Lesbók Morgunblaðsins - 01.02.1986, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 01.02.1986, Blaðsíða 7
Vísindamaðurinn dr. Rosenberg hjá sjúklingi. „Það er ólýsanleg tilfínning að geta hjálpað sjúklingum, sem ekki voru taldir lengur eiga neina lífsvon.“ myndar einnig mótefni, en hefur fyrst og fremst það hlutverk að fjölga húðfrumum. Til dæmis við brunasár. En frá Gallo til niðurstöðu Rosenbergs var þó langur vegur. Við tilraunir á dýrum kom fram, að hvorki Interleukin-2 né hinar „vígmóðu eitilfrumur" út af fyrir sig höfðu nein áhrif á krabbameinsæxli, þegar þau voru gefín sitt í hvoru lagi. Það var ekki fyrr en þau voru gefín samtímis, að krabba- meinið lét skyndilega undan síga. Þegar Rosenberg hóf hina sameinuðu lyfjagjöf, kom árangurinn brátt í ljós, þótt ekki yrði það strax í fyrsta tilvikinu. Hann segir svo frá: „Fyrsti sjúklingur minn var 29 ára gömul kona, sem þjáðist af illkynja sortuæxli (melanoma), hinu skaðvæniegasta allra húðkrabbameina. Meinvarpið hafði þegar náð til fótanna, baksins og brjóstsins. Þegar hún fór úr okkar umsjá eftir mánaðar meðferð, hafði æxlið ekki breytzt á nokkum hátt. Það var ekki fyrr en hún kom til rannsóknar að liðnum átta vikum í viðbót, að í ljós kom, að krabbameinið var horfíð. Og þess hefur ekki orðið vart aftur enn sem komið er.“ Reyndar koma einnig fram aukaverkanir af Interleukin-2. Hiti, hrollur, velgja og miltisbólga, em þó meðal hinna meinlausari. Verra er, hve vökvi safnast fyrir í vefjum. IUm tíu milljörð- um hvítra blóð- korna er náð úr blóð- inu með síu Hvít blóðkorn Hvítu blóðkorn- 4Sjúklingurinn færhinar „víg- móðu" frumur í æð ásamt Interleukin - 2 © © © „Vígmóð" hvít blóðkorn 3Eftir þrjá til fjóra daga hafa hvítu blóðkornin orðið að „vígmóð- um“ frumum Þannig verða hinar „vígmóðu “ frumur til. I einn mánuð er sjúklingurinn tengdur bióðdælu í fjóra tima daglega. Hún síar út hvít blóðkorn, sem með Interleukin eru gerð „vígmóð“ og þau ráðast síðan á krabbameinsfrumurnar, eftir að sjúklingurinn hefurfengið þau í æðar sér aftur. Allt að 10 lítrar af vökva hafa stundum safnast í lungum, lifur og nýmm. Afleiðing- amar vom öndunartmflanir. Þá er einnig sá ókostur við læknismeðferð með Interleukin-2, hversu lítið af efninu er tiltækilegt. Rosenberg getur aðeins með- höndlað í mesta lagi átta sjúklinga á mán- uði. Meira Interleukin er ekki til. Það tæki, sem notað er til að sía burt hvítu blóðkom- in, kostar eitt sér 30.000 dollara. Læknis- meðferðin kostar tugi þúsunda dollara. Rosenberg heldur þess vegna rannsókn- um sínum áfram af fremsta mætti. „Við vinnum nú að því að geta ræktað hinar „vígmóðu" frumur, sem svo síðan geti fjölg- að sér sjálfar í blóðinu. Við emm einnig að kanna, hvort hægt væri ef til vill að nota einnig hvít blóðkom frá blóðgjöfum, því að þá losnuðum við við hina dým síunaraðferð." í lyQaiðnaðinum er einnig unnið af mikl- um krafti að þessu máli. Hin stóra erfða- tæknifyrirtæki leita stöðugt betri aðferða til að framleiða meira Interleukin-2. Það væri einnig hægt að nota það, þegar ónæm- isrfi líkamans bilar. Og það gæti ef til vill jafnvel læknað alnæmi (aids, eyðni). Banda- rísk heilbrigðisyfírvöld munu opinberlega leyfa notkun þess 1988. Þá ættu væntanlega hinir síðustu efasemdarmenn að vera orðnir sannfærðir. Sv.Ásg-. þýddi úr „BUNTE“ „Vígmóðar" frumur ráðast til atlögu. Hvit blóðkorn ráðast á krabbameinsfnunur (með tindóttum brúnum). LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 1. FEBRÚAR 1986 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.