Lesbók Morgunblaðsins - 18.05.1985, Síða 10
Úr dönaku bamamyadinni „Ottó er nashyrningur“ eftir Runte Hammerich og mun bún vera ein vinsxlasta barnamynd Norðurlanda hin síðari ár.
Mikið
kvikmynda á sjöundu
kvikmyndahátíð Listahátíðar
■ -
I
já
Idag er sjöunda Kvikmyndahátíð Listahátíðar
sett. Sýndar verða tuttugu og níu myndir og
verður hátíðin opnuð með mynd sem gerð er
eftir hinni geysivinsælu sögu Astrid Lindgren,
Ronju ræningjadóttur. Verða þau bæði heiðurs-
Hin árlega kvikmyndahá-
tíð Listahátíðar hefst í
dag og stendur til 25. maí
í Austurbæjarbíói. Af því
tilefni birtir Lesbók tvær
greinar til leiðbeiningar
þeim, sem áhuga hafa á
þessum menningarvið-
burði svo og á kvikmynda-
gerð almennt.
gestir við þetta tækifæri, Lindgren sjálf og
leikstjóri myndarinnar, Tage Danielsson.
Með þessu vill Kvikmyndahátíð leggja
áherslu á mikilvægi mynda fyrir börn og
unglinga. Mönnum ætti að vera ljós nauð-
syn þess að upplýsa, skemmta og örva
fólkið sem kemur til með að skapa og
sækja kvikmyndir framtíðarinnar. Ronja
ræningjadóttir verður ekki eina barna-
myndin á hátíðinni. Frá Danmörku kemur
myndin Ottó er nashyrningnr. Ungur piltur
eignast undrapenna og getur skapað með
honum heila veröld því myndirnar sem
hann teiknar lifna við.
Raunar eru fleiri myndir á hátíðinni
sem gætu flokkast undir „myndir fyrir
alla fjölskylduna", myndir sem börn eða
a.m.k. unglingar ættu að geta haft gaman
af svo sem Sætabrauðsvegurinn um líf og
leiki á Martinique-eyju eftir þarlenda
konu, Euzhan Palcy, en framleidd af
Frökkum og svo Dansinn dunar eftir ítal-
ann Ettore Scola. Þar greinir frá breyting-
um á tíðaranda síðustu þriggja eða fjög-
urra áratuga og gerist öll á dansleik. Er
tónlistin eiginlega söguþráðurinn en ekk-
ert er talað í myndinni.
Myndir fyrir börn og unglinga eru því
eitt af áhersluatriðum þessarar hátíðar.
Myndaval
Fleiri áhersluatriði mætti nefna, atriði
sem koma fram í myndavalinu. Reynt er
að sýna myndir sem áhorfendur hér hefðu
trúlega ekki átt kost á að sjá, að öðru
jöfnu; þ.e.a.s. myndir sem ekki koma frá
hinum enskumælandi heimi. Sömuleiðis
ber valið með sér að ekki var miðað við
myndir sem komu fram á síðustu mánuð-
um heldur spannar það allt frá nýjum og
nýlegum myndum til mynda sem teljast
Astrid Lindgren. Hinn ástsæli barnabókahöf-
undur verður gestur kvikmyndahátíðar 1985,
en eftir skáldsögu hennar „Ronja ræningja
dóttir“ hefur verið gerð afar vinsæl kvik-
mynd sem sýnd verðui á hátíðinni.
mikilvægar í kvikmyndasögunni svo sem
Sjö samúræjar eftir meistara Kurosawa.
ÞÝSKALAND
Fleiri þungavigtarmenn eiga myndir á
hátíðinni. Sýndar eru myndir eftir tvo
góða gesti fyrri hátíða, þá Wim Wenders
og Werner Herzog. Hinir þýsku full-
trúarnir tveir tengjast hátíðinni og íslandr
á þann hátt að annar verðu gestur okkar
nú: Hark Bohm. Eigi skal gráta heitir mynd
hans. Hinn er Radu Gabrea og er raunar
Rúmeni sem starfar í Þýskalandi vegna
ofsókna heima fyrir. Hann vinnur nú að
undirbúningi kvikmynda eftir Nonna-
Jean-Luc Godard, einn þekktasti og umdeild-
asti kvikmyndastjóri heimsins í dag, verður
einnig gestur kvikmyndahátíðar 1985.
10