Lesbók Morgunblaðsins - 31.05.1986, Qupperneq 4
Tónlistarhúsið í Colorado Springs, Pikes Peak Center, minnir talsvert á þjóðleikhúsið okkar í ytra útliti, en er gerólikt að
innan, enda byggt sem albliða tónlistarhús fyrirsmáa sem stóra konserta, svo og óperu.
Hús tónlistarinnar
alhliða eða úrelt
Aður en langt um líður
verður tekin ákvörðun
um, hvaða form verður
á Húsi tónlistarinnar —
hvort byggt verður
gamaldags hús fyrir
tónleika einvörðungu,
eða hvort það verður
haft alhliða eins og nú
tíðkast víða um heim og
getur þá hýst hverskonar
tónleika og
óperuflutning einnig. Án
þeirrar lausnar er varla
um rekstrargrundvöll að
ræða.
EftirJúlíus
Vífil Ingvarsson
Listahátíð sem hefst í dag verður kunngert
hvaða arkitekt hefur unnið samkeppnina um
hönnun tónlistarhúss á íslandi. Verður mjög
spennandi að heyra þau úrslit og sjá vinnings-
tillöguna. Ýmislegt mun þar þó ekki koma á
óvart. í leiðbeiningarbæklingi sem sendur
var arkitektum þeim sem taka vildu þátt í
samkeppninni eru settar ákveðnar reglur
um hið fyrirhugaða hús tónlistarinnar. Af
þeim er augljóst að óperuflutningur mun
ekki skipa háan sess í starfsemi hússins.
Meðal annars er ekki gert ráð fyrir leik-
tjaldatumi yfir sviði hússins né sviði af
fiillkominni stærð og gerð. Eru þetta mistök
sem verða ákaflega dýrkeypt verði þau ekki
leiðrétt. Hvar sem tónlistarhús era reist á
seinni áram era notkunarmöguleikar þeirra
nýttir til fulls svo að hús þessi geti orðið
virkar miðstöðvar, iðandi af látlausri list-
sköpun. Þekking á hljómburði og frelsi í
húsagerðarlist hefur aukist gífurlega. Hvort
tveggja á að nýta sér við hönnun tónlistar-
hússins til að árangur verði sem bestur.
HvaðUm
Rekstrargrundvöllinn?
Það hefur engin þjóð efni á að reisa 350
milljón króna stórbyggingu til að þar verði
sinfóníutónleikar tvisvar í mánuði og lítið
meira. Því miður er hætta á að „Kröfluvirkj-
un tónlistarinnar" muni að óbreyttri stefnu
rísa og það mun verða eftir á, svo sem
endranær, sem við áttum okkur á að fram-
leiðslan, sem í þessu tilfelli verður tónlistin,
er langt undir áætlun. Þá hefur þjóðin reist
sér gamaldags og reyndar úrelt tónlistarhús,
sem er óþörf tímaskekkja.
Fáir leggja orð í belg um þetta mál. Trú-
lega ræður því misskilin tillitssemi. Menn
vilja síður styggja hljóðfæraleikara Sinfón-
íuhljómsveitar Islands sem loksins eignast
samastað. Auk þess mætti misskilja gagn-
rýnin skrif á tónlistarhúsið sem fjandsam-
legt níð um þetta framtak og jafnvel tónlist-
ina í heild. Þessu er öfugt farið. Fjandmenn
listarinnar þegja og grafa þar með listinni
gröf. Listvinimir Jón Þórarinsson tónskáld
og Sveinn Einarsson leikstjóri m.m. og
fyrrverandi Þjóðleikhússtjóri lýstu því yfir
í blaðagreinum í Morgunblaðinu að þeir
teldu tónlistarhúsið ekki rísa undir nafni
nema í því væri óperastarfsemi.
Samtök um byggingu tónlistarhúss og
allir þeir sem tónlist unna vilja veg þess
húss sem mestan. Ekki aðeins sem fallegs
húss í höfuðborginni, heldur miklu frekar
að hlutur þess í ísiensku tónlistarlífí verði
risafenginn. Samtökin eiga þess vegna að
vinna að því að gera tónlistarhúsið að heim-
ili óperalistamanna auk heimilis Sinfóníu-
hljómsveitarinnar. Eiga hljóðfæraleikarar
og söngvarar enda mikla samleið. Lítill vandi
er að breyta þeim teikningum af tónlistar-
húsinu sem nú liggja fyrir, að samkeppninni
lokinni. Þær era kynningarteikningar sem
fullunnar verða á næsta einu og hálfu til
tvejmur áram og því tími til stefnu.
Áður en tónlistarhúsið rís munu söngvar-
ar vonandi hafa hlotið sitt langþráða at-
vinnuöryggi. Óperasöngvarar era einu sviðs-
listamenn þjóðarinnar sem ekki eiga neina
möguleika á að lifa af list sinni. Hefur ísland
algjöra sérstöðu meðal Evrópuþjóða að
þessu leyti.
Tónlistarhúsið _á að vera hluti af framtíð-
arsýn óperalífs á íslandi og byggt í samræmi
við það. Stærsta von þess felst í því.
Það blandast engum hugur um að tónlist-
arhúsið á að vera veglegt hús, annað er
ekki sæmandi. Fyrst og fremst tónlistarinn-
ar vegna, en líka vegna þess að góð tónlist-
arhús verða heimsþekkt og era landkynning
afbestatagi.
Auk þess sem breyta þarf teikningum
tónlistarhússins I samráði við óperasöngvara
þarf að skoða með hvaða skipulagshætti
óperalistamenn eiga að starfa innan hússins.
Er það atriði sem ekki á að þurfa að taka
langan tíma að vinna. Við úrvinnslu þess
verður að hafa í huga þá óperastarfsemi
sem fyrir er í landinu. Framtíðarskipulag
óperannar hér á landi á að vera framhald
núverandi starfsemi, en ekki aðskilin og
alls ekki mótvægi.
Tónlistarhúsið
í Kitchener í Kanada
- þverskurður -
Hlerartil að loka sviðsturni.
Rúllutjöld úr hljóðgleypandi efni
eru á veggjum salarins.
Loftið í aftari hluta salarins er
hannað til að endurkasta hljóði.
Geymsla fynr
sætaraðir
, Svalir. Framhlið þeirra er hönnuð
með endurkast tónsins í huga.
Stjórnborð fyrir Ijós og hljóð er í
salnum.
Hljómsveitargryfja, sem minnir á
Bayreuth.
Hluti sviðsins er lyftugólf og má
breyta þeim hluta sviðsins í
hljómsveitargryfju.
m