Lesbók Morgunblaðsins - 11.05.1985, Side 10

Lesbók Morgunblaðsins - 11.05.1985, Side 10
um miðja 19. öld. Kom það af miklum rugl- ingi í gerð messuskrúða þar í landi. Upprunaleg Frumtákn - ÍSLENZK EFNI Tuttugasta öldin með sínum mikla um- brotum og stilhræringum krafðist hér mikilla breytinga og frjálsræðis, þótt menn héldu sig að vísu við hin uppruna- legu frumtákn. Það var hér sem Unnur markaði spor í sögu íslenzkrar kirkju á þessari öld og nefna má, að hún gerði sér far um að nota sem mest af íslenzkum efnum í verk sín, m.a. hörgarn, er hér var ræktað og spunnið. Ég tel þó ólíklegt, að Unnur hafi jafnan verið með á nótunum um hinar róttækari stílhræringar svo mjög sem hún sótti efnivið sinn til hins hefðbundna og jarðfasta, en þó með fjöl- breytileikann að leiðarljósi. Eins og réttlega segir, þá hefur íslenzka þjóðin verið gjöful á muni til helgihalds, en því miður hefur listasmekkur gefenda verið mjög á reiki og þekking á helgitákn- um takmörkuð og ekki leitað til hinna fær- ustu hönnuða er kaupin voru gerð. Því hef- ur af góðum vilja og hreinu hjarta miklum peningum verið sóað í rislitla og ólistræna hluti. Því hafa allt fram til dagsins i dag verið fluttir inn í landið listmunir, er að listrænu og sögulegu gidi standa langt að baki þeim einföldu, fátæklegu og látlausu hlutum, er fyrir voru. Þetta mun hafa ver- ið Unni og raunar mörgum fleirum mikill þyrnir í augum, og hér mun hún hafa reynt að sporna við með þekkingu sinni og markvissu handvirki, en án alls hávaða og brambolts á opinberum vettvangi. Kirkjulistarsýning — OG Unnur Ekki höfð Með Þegar Unnur hóf ævistarf sitt var hér fátt um útlært listiðnaðarfólk, og það hlýt- ur að hafa glatt hana að fylgjast með þró- uninni, er hér hefur orðið á öllum sviðum listiðnaðar nema þá helzt hinnar fornu listgreinar málmsmíði. Nú er hér nóg af dugandi fólki á sviði listiðnaðar, er gerir það öldungis óþarft að leita út fyrir land- steinana til að fala helgigripi úr eðal- málmum eða dýrum vef. Þetta staðfesti hin mikla kirkjulistar- sýning á Kjarvalsstöðum á páskunum 1983 og var sú staðfesting hið mikilsverðasta við þá miklu og gloppóttu framkvæmd. Einhverra hluta vegna, sem mér er alls ókunnugt um, átti t.d. Unnur Ólafsdóttir ekkert verk á þeirri sýningu en hins vegar fjöldinn allur er aldrei hafði komið nálægt trúarlegri list... Unnur Ólafsdóttir var mikil atorkukona, sem lét enga erfiðleika né margar spitala- legur aftra sér frá því að ná settu marki, hún stundaði böð og þá ekki einungis laug- arnar heldur og einnig sjóinn hér innan borgarmarkanna og munu ekki margar konur (né karlar) hafa leikið það eftir henni nú hin siðari ár. Mætti ég henni stundum er hún bersýnilega var að koma frá slíkum sjóböðum og gustaði þá af henni hressileikinn. Listakonan var frekar lág vexti, en þrekin og samanrekin líkt og bróðir hennar, Ásbjörn, sá nafnkenndi at- hafnamaður. Frá henni stafaði látlaus þokki og fas hennar bar vott um ákveðna og trausta skaphöfn. Hér í Lesbók eru kynnt nokkur verk Unnar Ólafsdóttur og þá einkum þau, er prýða kirkjuskip Áskirkju svo og messu- skrúða. Altaristöflurnar, er hún gerði, geta varla einfaldari verið, annars vegar hjörturinn og krossinn á fjólubláum fleti með einkunnarorðunum: „Eins og hjörtur- inn kallar eftir rennandi vatni, svo kallar mín sál, Guð! til þín.“ Hins vegar er tafla er einungis er byggð í kringum fornt stafa- tákn Krists á djúpbláum fleti eilífðarinn- ar. Báðar eru myndirnar afburða vandað- ar að allri gerð og í þeim er mikið sálrænt rými er leiðir hugann um sumt til hug- myndafræðilegrar listar nútimans. Svo koma altarisklæði, messuskrúði og hökull kirkjunnar. Loks koma tveir gripir frá heimili lista- konunnar, hið stóra útsaumaða veggteppi á brúnum grunnfleti, sem er eftirmynd Valþjófsstaðahurðarinnar, sem er vel gert og listrænt handverk og síðast kemur hinn form- og litfagri íslenzki steinn með inn- greyptum stafatáknum Krists, er Unnur saumaði, mun þetta vera siðasta listaverk- ið er hún gerði. Likast bautasteini, er tjáir ást gerand- ans til trúarinnar, lífsverksins og landsins hrjúfa. Altarisklæði, messuskrúði og hökuli Áskirkju EIRÍKUR EIRÍKSSON Líkur á aö stúkurnar líöi undir lok Fyrirsögn úr DV miövikudag 6. marz, 1985, bls. 35. Stórstúkunnar steingervingar stefna í vanda Aldahvörfin yfir renna, endurnýjun fáir kenna. Eftir liðið aldarskeið og ári betur elliglöpin að þeim steðja ölmæðlinga slitnar keðja. Raunasagan rituð er í rauðvínspressu Templara þar telur niður Tímaklíkusálmasmiður. Tíðindi af afloknu 33. þingi Noröurlandaráðs 1985 samanber DV 13/3, 1985, bls. 13. Ennfremur sam- kvæmt Þjóðviljanum sama dag, bis. 4 og víðar. Lag: Kolbrún mín einasta óstfólgna hlín. Um Norðurlönd geisaði fjölmiðlafár, en forsmáðar samskiptareglur. Kjarkbólgnar hetjur með kærur og dáð kratanna þvinga á teglur. Afgönuhlaupin og orðræðubrigsl urðu til lítilía sátta. Gaspur og deilumál gengu á víxl til grályndra samfélagshátta. Jörgensen ólæs á íslensku spyr um orðbragð hjá meistara Jóni, að Finnlandiseraður friðstefnubyr falsrökum kommanna þjóni. Framsóknarkommar með fjálglegri makt flatir og auðsveipir lágu. Skandinavisku þeir skröfuðu lakt skríðandi vinmæli þágu. í hásölum Kjarvals á skilnaðarskál hver skörungur djarflega sýpur. Að fótaskör Norðmanna frómheita sál „von Hallested“ auðmjúkur krýpur. Tilbrigði viö þjóðvísu Það á að gefa börnum bjór að bergja í á jólunum krúsarlagarkolla stór uns kætast þau í bólunum. Fína steik af feitum þjór til fremdar bændaskólunum. Góli af plötum grýlukór svo gremjist öldnu fólunum. Höfundurinn er bókavörður á Alþíngi.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.