.
Hún var græn og hún var blá
og haföi nýrnasteina.
Tómas Guðmundsson kom í Unuhús.
Þar var Þorbergur og spuröist bók^
menntalegra frétta. Þá var þessi vísa
nýort og fékk hann að heyra hana.
Tómasi sagöist svo frá síöar: Þorbergi
varö aö oröi: Guð almáttugur hjálpi
mér. Þessa vísu vildi ég aö ég heföi ort.
J.G.J. — s.41046