Lesbók Morgunblaðsins - 06.07.1985, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 06.07.1985, Blaðsíða 9
Áttariti, 1972. Eyborg rið rinnu sína. Gluggamynd. Plexigler og akrýl. Eyborg Hún lagði ein íslendinga stund á optíska list í anda Vasarelys, sem leiðbeindi henni í París, en ferillinn varð ekki langur, því listakonan lézt fyrir aldur fram. Eftir RÚNU GÍSLADÓTTUR Eyborg Guðmundsdóttir var einn þeirra listamanna sem stöðugt sóttu á brattann og mörg sérkennileg verk hennar vöktu at- hygli. Fróðlegt hefði verið að fá að fylgjast með henni miklu lengur, en Eyborg Guð- mundsdóttir er öll og varð harmdauði öll- um sem þekktu hana. Vinum hennar — og þá átti hún marga — ber öllum saman um lýsinguna á henni: Litríkur persónuleiki, hressileg vaskleika- kona sem aldrei gafst upp á hverju sem gekk. Kona, sem vissi hvað hún vildi og sem alltaf hafði eitthvað á prjónunum. Skynsöm og réttsýn mannréttindakona, mannblendin, félagslynd, fáguð í fram- komu og afar kurteis. I samvistum við hana var aldrei hægt að láta sér leiðast. Eyborg lézt árið 1977. Síðustu 20 árin sem hún lifði var hún listmálari af lífi og sál. Á þeim tíma tókst henni að koma meiru í verk en mörgum öðrum á heilli ævi. Hún notaði pensla og málningarsprautu, málaði á plötur, striga eða gler, hannaði bókakápur og gerði myndverk úr járni og viði. Hún lagði lítið upp úr pensilförum en þeim mun meira upp úr sterkum formum og notaði fáa liti. Hún hélt aðeins þrjár einkasýningar, en tók þátt í þeim mun fleiri samsýningum hér heima og erlendis. Og henni auðnaðist að verða nemandi hjá þekktasta meistara op-listarinnar, Ungverjanum Victor Vasarely og lagði mjög mikið upp úr því. Öll Parísarár henn- ar var hann leiðbeinandi hennar og æðsti spámaður. Veiktist Af Berklum Á UNGA Aldri Hinn 17. nóvember síðastliðinn hefði Eyborg orðið sextug. Hún fæddist í Reykjavík árið 1924. Foreldrar hennar voru Hólmfríður Guðmundsdóttir frá Eyri við Ingólfsfjörð og Guðmundur Rögn- valdsson, skipasmiður, ættaður úr Djúpi. Eyborg fór nýfædd með móður sinni vest- ur á lsafjörð, þar sem foreldrarnir voru búsettir. Móður sína missti hún aðeins 2ja ára gömul. Móðuramma hennar, Guðrún Jónsdóttir, tók þá Eyborgu til sín og ólst hún upp að bænum Eyri við Ingólfsfjörð í Strandasýslu. Oft var lífið erfitt á þessum árum, og Eyborg minntist síðar atburða eins og þeirra, er fjörðurinn var fullur af ís langtímum saman. Varð þá hver að bjargast eins og hann gat, því að aðföng öll urðu að fara sjóleiðina. Snemma hafði Eyborg áhuga á að ganga menntaveginn. Farskólinn með stuttum starfstíma, 4—6 vikum í senn, var eini kosturinn fyrstu árin. Á unglingsárunum notfærði hún sér tungumálakennslu Ríkis- tESBÖK MORGUNBLAOSINS 6. JÚLÍ1985 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.