Lesbók Morgunblaðsins - 16.07.1983, Qupperneq 15
Straumlínan endurbætt: Audi 100 er með vindstuöulinn 0,30, sem er sá lægsti sem náöst hefur á fólksbflum.
Audi 100 aö innan: Vel formuö sæti en stinn. MælaborÖ og annaö aö
innanverðu er samkvæmt þýzka skólanum og hefur geflð góöa raun.
á hefðbundinn hátt og hef ég
ekkert við það að athuga, utan
eitt: Ljósarofinn, sem er í stöng
vinstra megin við stýrið, vill
þvælast fyrir stefnuljósastöng-
inni, sem er sömu megin, en
fjær.
Fyrir nokkrum árum hefði svo
stór bíll verið mun þyngri. En
nú hefur sú þyngd náðst niður
með því að nota sérstaklega
styrkt ál, fíbergler og plast þar
sem járn var notað áður. Þetta
eru þau efni, sem bílaiðnaðurinn
mun nota í vaxandi mæli í fram-
tíðinni og er einn liðurinn í
þeirri viðleitni að gera bíla
sparneytnari. Það er rétt
straumlína einnig og Audi 100
sýnir og sannar að bíll með
lægsta vindstuðul þarf alls ekki
að vera lágur undir loft. Þegar
meðalmaður situr á venjulegun
hátt undir stýri, hefur hann
þverhandar hæð frá höfði og
upp í loft.
Audi 100 er með dýrari bílum
í efri milliflokki nú sem stendur
— en hann er þeirra stærstur og
hann er einnig þeirra spar-
neytnastur. Frágangurinn er að
hætti Þjóðverja; sem sagt pott-
þéttur. Og þar að auki er fram-
hjóladrif. Það er sumsé heilmik-
ið í boði og þá er ótalið frábært
útlit, sem áreiðanlega á eftir að
verða tekið til viðmiðunar í bíla-
iðnaðinum. Að öllu samanlögðu
verður að telja að Audi 100 sé
vel kominn að sæmdarheitinu
bíll ársins. Audi 100 CC — bfll ársins samkvæmt kjöri sérfræöinga bflablaöa í Evrópu — einhver bezt teiknaði bfll, sem sést hefur
GS lengi. í baksýn: Lágmynd Sigurjóns Ólafssonar af saltfiskvinnu.
Audi 100 CC
Samanburður
á verði
Þegar talað er um bfla í efri milli-
flokki er einkum átt við stærð og
rúmtak, en í aðalatriðum haldast
stærð og verð í hendur. Þá er veru-
legur verðmunur á algengustu fólks-
bflunum í þessum flokki, þar sem
lengdin er 4,60—4,90 og breiddin
1,70—1,80. Miöað er við sjálfskipt-
ingu.
Peugeot 505
Volvo 240
Saab 900
Citroen CX 20
Opel Record
BMW 520i
Audi 100 CC
Toyota Crown
þús.
451
485
481
492
520
640
650
667
Bíll ársins
í Evrópu og
enn ein rósin
í hnappagat þýzkra bílasmiða
Stærðin skipar Toyota Crown í
þennan flokk, en ef til vill vilja Jap-
anir fremur flokka hann með lúx-
usbflum eins og Citroen CX 20 Pall-
as, sem kostar 650 þús., Saab Turbo
sem kostar 668 þús., Peugeot 604
sem kostar 700 þús. og Volvo 760
sem kostar 803 þús. Sökum hækk-
unar dollarans hefur verið á amer-
ískum bflum hækkaö svo að þeir
mega heita út úr myndinni, en
stæröin á öllum hinum nýju „inter-
mediate“, sem þeir nefna svo, skipar
þeim í efri milliflokk. Til dæmis má
nefna aö Chevrolet Citation kostar
750—800 þús., Chevrolet Celebrity
950 þús., Malibu um 900 þús. og
einnig Buick Skylark.
15