Lesbók Morgunblaðsins - 18.05.1985, Blaðsíða 2
H L JOMPLOTUR
Leöurblakan
á hljómplötum
Sama árið og Sveinbjörn
Sveinbjörnsson sat við
að semja lag við lofsöng
séra Matthíasar Joch-
umssonar úti í Edinborg lagði
Johann Strauss yngri síðustu
hönd á nýja óperettu sem hefir
orðið frægust og vinsælust af
öllum verkum þeirrar gerðar og
sveipað Vínarborg og tónlist
hennar töfraljóma. Þetta var
óperettan Leðurblakan sem hef-
ir notið sérstakra vinsælda allt
frá þeim tíma sem tónar hennar
bárust um sali Theater an der
Wien 5. apríl 1874.
Hún hefir að sjálfsögðu orðið
hljómplötufyrirtækjum ærið
keppikefli, en enda þótt margir
hafi verið kallaðir hafa fáir
reynst útvaldir. Segja má að
fáum sé sú list jafn vel lagin og
Vínarbúum að leika Strauss-
valsa eins og vera ber, enda hafa
þeir þessa tónlist í blóðinu og
með nokkrum sanni má segja að
þeim láti öðrum betur að gera
Leðurblökunni þau skil sem
henni ber með réttu.
Um það leyti sem farið var að
gera hæggengar hljómplötur
kom á markaðinn hljóðritun frá
Vínarborg þar sem Clemens
Krauss var stjórnandinn. Þessi
útgáfa er nú tæpast til á al-
mennum markaði, en ef menn
skyldu rekast á hana er hún enn
allrar athygli verð sakir þess hve
vel er að verki staðið. Skömmu
síðar kom önnur fræg hljóðritun
á markaðinn frá HMV í „mono“.
Þar var stjórnandinn Herbert
von Karajan og Walter Legge sá
um upptökuna. Meðal söngvara
voru Elisabeth Schwartzkopf,
Rita Streich, Gedda, Krebs,
Kunz o.fl. Hér var skipað í hvert
hlutverk eins og best var á kosið,
enda hefir þessi hljóðritun verið
gefin út á ný HMV RLS 728.
Karajan lét þó ekki hér við
sitja heldur gerði aðra hljóðrit-
un fyrir aldarfjórðungi sem
einnig hefir komið út að nýju og
þá beitt hinni svokölluðu „digit-
al“ tækni. Þessi upptaka er sér-
stæð að því leyti að hér er til
viðbótar „Gala“ konsert þar sem
frægir söngvarar eins og Renata
Tebaldi, Birgit Nilsson, Jussi
Björling, Ljuba Welitsch, Giuli-
etta Simionato og Ettore Basti-
anini syngja sitthvað úr heimi
óperettunnar til viðbótar við
Leðurblökuna. í Leðurblökunni
sjálfri voru helstu söngvararnir
Hilde Gueden, Waldemar
Kmentt, Erika Köth, Walter
Berry og Eberhard Waechter, og
það er kór ríkisóperunnar í Vín
sem syngur og Vínarfílharmóní-
an leikur. Að sjálfsögðu er þessi
upptaka betri tæknilega en sú
frá 1955, og þarna eru mörg
atriði gerð af mikilli snilld t.a.m.
sum atriðin hjá Gueden og Resn-
ik sem syngur Orlofsky.
Árið 1972 kom út víðfræg upp-
taka af Leðurblökunni þar sem
stjórnandinn var enginn annar
en Willi Boskovsky. Hann tekur
verkið öðrum tökum en Karajan
og að sjálfsögðu tekst honum
ekki allt jafn vel, en meðal
söngvaranna eru Annelise Roth-
enberger, Renate Holm, Nicolai
Gedda, Fischer-Dieskau, Walter
Berry og Birgitte Fassbaender
sem er frábær í hlutverki Orl-
ofskys. Rothenberger er prýðileg
í hlutverki Rosalindu og í heild
er þetta talið ein besta upptakan
HMV sls 964. Þess má geta að
Jóhann Strauss, höfundur Leður-
hlökunnar.
það er Vínarsinfónían sem leik-
ur í þetta skiptið, en kór ríkis-
óperunnar syngur eins og hjá
Karajan.
Til viðbótar má nefna tvær
nýlegar hljóðritanir. Stjórnend-
urnir eru Carlos Kleiber og Rob-
ert Stolz. Báðir eru þeir frá
Austurríki, þó að forlögin hafi á
stundum hrakið þá til annarra
heimsálfa. Kleiber er sá þeirra
sem talið er að hafi tekist betur
enda var ellin farin að sækja
fast á Stolz þegar hann gerði
sína upptöku og það dregur upp-
færsluna niður að Wilma Lipp
— sem syngur Rósalindu — var
búin með sitt besta og það setti
sitt mark á verkið. Aðrir söngv-
arar eru Holm, Rudolf Schock,
Berry, Curzi og Steiner, og eins
og hjá Boskovsky er það Vínar-
sinfónían sem leikur og ríkis-
óperukórinn sem syngur, Euro-
disc 88610 XDE. Söngvararnir
hjá Kleiber eru Julia Varady,
Lucia Popp, René Kollo, Bernd
Weikl, Hermann Prey og Ivan
Rebroff. Þær Varady og Popp
bera þessa upptöku uppi, því að
afgangurinn er dálítið misjafn
og enda þótt stjórnandinn hafi
bæði sveigju og nákvæmni til að
bera, verður það stundum á
kostnað glettninnar og gáskans
sem í verkinu býr og Rebroff
sem Orlofsky prins er ekki góð
lausn, enda þótt hann syngi f fal-
sett eins og honum er lagið, DGG
2707 086.
Enn má nefna hljóðritun þar
sem Karl Boehm er stjórnand-
inn. Þær Gundula Janowitz og
Renate Holm eru stjörnurnar í
þeirri upptöku í hlutverkum
Rósalindu og Adéle, en karla-
hlutverkin eru tæpast jafn vel af
hendi leyst, en það eru flestir
sömu söngvararnir og nefndir
hafa verið hér á undan í ofan-
greindum hljóðritunum. í hlut-
verki Orlofskys er Wolfgang
Windgassen og það er ekki jafn
vel af hendi leyst eins og t.a.m.
Fassbaender gerir hjá Bosk-
ovsky. Eins og löngum áður er
það kór ríkisóperunnar í Vín
sem syngur og Vínarfílharmóní-
an leikur undir stjórn Boehms,
Decca set 540. Allar þær hljóðrit-
anir sem hér hafa verið taldar
upp hafa sér til ágætis nokkuð,
en engin gnæfir yfir hinar þegar
á allt er litið. Því má segja að
enn sé beðið eftir þeim Messíasi
sem leysir þá þraut, en þeim sem
ekki geta beðið skal helst bent á
Willi Boskovsky HMV sls 964.
A.K.
ERLENDAR
B Æ K U R
Stephen Jay Gould:
The Mismeasure of Man
A Pelican Book.
1984.
Þessi bók hefur marga kosti
reyfarans, það er að segja þeirra
sem einhver veigur er í.
Höfundurinn, sem er víðfræg-
ur vísindamaður og starfar við
Harvard-háskóla í Bandaríkjum
Norður-Ameríku, birtir hér
rannsóknir sínar á rannsóknar-
niðurstöður greindarmælinga-
manna, en þeir eru og voru
margir í heiminum og hvað
flestir fyrir vestan haf. Þessir
vísindamenn, ef hægt er að kalla
þá því nafni, einbeittu sér helst
að því aö afsanna þá kenningu
að allir menn séu fæddir jafnir.
Þeir vildu sýna fram á það að
svartir menn, indíánar og gyð-
ingar t.d. stæðu hvítum mönnum
langt að baki hvað greind varðar
og hæfni til að drottna og
stjórna. Mælingamennirnir
höfðu flestir eitthvað óhreint í
pokahorninu og má vera að einn
og einn hafi verið þess ómeðvit-
aður en allt ber þó að sama
brunni, greindarmælingar eru
nokkuö sem ekki er hægt að
byggja á. Saga mælinganna er
ljót og skapaði heldur ógeðfelld-
ar kenningar og framkvæmdir.
Þetta má lesa í Mismeasure of
Man sem er, eins og að ofan
greinir, reyfaraleg bók og spenn-
andi aflestrar.
Philippe Aries:
The Hour of Our Death
Helen Weaver þýddi úr frönsku.
Perigrine Book,
Penguin Books 1983.
Þegar einstaklingur fellur frá,
hvort sem er í slysi, vegna ald-
urs, í stríði eða á einhvern annan
hátt sem menn yfirgefa jarðlífið,
eins og það heitir, þá tekur dauð-
inn ekki til hans eins. Ættingjar
og vinir fá sinn skammt af dauð-
anum og athöfn fylgir því þegar
líkinu er komið fyrir, brennt eða
grafið. Svo er og hefur verið í
aldaraðir. Allt fram á áttundu
öld voru kristnir menn grafnir
fjarri mannabústöðum, helst á
opnum svæðum, en að því kom
að þeir sem einhvers voru metn-
ir tóku að æskja þess að vera
grafnir í sóknarkirkjum sínum
eða í nálægð þeirra. Þar með
brotnaði ísinn og hver kannast
ekki við misvelhirta kirkjugarða
til sveita á íslandi. En aldirnar
liðu og dæmið snérist við og á
vorum dögum eru kirkjugarðar
fjarri kirkjum og íbúðarhverfum
bæja og borga.
Dauðinn er tabú og því er öllu
því sem honum viðkemur haldið
úr augsýn fólks, eða væri ekki
hægt að álíta sem svo að fólk
vilji helst að vélar sjái um
greftrun hinna dauðu eins og
stúlkan í fyrirlestri Páls Árdal
um siðfræði vildi að vél fram-
kvæmdi refsingu sem eitt
ómennið ætti skylda.
í Nýju-Guineu er einn ætt-
okkur sem hefur þann sið að í
hvert sinn sem einhver úr hon-
um deyr, hætta eftirlifendurnir
að nota tiltekið orð og af þeim
sökum verður mál þessa ættokks
alltaf fáskrúðugra og fátækara
og viðbúið að þaö deyi algerlega
út. Þótt þessi siður sé ekki kunn-
ur meðal vesturndaua, þá hafa
vissulega margar venjur tilheyrt
þá er menn deyja, sem sumar
hverjar teljast í hæsta máta ein-
kennilegar.
The Hour of Our Death er yf-
irgripsmikið félagsfræðirit og
fjallar um allt sem snertir dauð-
ann eins og hann hefur blasað
við kristnum mönnum í bráðum
tvö þúsund ár. Höfundurinn
Philippe Aries er franskur og
hefur skrifað tvær aðrar bækur:
Centuries of Childhood og West-
ern Attitudes Towards Death.
Pausanias:
Guide to Greece
Vol. 1: Central Greece.
Vol. 2: Southern Greece.
Translated with an Introduction
by Peter Levi.
Illustrated with Drawings from
Greek Coins by John Newberry.
Maps and Plans by Jeffery Lacey.
Penguin Books 1984.
Hellados Periegesis skrifaði
Pausanias á síðari hluta annarr-
ar aldar eftir Krists burð. Svo
virðist sem hann hafi komið frá
Lydiu. Hellados Periegesis sem
þýðir leiðsögn um Grikkland er,
eins og nafnið bendir til, hand-
bók fyrir forvitna ferðalanga.
Hér má lesa um marga sögustaði
Grikklands, rústir nefndar, bent
á staði sem vert er að koma á
vegna menningarverðmæta þar
um slóðir og hér finnast goðsög-
ur tengdar landshlutum og
margar frásagnir aðrar.
Þetta verk mun vera ein fyrsta
ferðabók sögunnar og er um
margt athygli verð.
Penguin; í JCIassics
PAUSANIAS
GUIDE TO GREECE
Peter Levi hefur þýtt þetta
verk og skrifar óteljandi margar
neðanmálsgreinar til skýringar
á textanum og var ekki óþarft
verk.
Guide to Greece samanstend-
ur af tíu bókum og er þeim ekki
raðað í númeraröð í þessari þýð-
ingu. Verkinu fylgja mörg kort
og lýsingar auk staða- og
mannanafnaskrár. Samtals er
verkið í þessum tveimur bindum
upp á rúmar eitt þúsund síður og
telst til Klassíska bókaflokks
forlagsins.
2
J