Lesbók Morgunblaðsins - 09.04.1983, Síða 11
hafi reyndar þegar verið sagt
orðrétt, þótt ekki eigi það við
Colorado Springs, heldur hafi
ritstjóri blaðs í Kitchener sagt
þetta fyrir skömmu, er hann
hafi verið að ræða um aðra
byggingu, „The Centre in the
Square" í Kitchener, sem nú sé
tveggja ára gömul — spegil-
mynd „Pikes Peak Center“.
Hér sé um sams konar bygg-
ingar að ræða frá sjónarmiði
hönnunar, og báðar hafi þær
verið reistar fyrir opinbert fé
eftir langvinnar deilur og um-
ræður. En svo sé eftir að vita,
hvort eins vel takist til um
reksturinn og starfsemina í Col-
orado Springs eins og gerzt hafi
í Kitchener. í lok greinarinnar
segir í blaðinu:
Ritstjórinn í Kitchener telur,
að lykillinn að velgengni hallar-
innar sé stjórn hennar. Hann
þakkar Butler framkvæmda-
stjóra hinar frábæru viðtökur
og vinsældir, sem „The Centre
in the Square" hafi hlotið. „Inn-
an árs,“ spáir hann, „mun eng-
inn vera á móti höllinni, ef hún
hefur verið skynsamlega rekin.
Það er lóðið: Það verður að reka
hana rétt. En ef sæmilega vel
tekst að reka hana, þá mun
heldur ekki vera hægt að finna
neinn, sem hafi nokkurn tíma
verið á móti henni. Þá munu all-
ir segja: „Ég var með þessu alla
tíð. Mér fannst þetta góð hug-
mynd frá upphafi." Nei, það
verður ekki nokkur lifandi sála,
sem hefði greitt atkvæði gegn
henni."
Russell Johnson er
sannfærður
í annarri grein í blaðinu Col-
orado Springs Sun, sem helgaði
höllinni sunnudagsútgáfuna að
mestu, er vitnað í ýmis ummæli
Russell Johnsons.
„Töfrar, fegurð, ljómi og
blórni," segir Johnson, þegar
hann er spurður um einkenni
hljómburðar í fyrirmyndar tón-
Iistarhöll. „Þeir, sem sækja
hljómleika, vilja þetta allt.“ Og
þessi hljómburðarsérfræðingur
við byggingu „Pikes Peak Cent-
er“ er ekki aðeins að reyna að
vera mælskur. Hann hefur
ákveðnar hugmyndir um það,
hvernig þessum gæðum verði
náð.
En verkefni hans sem ráð-
gjafa í þessum efnum er flókn-
ara en venja er vegna þess, að í
hinum alhliða tónlistarhöllum,
sem hann hannar, verður að
vera hægt að flytja efni, sem
gerir hinar ólíkustu kröfur til
hljómburðar. Áheyrendasalur,
sem hentar sinfóníuhljómsveit
vel, getur verið afleitur fyrir
mannsröddina. Þess vegna eru
margir hönnuðir mjög andvígir
hinum svokölluðu alhliða bygg-
ingum. Russell Johnson er áber-
andi undantekning.
„Þeir hafa alveg á röngu að
standa allir saman,“ segir John-
son af eldheitri sannfæringu.
Með tilvísun til þess, hve vin-
sældir hallarinnar í Kitchener
hafa orðið miklar, en þá höll
hannaði hann fyrir tveim árum,
segir hann slíka alhliða áheyr-
endasali fremur vera heillandi
verkefni en eitthvað, sem beri að
gjalda varhug við. Lausn hans
er að sameina ákjósanlegustu
eiginleika tónlistarhalla og
leikhúsa í einni byggingu, en
láta vera hægt að hagræða hlut-
um inni í henni til að fá þann
hljóðburð, sem henti hverju
sinni.
Hljóðhiminn og tjöld
The Pikes Peak Center er
hugmynd hans í framkvæmd.
Að mörgu leyti hefur höllin
hefðbundin einkenni tónlistar-
halla. Þar er hátt undir loft og
byggingin er rétthyrnd að veru-
legu leyti. Þegar sinfóníutón-
leikar eru haldnir, situr hljóm-
sveitin fremst á sviðinu, og
þannig fæst nánara samband
milli flytjenda tónlistarinnar og
áheyrenda. Sérstaklega hefur
verið til þess vandað að ein-
angra áheyrendasalinn gegn há-
vaða að utan sem og frá hitun-
ar-, loftræstingar- og loftkæl-
ingarkerfum byggingarinnar.
En ef til vill er það mikilvæg-
ast, að yfirborð allt innanhúss
hefur verið þannig úr garði gert,
að dumbun (absorption of
sound) sé sem minnst, en endur-
kast tónanna sem mest. Þykk og
þétt múrhúðun og steinsteypa
voru sérstakrar gerðar, og á
gólfum eru engin teppi, sem eru
mjög skaðleg góðum hljómburði.
Viðargólfum, sem sumir þekktir
hljómburðarsérfræðingar telja
beztu miðlana fyrir djúpa tóna,
var einnig algerlega hafnað. Að-
stoðarmaður Russell Johnsons,
Robert Wolff, orðaði það þann-
ig, að „ef menn finna hljóminn
með fótunum, nái hann ekki eyr-
unum“.
Reyndar eru það áheyrend-
urnir og klæðnaður þeirra, sem
veldur mestri dumbun. Ýmsir
hljómburðarfræðingar hafa
viðrað þá hugmynd, að sett verði
skilyrði varðandi klæðnað í
tónlistarhúsum, en undirtektir
hafa verið dræmar, og flestum
hefur lærzt að líta á áheyrendur
sem óhjákvæmilegan ókost frá
sjónarmiði hljómburðarhönnun-
ar.
Svo langt sem þetta nær,
myndi höllin vera hin ágætasta
fyrir hljómleika, en lakari sem
leikhús. Johnson og Wolff hafa
því bætt við ýmsum veigamikl-
um þáttum í hönnunina, svo að
höllina megi nota jöfnum hönd-
um til annarra hluta.
Geysistórt hljómburðarhvolf,
sem svífur yfir sviðinu, er mest
áberandi. Þegar hljómleikar eru
haldnir, er það haft fast uppi við
loftið, og þannig eykur þessi
hljóðhiminn (canopy) breidd
hljómsins. En þegar leikarar
eða söngvarar koma fram, er
hvolfið lækkað til að ná beinni
hljómburði. Það væri út af fyrir
sig hægt að breyta hæð þess í
hléi.
Þá eru einnig tjöld í loftinu,
sem hægt er að láta renna niður,
eins og til dæmis þegar hátal-
arakerfið er í notkun i höllinni
og þá til þess að deyfa hljóðið að
nokkru leyti. Þannig getur tal
orðið greinilegra.
Hinir hreyfanlegu sviðsstöpl-
ar eru merkasta nýjungin, bæði
frá sjónarmiði hljómburðar og
hönnunar hússins. En um þá er
fjallað í greininni um „The
Centre in the Square" í Kitchen-
er.
— Samantekt Sv.Ásg. —
Er ástæða
til að gera
verr við
Yfirleitt ríkir á því fullur skilningur, að
lista- og menningarstarfsemi fái ekki þrifizt,
nema kostað sé uppá aðstöðuna til samræmis
við þann árangur, sem æskilegt þykir að ná.
Sumt af þessu verður að fá samastað undir
opinberum hatti; stofnanir, sem reistar eru og
reknar í nafni þjóðarinnar. Við byggjum sam-
eiginlega þjóðarbókhlöðu nú sem stendur og
þegar á kreppuárunum ríkti svo góður skiln-
ingur á þörfum leiklistarinnar, að þá var ráð-
izt íað byggja þjóðleikhús. Með borgarleik-
húsinu nýja verður enn betur séð fyrir þörfum
leiklistarinnar og myndlistarmenn þurfa
varia að kvarta með Kjarvalsstaði, Norræna
húsið og marga smærri sali til reiðu. Það er
aðeins tónlistin, sem orðið hefur útundan:
Hún á ekkert sæmandi hús á því herrans ári
1983 og fyrirsjáanlega verður bið á því. Annað
gengur fyrir, hvort sem þörf er á því eður ei:
Ónauðsynlegt tildurhús yfir Seðlabanka ís-
lands til dæmis og ónauðsynlegt steinsteypu-
virki yfir ónauðsynlega stofnun,
Framkvæmdastofnun ríkisins.
Augljóslega er þó ástæðan ekki sú, að tón-
listin sé vanþróuð okkar á meðal; öðru nær.
Við eigum herskara af vel menntuðu tónlistar-
fólki og konsertar í einhverju formi eru svo
tíðir, að þeir mega kallast daglegt brauð. Yfir
vetrarmánuðina, ograunar lengur, er Sinfóní-
an með tónleika í annarri hverri viku og
stundum aukatónleika þess á milli. íslenzka
óperan er orðin fastur Hður í tónlistarlífinu
með uppfærslur um helgar og íslenzka
hljómsveitin er orðin annar fastur liður. Að
minnsta kosti fjórir fjölmennir kórar æfa að
staðaldri: Karlakór Reykjavíkur, Fóstbræður,
Pólýfónkórinn og Söngsveitin Fílharmonía.
Kammermúsíkklúbburinn er gamalgróinn og
fastur í sessi og Jazzvakning hefur stóran hóp
á sínum snærum. Þannig mætti víst lengi
telja og síðan má sjá og heyra, að auglýstir
eru margskonar tónleikar, svo sem Myrkir
músíkdagar, þar sem flutt eru verk ungra
tónskálda og urmull af konsertum, þar sem
ýmist er sungið eða leikið á hljóðfæri, nema
hvorttveggja sé.
Þessi gróska er svo mikil, að hún er óskilj-
anleg samkvæmt mannfjöldareglunni — og
óskiljanlegt er hitt einnig, að öll þessi
tónlistargróska fær inni hjá öðrum uppá náð
og miskunn, þegar frá er tekin íslenzka óper-
an. En Gamla Bíó er ekkert annað en bráða-
birgðalausn; annmarkarnir liggja í smæð svið-
sins.
Af þessu má ráða, að frammámenn í tón-
listinni hafi ekki haft nægilegan metnað og
dugnað til að vekja upp þann eldmóð, sem
lætur hjólin snúast. Það kemur fyrir lítið að
hver nöldri í sínu horni; sameiginlegt afl tón-
listarmanna og tónlistarunnenda ætti hins-
vegar að geta unnið stórvirki. Kjarvalsstaðir
væru ef til vill ekki til, ef aldrei hefði komið
þrýstingur frá myndlistarmönnum og Leikfé-
lag Reykjavíkur á sinn stóra þátt í því með
þrýstingi á borgaryfirvöld, að nýtt og glæsi-
legt leikhús er í þann veginn að komast uppúr
jörðinni í Kringlumýri.
Nú kann einhver að segja sem svo, að þetta
sé hvorki rétt né satt: Allir meiri háttar tón-
leikar fari fram í Háskólabíói, þar sem bæði
er sæmilega hátt til lofts og vítt til veggja.
Rétt er það að vísu. En Háskólabíó er teiknað
sem kvikmyndahús og þykir hafa afleitan
hljómburð, sem er nú einu sinni það sem allt
snýst um. Sleppum því, hvað Háskólabíó er
óhrjálegt hús og ljótt, — vel mætti við það
una, ef það hefði góða eiginleika til hljóm-
flutnings. Þetta hús er æfingastaður og kons-
ertsalur Sinfóníunnar vegna þess að ekki er í
önnur hús að venda. Þess er skemmst að
minnast, að hljómsveitin flutti í konsertformi
óperuna Tosca ásamt einsöngvurum ogkór.
Þetta var stórkostlegur flutningur með söng-
og músíkkröftum, sem viðgetum verið stolt af
og hlýtur að leiða hugann að því, hvað hægt
væri að gera á alvörusviði í góðu hljómleika-
húsi. Það segir líka sína sögu um áhugann, að
fjórum sinnum var verkið flutt fyrir fullu
húsi. í þessu sambandi er einnig ástæða til að
minnast á Listahátíð, sem vegna húsleysis
hefur orðið að fara með stórstjörnur eins og
Rostropovitsj og Pavarotti í Laugardalshöll-
ina. Þar er ágætt að leika handbolta og halda
vörusýningar, en sem konserthús er Laugar-
dalshöllin óboðleg, jafnt fyrir flytjendur sem
áheyrendur.
Venjulega er það drýgst til árangurs, þegar
kvenfélögin beita sér fyrir einhverju. Og nú
ættu íslenzkir tónlistarunnendur að mælast
til þess við kvenfélögin, að þau beiti sér fyrir
því að byggt verði svo sem eins og eitt hús yfir
tónlistina. Hún er útigangshrossið í menning-
unni; við skulum taka hana í hús oggera við
hana vel. Allt þetta frábæra hæfileikafólk á
það skilið. Og áhugasamir áheyrendur raunar
einnig.
Orð eru nú einu sinni til alls fyrst — og til
þess að einhver blábyrjun geti átt sér stað,
birtir Lesbók að þessu sinni greinar um nýj-
ustu lausnina á þessu sviði úti íhinum stóra
heimi: Alhliða áheyrendasali, þar sem
hljómburði er breytt með tæknilegum tilfær-
ingum og sama húsið hentar fyrir 200 manns í
sæti í kring um einn mann, sem leikur á gítar
— og upp í 2.000 manns í sæti, þar sem hlýtt
er á stærstu óperur tónbókmenntanna ellegar
rokkhljómleika.
Slíkt hús yrði æfingastaður og konsertsalur
Sinfóníunnar ogíslenzka óperan mundi fá þar
inni fyrir sína starfsemi. Kórarnir einnig og ef
að líkum lætur yrði húsið ásett hvern einasta
dag og hvert kvöld, nema kannski yfir sumar-
ið.
Gísli Sigurdsson.
tónlistina?
Nýja tónlistarhöllin í Colorado Springs vígð. Þannig iítur húsið út að
innan, þegar horft er af sviðinu fram í salinn.
11