Lesbók Morgunblaðsins - 31.05.1986, Síða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 31.05.1986, Síða 2
H I L S A E Um líffræðilega eiginleika þessa efnis, sem nauðsynlegt er til þess að halda heilsu, ener jafnframt eitt af eitruðustu frumefnunum Eftir Stefán Niclas Stefánsson Fái Ukaminn ekki nægilegt magn af selen, er hætta & skortseinkennum. Ótrúlega marga sjúkdóma má rekja til skorts á selen. SNEFILEFNIÐ , SELEN Arið 1817 var frumefnið selen uppgötvað af Svíanum Jöns Jacob Berzelius (1779-1848). Aðeins 6x10 6 % af jarð- skorpunni er selen, og er því mjög misdreift um jörðina. Þannig er jarðvegur í vissum fylkj- um Bandaríkjanna mjög selen-ríkur, en afar selen-snauður í öðrum fylkjum. í Skandinav- íu er jarðvegurinn mjög snauður af selen. Það var ekki fyrr en árið 1957, að full vissa fékkst fyrir því, að málmleysinginn selen er mikilvægt snefilefni, jafnt fyrir menn sem dýr. En snefilefni eru frumefni, sem líkaminn þarfnast daglega, í örlitlu magni. Magn þessara efiia í fæðu er einnig lítið. Fái líkaminn ekki nægjanlegt magn snefilefna, er hætta á skortseinkennum. Af öðrum snefilefnum má t.d. nefna kóbalt, króm, kopar, molybden, kísil, zink, joð, flúor og jám. Selen reyndist í senn vera nauðsyn- legt snefilefni, jafnframt því að vera eitt af eitruðustu fhimefnunum. Það sýndi sig að ýmsir sjúkdómar, svo sem vöðvaiýmun beinagrindarvöðva, nýma- oglifrarskemmd- ir, hjartavöðvarýmum af völdum hyalín- niðurt>rots í vöðvatrefjum (dystrophic cal- cification), taugaskemmdir og treflamyndun í briskirtli (pancreatic fibrosis) stöfuðu bein- línis af selen-skorti. Einnig reyndist of hár blóðþrýstingur í vissum fylkjum eiga rót sína að rekja til selen-skorts. Flestum þessara sjúkdóma má að visu halda í skefjum með E-vítamíni, að undanskildri treflamyndun í briskirtli, sem einvörðungu stafar af selen- skorti. Selen hefur einnig mikilvægu hlutverki að gegna sem dýralyf. Það er notað til að lækna og meðhöndla vöðvarýmun í beina- grindarvöðvum, s.k. hvítvöðvaveiki (white muscle disease), hjartavöðvaiýmun (mic- roangiopathy) og „lifrar-dystrofi“ í svínum, kálfum og Iömbum. Einnig er selen gefíð við ákveðnum heilasjúkdómi (encephalo- malaci) í kjúklingum. Selen má gefa, ýmist eitt sér eða með E-vítamíni. Bæði efnin vinna saman að þvf að vemda líkamann gegn skaðlegum áhrifum súrefnis. Oftast er selen gefið sem natríumselenít eða natr- íumselenat, en einnig tengt lífrænum efna- samböndum. SINDUREFNI Árið 1972 komust menn að því að selen er hluti af lífsnauðsynlegu enzymi er kallast glutathionperoxidasi. Hvert mólekúl af glutathionpreoxidasa inniheldur §ögur sel- enatóm. Þetta enzym breytir skaðlegum líp- íðperoxíðum, er myndast við efnaskipti fjöló- mettaðrar fitu i skaðlausa alkóhóla. Enzy- mið notar efnasambandið glutathion, til að breyta lípíðperoxíðunum. Peroxíðin eru mjög óstöðug og geta auðveldlega klofnað og myndað svokallaða radíkala, öðm naftii sindureftii. Sindurefni cru efnisbrot sem myndast við sundmn annarra efna. Þetta á sér einmitt stað við þránun fjölómettaðrar fitu. Það er því mjög mikilvægt að peroxíð- unum sé eytt, áður en þau ná að mynda sindurefni. E-vítamín dregur einnig úr þrán- unarhraða ómettaðrar fitu og er því þráa- vamarefni. Það kemur fyrir í ríkum mæli í jurtaolíum og bætir þar með geymsluþol þeirra. Fiskolíur innihalda hins vegar minna magn af E-vítamíni. E-vítamín og selan auka einnig stöðugleika A- og C-vítamíns og amínósýranna cysteins og methioníns. Ennfremur ver selen prótein gegn oxun, þ.e. skemmdum af völdum súrefiiis, og er talið að enzymið glutathioperoxidasi gegni því hlutverki. Veiði skortur á fyirnefndu enzymi í rauðu blóðkomunum, mynda blóðflögumar kekki og hætta á blóðtappamyndun eykst, enda hefur mesta selen-magn hjá manninum mælst í blóðflögum og skjaldkirtli. Gluta- thionperoxidasi tekur auk þess ríkan þátt í eftiaskiptum prostaglandína. Þar að auki safnast selen í lifur, nýru og briskirtil. Selen kemur einnig fyrir í sjónu augans. Staflaga hlutar sjónunnar skynja birtustyrk, og eru notaðir til sjónskynjunar í lítilli birtu. í ysta lagi stafanna hefur glutathionperoxidasi fundist í örlitlu magni. Komið hefur í Ijós að dýr sem hafa góða sjón hafa u.þ.b. 100 sinnum meira selen í sjónunni en þau sem sjá illa. Ef til vill er það vegna þess að selen eykur stöðugleika A-vítamíns, eins og ég gat um hér áðan. En eins og flestum er kunnugt, gegnir A-vítamín mjög mikilvægu hlutverki fyrir sjónina. HJARTAÐ Þarf Selen Því meiri áreynslu sem hjartavöðvinn verður fyrir, þeim mun meiri þörf er fyrir selen, til að veijast frumuskemmdun, én ýmis hrömunareinkenni eru einmitt talin stafa af þránun viðkvæmra vefja. Á vissum svæðum í Finnlandi þar sem selen-magnið í jarðvegi er mjög lítið, hafa menn veitt ví athygli að tíðni hjartaáfalla er afar há. héraði nokkm í Kína þar sem lægstu selengildi hafa mælst í jarðvegi, kom upp sérkennilegur hjartasjúkdómur á ámnum 1973—1974, er einkum lagðist á böm. Sjúk- dómurinn var nefndur Keshan-veikin eftir héraðinu, þar sem veikinnar varð fyrst vart. Veikin olli hjartavöðvarýmun sem dró helm- ing bamanna til dauða og flest þau er eftir lifðu, hlutu varanlega örorku. Nú fá yfir 700.000 böm á þessu svæði natríum selenít vikulega og sjúkdómurinn er úr sögunni. Selen er einnig hluti af ónæmiskerfinu og kemur auk þess fyrir sem selen-innihald- andi prótein í vöðvum, s.k. selen-prótein. Greinilegt samband hefur og fundist milli selens og sjúkdómsins MS eða heila- og mænusiggs. Þar sem lítið selen-magn er í jarðvegi er tíðni MS há. Að vísu verður að hafa í huga að fleiri þættir em taldir hafa hér áhrif. En það hefur löngum vakið at- hygli hve tíðni MS er breytileg eftir land- fræðilegri legu. Hið umdeilda fyrirbrigði „oral galvan- ismi“ lýsir sér sem eitmnareinkenni, er koma fram hjá mörgum sem hafa svokallað- ar amalgam-tannfyllingar, en þær innihalda kvikasilfur. Dr. Erland Johannsson og Ulf Lindh dósent við Gustaf Wemers-stofnunina í Uppsölum, hafa í samvinnu við tannlækna, rannsakað þetta fyrirbrigði um nokkurra ára skeið. Þeir komust að þeirri niðurstöðu að magn kvikasilfurs í hvítum og rauðum blóðkomum þeirra, er þijáðst höfðu af „oral galvanisma", minnkaði vemlega eftir selen- gjöf og sjúkdómseinkennin hurfu. Ástæðan var sú að selen gat bundist kvikasilfrinu, sem úr tannfyllingunum kom og gert það óvirkt. Selen getur einnig dregið úr eitur- áhrifum annarra þungra málma, svo sem kadmíums og blýs. Sé selen gefið með þessum málmum, getur það meira að segja afstýrt áhrifum banvænna skammta þeirra, í tilraunadýrum. Þetta á við um kvikasilfur, hvort sem það kemur fyrir sem ólifrænt salt eða lífrænt efnasamband, t.d. metyl- kvikasilfur. Selen Og Krabbamein Á svæðum þar sem nægjanlegt selen- magn kemur fyrir í jarðvegi og fæðu, hafa rannsóknir leitt í ljós áberandi lægri tíðni krabbameins. Hjá krabbameinssjúklingum hafa selen- og glutathionperoxídasagildi í blóðvökva mælst lág. Á þetta einkum við um krabbamein í bijósti, ristli og brisi. Hjá spendýrum hefur komið í ljós að selen dregur verulega úr áhrifum krabbameinsvaldandi efna. Nýlegar rannsoknir benda til þess að selen geti dregið úr skaðlegum áhrifum fúkalyfs- ins gentamycíns á nýmastarfsemi, m.a. vegna þess að það eykur stöðugleika líf- fræðilegra himna. Þetta leiðir til minni út- skilnaðar próteina, úr leysikomum (Iyso- somes) og hvatberum (mitochondria) í þvagi. Helstu fæðutegundir, er innihalda selen em: Sjávarafurðir, kjöt, hvítlaukur, gróft kom og vissar sveppategundir. Nýting sel- ens úr meltingarvegi er góð, og er dagleg selen-þörf líkamans talin liggja á bilinu 50—200 míkrógrömm. Þeir sem aukna þörf hafa fyrir selen em: ) Þeir sem em í megmn. 2) Þeir sem drekka mikið áfengi og tapa þar með miklu magni snefilefna, elektro- lýta og vatnsleysanlegra vítamína. 3) Sykursýkissjúklingar, en þeir tapa einn- ig miklu vökvamagni úr líkamanum. 4) Þeirsemfengiðhafahjartaáfall. 5) Krabbameinssjúklingar, sem gangast undir geislameðferð og meðhöndlaðir em með krabbameinslyflum. 6) Svo og sjúklingar sem þurfa að fá næringu í æð í lengri tíma. Fæst í TÖFLUFORMI Selen hefur verið mjög til umræðu víðast hvar erlendis á undanfömum ámm og hafa mörg dagblöð og tímarit birt greinar um þessar athyglisverðu niðurstöður síðustu rannsókna á þessu merka frumefni. Stutt er síðan farið var að selja vítamíntöflur hér á landi, sem innihalda snefilefnið selen, en slíkar töflur hafa um árabil verið á markaði erlendis. Enginn skyldi þó ætla eftir lestur þessarar greinar, að selen sé eitthvert undralyf, sem sé ömgg vöm gegn krabbameini og hjarta- sjúkdómum. Selen er aðeins eitt af mörgum snefilefnum sem líkamanum em nauðsyn- leg, í örlitlu magni, til þess að hann geti starfað eðlilega. Of stórir skammtar af selen eða eftiasamböndum þess, valda hins vegar selen-eitmn, er lýst getur sér sem hárlos, ljósfælni, skemmdir á lifur, nýmm, melting- arfærum, hjarta og lungum. Ég hef í þessari grein leitast við að varpa ljósi á þýðingu selens fyrir lfkamann og greint frá því helsta sem í dag er vitað um þetta snefilefni, en umfangsmiklar rann- sóknir á líffræðilegum eiginleikum þess fara nú fram víða um heim. Það er því ekki ólík- legt að þekking okkar á hlutverki selens í líkamanum eigi eftir að aukast á komandi ámm. NOKKRAR HEIMILDIR — Hagers Handbuch Der Pharmazeutischen Praxis, VI. Band (363-365), 1977. — Prevention of Keshan cardiomyopathy by sodium selenite. Nutrition Reviews 38:278—279,1980. — Selenium-eontaining glutathione peroxidase: Its synthesis and function in arachidonate metabolism. Nutrition Revicws 39.21—23,1981. — Ngaha, E.O., Ogunleye, I.O. & Madusolumuo, M.A. Protection by selenium against gentamicin-induced acute renal damage in rat. J. Biochem. 96, 831-837,1984. — Baker SS, Lerman RH, Krey SH, Crocker KS; Hirsh EF & Cohen H: Selenium deciciency with total parenteral nutrition. Am J Clin Nutr 1983; 38:769-774. — Bunce, G.E. Nutrition and cataract. Nutrition Reviews 37:337-842,1979. — Dutta SK, Miller PA. Greenberg LB & Levander OA. Selenium and acute alcoholism. Am J Clin Nutr 1983:38:713-718. Stefán Niclas Stefánsson er lyfjafræðingur.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.