Lesbók Morgunblaðsins - 01.02.1986, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 01.02.1986, Blaðsíða 8
Sandro Chia. Málarinn ernúSSára ogí þann reginn að flytja alfarinn tilNew York fráítaiíu. ítalinn Sandro Chia er einn af frægustu málur- um nýbylgjunnar svo- kölluðu, þótt myndefni hans séu sízt af öllu ný, en oft úr heimi klass- ískrar listar og goð- sagna. Chia er dæmi um listamann, sem tekizt hefur að síá í gegn og hefur orðið frægur og ríkur á fáeinum árum. Verð á myndum eftir hann er frá 800 þúsund og upp í 2.400 þúsund ísl. krónur. Hann á þrjár vinnustofur: Feiknastóra ris- hæð í húsi við 23. stræti á Manhattan, og þaðan hefur hann gott útsýni yfir Hudson- fljótið og skipakvíarnar; nýbyggt hús með vinnusölum á landsetri einu skammt frá Maður kemst ekki hjá því að sjá, að Chia er hrifinn af andstæðum, lætur heill- ast af hinu margræða, af þverstæðunum. Ein stofan í íbúð hans í New York er troð- full af húsgögnum, öll blámáluð (hann keypti þau fyrir fáeina dollara í einhverri skranbúð). Annað herbergi er næstum því tómt — þar stendur aðeins einn vasi með blómum á gólfinu og einn stóll, sem jakki hefur verið hengdur á. Einn daginn borðar Chia einn hamborgara í sjoppu á næsta götuhorni, næsta dag snæðir hann uppá- klæddur að evrópskum sið hina dýrðleg- ustu máltíð á góðum veitingastað fyrir hundrað dollara. Hann málar geysistórt málverk, sem bandarískt listasafn hefur pantað hjá honum, og jafnframt þessu verkefni er hann að fást við að mála and- litsmynd ljóðskáldsins Arthurs Rimbaud með lakklitum, og myndin er vart stærri en lófi málarans. Hann tekur sér flugfar með Concorde-þotu til Parísar til þess að fara í klukkutíma göngutúr á Signubakka — og þá vitanlega á Vinstri bakkanum. Á Manhattan glymur í eyrum hans allur hávaðinn frá Hudson-skipakvíunum, en úti í Rhinebek er hann umvafinn kyrrð skógar- ins. Hann á einn kött, því að hundur gæti raskað ró hans með gelti og ýlfri. Hann hefur yndi af traustum, vel gerðum hlut- um: sveitasetri í fögru umhverfi, bifreið af gerðinni Eagle GM, Mercedes 200, jeppa- bíl, vélknúnum snjósleða, Hondu VRX, Berettu — því að hann veit fátt skemmti- legra en að iðka skotfimi. Hann hefur auðvitað sérstakt dálæti á New York vegna þeirra andstæðna, sem borgin hefur upp á að bjóða: Á þessum stað hafa allar hugsanlegar öfgar mælt sér mót, hafa runnið saman og oft á tíðum ummyndast í einstaka og ævintýralega feeurð. Það er allt að því svolítið undrunarefni, að þessi rétt 38 ára gamli ítali frá Flórens skuli á fáum árum hafa aflað sér heims- frægðar. Því að hann heldur hvorki neinar bramboltsýningar, né heldur hefur hann tekið upp á því að reifa Metropolitan Museum inn í voðir til þess að vekja á sér athygli fjöldans, og ekki ástundar hann að logsjóða risastórar stálplötur saman, ekki stendur hann að neinum dulúðgum launhelgunum með kynsvalli sem ívafi. Við opnum sýninga á eigin verkum er honum gjarnara að láta ósköp lítið á sér bera; hann hrækir ekki framan í neinn gagn- „Konan og hetjan “ 2.80x3 metrar, frá árinu 1983. Gama nantmrogð neitirþessi mynd eftir Chia og erfráárinu 1981. Hér er barizt, en eins ogsjá máafböfði kvenverunnar, erhún ekki venjulegkona, en hefur einbrerja tálcnræna merkingu. Rhinebek, sem hann festi kaup á fyrir skömmu. Það tekur um það bil hálfan annan tíma að aka þangað frá New York. Og svo á hann stóra vinnustofu í Roncig- lione skammt frá Róm, og þar er hann vanur að dvelja yfir sumarmánuðina. Hann hefur í hyggju að taka á leigu húsnæði með hentugri vinnuaðstöðu í París næsta ár. Hann er einkar hrifinn af umskiptum, breytingum — en um leið af staðfestu hlutanna. Af hinu frábrugðna og hinu óum- breytanlega. „Þegar ég loka dyrunum að baki mér,“ segir hann, „og er einn með myndunum mínum, þá finnst mér ég vera heima hjá mér, alveg sama hvar ég er staddur í það og það skiptið. Allt annað er þá gleymt og mér horfið." Hann hefur dálæti á andstæðum: Þegar hann fer eitthvað út að loknu dagsverki sínu, tekur hann kyrrð skógarins með fögnuði eða sækir uppörvun og brýningu í allan þann manngrúa, sem flæðir um götur Manhattan og þau margbreytilegu svip- brigði, sem fyrir augu ber. Nútímamálari á Ferð Og Flugi rýnenda, og hann er ekki einu sinni kyn- hverfur. Það eru eingöngu myndirnar hans, sem hafa aflað honum frægðar, myndir af mönnum, myndir úr mannlífinu, myndir sem lýsa trúnaðartrausti og fögnuði yfir tilverunni. List Chias Laus Úr Viðjum Tímans Viðfangsefni Sandros Chias eru ekkert sérlega óvenjuleg í sjálfu sér: „Smalinn", „Konan og hetjan", „Vatnsberinn", „Tveir elskendur", „Maður að hanastélsdrykkju", „Tveir vangefnir", „Maður að skjóta upp flugeldum", „ókátur ferðamaður". En það, sem einkennir alla þessa persónugervinga Chias, er að þeir eru hugfangnir af lífinu og tilverunni, beinlínis heillaðir af jarðn- eskri tilvist sinni, djúpt snortnir andspæn- is hinum óendanlega alheimi. Jafnvel maðurinn í málverkinu „Bein, líkkista, gröf“ lætur ekki í ljós neinn ótta, þrátt fyrir skuggalegt heiti myndarinnar, heldur öllu fremur vissa forvitni, eftirvæntingu. Sama er að segja um manninn, sem steypir sér á höfuðið ofan í blátt vatnið í hellinum, Goðsagnaverur og gras af seðlum

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.