Lesbók Morgunblaðsins - 16.07.1983, Side 6
Bolli Gústavsson í Laufási
Þrjú Sólmánaðaljóð
Á gangdögum
Bringuhvítir blikar
bruna inn vog,
keifa yfir kamb,
kalla: úa, úa!
Hæglátar huga kollur
að hreiðurstað.
Jónsmessa
Fuglakliður í kjarri
laufgræn birta;
angar
voðfelld
mold.
Seljumannamessa
Strýkur gola gras,
götur horfnar;
dengir
bóndi
Ijá.
Egill Helgason
India Song
á meðan hann skrifaði í sandinn
í fjörunni neðan við knossos
gekk hún um með brjóstin ber
gullsprergt hárið dansaði í blænum
þau tignuðu hvort annað á bökkum gangesár
ást þeirra enda runnin úr myrkviðinu
flaut með straumnum ofanfrá mekong
nú eru þau flutt útí eyjarnar
tennissinn endurómar um
auðar grasflatir þegar kvöldsett er
kokteilar hvít föt hinn unaðslegi
leiði hún baðar sig í sjónum á
nóttunni eins og hvítfyssandi
öldur og bárur viti eitthvað
um afdrif hans
Voltaire, 1981. Olíulitir á plötur og leirtau.
JULIAN
SCHNABEL
Eftir kreppu í myndlistarheiminum er hann óskabarn
augnabliksins fyrir vestan og málar á brotiö leirtau,
flauel og loöskinn.
Af yngri kynslóð myndlist-
armanna í Bandaríkjunum er
Julian Schnabel óefað sá kunn-
asti núna; hann er þó aðeins 29
ára gamall og hefur geysilegan
meðbyr þessa stundina. Hann er
afskaplega umdeildur listamað-
ur í heimalandi sínu, en frægð
hans og frama má rekja til
kreppu í myndlistarheiminum.
Sú kreppa endaði með því að
olíumálverk var hafið til vegs og
virðingar á nýjan leik, en undir
ýmsum nöfnum: Neo Express-
jónismi, Ný fígúrasjón, Hinir
nýju villtu og hér á íslandi hef-
ur þetta verið kallað nýja mál-
verkið. Þessi uppspretta varð í
Evrópu og síðar hefur stefnan
átt fylgi að fagna meðal banda-
rískra málara og þá er Julius
Schnabel gjarnan nefndur til
dæmis. Minimal-list og konsept
höfðu þá gengið sér til húðar,
vestan hafs sem austan og
Schnabel var svo heppinn að
vera á ferðinni með nýstárlegar
tilraunir, þegar ríkjandi list-
stefnur voru komnar í blind-
götu. Hann er rétt ein holdtekja
ameríska draumsins: fátækur í
gær — frægur og ríkur í dag.
Schnabel er af gyðingaættum,
en nafnið bendir til þess að upp-
runinn sé einnig í Þýzkalandi.
Fjölskylda Schnabels bjó í gyð-
ingahverfi i Brooklyn í New
Julian Schnabel lítur út eins og glímukappi og vann fyrir sér sem
kokkur og leigubílstjóri þar tii sól frœgöarinnar tók aö skfna honum.
6