Lesbók Morgunblaðsins - 03.11.1984, Síða 10
Mississippi-fljót með New Orleans í baksýn. Þó athafnalíf rið fljótið hafi minnkað halda skýjakljúfarnir ifram að rísa.
Tightrope, nýjasta mynd Clint Eastwoods er tekin í franska hrerflnu f New
Orleans, sem bér sést.
Flutningaskip fri öllum heimshornum bíða i Mississippi eftir afgreiðslu íNew Orleans-höfn.
í höfninni í New Orleans rar rerið að mála fljótabátinn President sem hefur um áratuga skeið rerið einn
stærsti skemmtistaður borgarinnar. Um borð hafa td. Louis Armstrong, Tbe Rolling Stones og Earth, Wind
and Fire leikið.
Disney World, Epcot Center og Sea World
við Orlando koma milljónir ferðamanna á
ári hverju til að skoða furðuverkin. Þar er
ferðast inn í fortíð og framtíð og t.d. í
Magic Kingdom eru mörg eftirminnileg
ævintýri. Samtíðin verður heldur ekki út-
undan. Enginn vafi leikur á að íslendingar
eiga eftir að sækja m.a. þessa skemmti-
staði heim í ríkara mæli en verið hefur
þegar Flugleiðir hefja fyrst flugfélaga
áætlunarflug frá Evrópu til Orlando.
Sýningin í New Orleans hefur ekki dreg-
ið að sér jafnmarga ferðamenn og vonast
var til, jafnvel er búist við um 70 milljón
dollara halla á heimssýningunni.
Miðborg New Orleans minnir í mörgu á
New York og þá einna helst breiðgatan
Canal Street, iðandi af mannlífi ólíkt öðr-
um borgum djúpa suðursins. Athyglisverð-
asta íbúðarhverfið í New Orleans er í
gamla franska borgarhlutanum sem geng-
ur upp frá Mississippi-fljóti og er kallað
The French Quarter. í þessu hjarta borg-
arinnar eru götunöfn á frönsku og minna
mörg á þá staði þaðan sem frumbyggjarn-
ir komu. Jassinn hefur gert þennan hluta
borgarinnar frægastan enda hafa margir
þekktir jassspilarar komið þar fram á
veitingahúsum og leikið á götum úti.
Satchmo gerði garðinn frægan en hann
ólst upp á munaðarleysingjahæli í borg-
inni, eignaðist blásturshljóðfæri 13 ára og
gerðist lærisveinn Josep „King“ Olivers
eins af fyrstu spámönnum þessarar tón-
listar, eins og ýmsum er kunnugt. Frægð
þessara tónlistarmanna og stöðu í hljóm-
listinni þarf ekki að tíunda hér, svo kunnir
sem þeir eru. En nú er lítið um jass í
franska hverfinu, meira um hávaðasamt
rokk og fatafellutónlist, og minnti þekkt-
asta gatan, Bourbon Street, einna helst á
heldur sóðalegt hafnarhverfi í evrópskri
borg. Það er engin tilviljun að nýjasta
kvikmynd Clint Eastwoods, Tightrope,
gerist að mestu leyti í franska hverfinu, en
myndin fjallar m.a. um morð og vændi á
þessum slóðum. Kvikmyndinni hefur verið
vel tekið hér í Bandaríkjunum.
Heillandi áhrif
ÁRITHÖFUNDA
Mörg húsin eru eftirminnileg þótt þau
megi eflaust muna sinn fífil fegurri og
hefur byggingarstíll franska hverfisins
áreiðanlega þó nokkra sérstöðu í suðrinu.
Þessi borgarhluti hefur heillað marga
heimsfræga rithöfunda, allt frá Walt
Whitman til Tennessee Williams. Aðrir
þekktir höfundar hafa starfað við blaða-
mennsku í New Orleans, s.s. Mark Twain
og 0. Henry. Lillian Hellman er einn
þekktasti höfundur fæddur í New Orleans,
svo og Truman Capote.
Að sjálfsögðu er skoðunarferð um New
Orleans ekki fullkomnuð fyrr en siglt er
með gamaldags fljótabáti, eins og t.d.
Natchez, um Mississippi-fljót. Þá fyrst
kemur í ljós hvað hafnarsvæðið er stórt.
Leiðsögumaðurinn sagði m.a., að umferðin
um ána væri minni en áður og hefði hún
dreifst til annarra borga eins og t.d. Galv-
eston í Texas og Mobile í Alabama. Ástæð-
an væri m.a. sú, að skipin þyrftu ekki að
sigla upp neinar ár til að komast í höfn í
þessum borgum, en það væri mjög dýrt að
sigla upp eftir Mississippi til New Orleans.
Slíkt ferðalag væri aðeins farið undir
stjórn sérstakra hafnsögumanna. Á fljót-
inu lá samt fjöldi skipa frá mörgum lönd-
um og á bökkunum mátti sjá vöruskemm-
ur, álverksmiðju, olíuhreinsunarstöð og
slipp, svo eitthvað sé nefnt. Leiðsögumað-
urinn á Natchez sagði ennfremur, að nú
fækkaði slippum því að skipin stækkuðu
sýknt og heilagt og gömlu vöruflutn-
ingaskipin yrðu senn úr sögunni. Á fljót-
inu lá stórt vöruflutningaskip frá stærsta
útgerðarfélagi heims, japanska skipafélag-
inu Sanko Line, vel málað og snyrtilegt og
var okkur sagt að engan mann þyrfti í
vélarrúm vegna þess hve tölvubúnaður
væri fullkominn.
Áður en komið er til New Orleans heldur
maður að enn eimi eftir af gömlum tíma
og má það að vissu marki til sanns vegar
færa. Fljótabátarnir eru nú fáir og einung-
is notaðir fyrir skemmtisiglingar. Mississ-
ippi Mark Twains er horfin á sama hátt og
Bourbon Street Louis Armstrongs heyrir
sögunni til, hvað sem ferðaauglýsingum
líður. Við Bourbon Street blasa nú helst
við illa þefjandi knæpur, útigangsfólk og
ferðamenn og vonandi ætlar enginn í
franska hverfið aðeins til að hlusta á góð-
an jass — hann er annars staðar. Enn
sitja þó svertingjadrengir við Mississippi
og veiða fisk með bambusstöngunum sín-
um eða í net. Það var gaman að sjá þá
þarna niður með ánni fjóra saman, en uppi
á bakkanum voru stór hús frá plantekru-
tímanum og vantaði ekkert nema Stik-
ilsberja-Finn til að fylla myndina.
HJ.
Tallahassee.
10