Lesbók Morgunblaðsins - 07.01.1984, Blaðsíða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 07.01.1984, Blaðsíða 11
'slatt er á hjaJJa. Uab6^Priat>jófur Þægilegra aö það flakka sem dettur í hug Fyrir rétt þrem vikum birtist lítil klausa á innsíðum pressunnar: „íslendingur í 4. sæti í heimsmeistarakeppninni í diskódansi“. Ekki vakti hún mikla athygli, þótt árangurinn væri ekki svo lítill, þjóðmálin og jólaumstangið skyggðu á. Við vildum þó fá að fræðast ögn meira um Astrósu Gunnarsdóttur, 19 ára gamla, indæla stúdínu, sem vann þetta afrek í London. Hvernig hófst þetta allt saman? „Ég byrjaði í fimleikum 10 ára hjá Armanni, en ég byrjaði ekki að dansa þar til fyrir þremur ár- um hjá Dansstúdíói Sóleyjar. Svo fór ég að sýna með krökkum frá skólanum. Núna æfi ég sex daga vikunnar og kenni jafnframt yngri hópum." Hvers vegna kepptir þú, sem stundar jassballett, um íslands- meistaratitilinn í diskódansi? „Ég hef alltaf dansað og sýnt með öðrum. Þegar fleiri eru sam- an er auðvelt að fylgja öðrum, ef minnið bregst. Mig langaði þess vegna til að koma fram á eigin spýtur og keppa þar sem ég þyrfti alveg að treysta á sjálfa mig.“ Keppnina hér heima átti að halda miklu fyrr en eins og venju- lega skorti keppendur, og þess vegna seinkaði henni. Auglýsingar voru loks settar upp í skólanum og ég lét skrá mig nokkrum dögum fyrir keppnina. Hún var haldin nokkrum vikum fyrir úrslita- keppnina í London. Við komumst þrjár áfram, þar af tvær frá Sól- eyju. Fyrstu verðlaun voru ferð til Ibiza sem ferðaskrifstofan Úrval gaf. Keppnin fór mjög vel fram og á Magnús Kristjánsson heiðurinn af því. Fengum Ekkert Að Borða Eftir viku var ég komin til London. Ég kom auðvitað of seint (var að dansa í Vestmannaeyjum kvöldið fyrir brottför), en var tek- in hershöndum þegar ég loksins mætti. í fjóra daga æfðum við stöðugt frá klukkan sjö á morgn- ana til miðnættis. Ekki fengum við mikla næringu, en hamborg- ara og franskar af og til. Það er rétt hægt að ímynda sér hvað við höfðum mikla lyst á slíkri fæðu, þreytt og sveitt. Þess vegna lifðum við mest á vatni úr krananum og ávöxtum, ef einhver var svo skyn- samur að grípa þá með á æfingar. Forkeppnin var haldin kvöldið fyrir úrslitin og ég var í öðru sæti um heimsmeistaratitilinn eftir hana. Þá var valinn besti búning- urinn sem ítalinn vann. Ég hafði ekkert æft mig en var nokkurn veginn með „beinagrindina“ á hreinu. Væri dansinn fastmótaður óttaðist ég taugaveiklun og að verða stíf. Þá hefði ég sífellt verið að gæta þess að gera nú rétt. Það er miklu þægilegra að láta það flakka, sem manni dettur í hug í hvert skipti." Hvernig fannst þér aft keppninni staðið? „Hún var haldin með sjón- varpsáhorfendur í huga, miklu frekar sýning en keppni. Allt var unnið í miklum flýti og það kom bæði niður á atriðunum og döns- urunum. Hver fékk stuttan tíma og margir þurftu að breyta spor- um vegna sviðsins. Við fundum flest fyrir því, að eiginlega var bú- ið að ákveða fyrirfram að Bret- Finnbogi Marinósson og Ásta Hrönn Maack ræöa við Ástrósu Gunnarsdóttur um heimsmeistarakeppni 1 diskódansi LESBOK MORGUNBLAÐSINS 7. JANOAR 1984

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.