Lesbók Morgunblaðsins - 31.05.1986, Page 5

Lesbók Morgunblaðsins - 31.05.1986, Page 5
 Stillanlegir hlerar. Með þeim má stjórna endurkasti tónsins. Ordway Music Theater St. Paul, Minnesota - þverskurður- Gatað stál, til að tónninn endurkast- ist ekki á því. Trégrindur fyrir ósléttum gifspúss- uðum vegg. Hljómsveitargryfjan.i Hluti sviðsins er r lyftugólf og má. breyta þeim hljta sviðsins í hljómsveit- argryfju. Upptökuherbergi Salurinn 1 tónlistarhúsinu í Kitchener í Kanada, sem er alhliða tónlistarhús í nútíma- legum stíl og þykir hafa tekizt mjög vel. Hljómburðinum er hægt að breyta, m.a. með loftplötunum, sem sjást & myndinni, eftir þvi hvort ópera er flutt, eða hljóm- leikar eru íhúsinu. í Kitchener Ontario. Það tónlistarhús er heimili Kitchener Waterloo-sinfóníuhljóm- sveitarinnar. Lögun salar Centre in the Square er sniðin eftir Musikverein-salnum í Vínarborg, sem er einn besti tónleikasalur í heimi. Það sama er gert í tónlistarhúsi okkar og er það skynsamlegt. Hljómburði í Centre in the Square er stjómað með aðferð sem kenna má við rúllugluggatjöld. Endurkaststíma tónsins er stjómað með gljúpum dúkum sem renna má upp og niður eftir veggjum salar- ins. Þessi aðferð er einföld, ódýr og árang- ursrík. í sama tilgangi má stjóma loft- hæðinni á stómm hluta salarins, Er það einnig mjög einfalt. Búnaður sem þessi er nauðsynlegur þegar nota á tónlistarhús tii ólíkra hluta. Verður ekki meira fjallað um þessi hús hér. Þverskurðarmyndir þeirra segja mikið. Um þetta er þó fjallað stuttlega til að undirstrika að stærri þjóðir en íslendingar vilja ekki eða treysta sér ekki til að ráðast í byggingu stórhýsa af þessu tagi nema að nýta þau til fulls. Það er tímabært að fram fari opin um- ræða um tónlistarhúsið. Hástemmdar yfir- lýsingar um nauðsyn byggingar þessarar teijast ekki til gagnlegrar umræðu um nýt- TVÖMERKILEG TÓNLISTARHÚS Tímaritið Architectural Record er fagrit um húsagerðarlist. Á síðustu fimm áram hefur tímarit þetta fjallað um ijögur ný- byggð tónlistarhús í Vesturheimi. Hér er lítillega fjallað um tvö þeirra, en þau era um margt merkileg og rétt að skoða þau með tónlistarhúsið okkar í huga. Ordway Music Theatre í St. Paul í Minne- sota er hvað athyglisverðast í þessu sam- hengi. Er það m.a. vegna þess að það er heimili St. Paul Chamber Orchestra, the Minnesota Opera og the Schubert Club, sem skipuleggur og fjármagnar einleiks- og einsöngstónleika. í þessu tónlistarhúsi verða einnig kórtónleikar, leikrit, söngieikir, ball- ettsýningar og jass- og popptónleikar. Auk þess mun the Minnesota Orchestra halda 20 tónleika í húsinu í vetur. Sviðið í þessu húsi er stórskemmtilega útfært. Því er hægt að breyta á marga vegu og jafnframt má ráða stærð hljómsveitar- gryijunnar. Gólfið undir fremstu sætaröðum áhorfendasalarins er á tjökkum og má lækka það niður um eina hæð. Sætaraðimar á þessari gólflyftu er síðan hægt að keyra í geymslu undir áhorfendabekkjunum. Er þá lyftugóifíð, nú einni hæð undir gólfí áhorf- endasalarins og sætalaust, orðið að gólfí hljómsveitargryQunnar. Ef stækka þarf sviðið er að hiuta farin sama ieið. Gólflyftan er iækkuð um eina hæð og sætaraðimar keyrðar af í geymsluna. Síðan er lyftan hækkuð þar til gólf hennar er jafnhátt sviðs- gólfínu. Með því að skipta gólflyftunni í sjálfstæða reiti má fá út ótal möguleika. Þau ijögur hús sem nefnt var að fjallað væri um í Architectural Record hafa öll gólflyftutækni þessa. Til að auka fjölbreytilega notkun Ordway Theatre er sviðsmynd sú sem notuð er á tónleikum flutt fram og til baka á loftpúðum. Þegar ekki þarf að nota sviðsmynd þessa Séð yfir salinn og inn á sviðið í Ordway Music Theater í St. Paul í Minnesota. Þetta er alhliða hús, sem hægt er að gera geysilega víðtækar breytingar á, en í útlitinu hafa arkitektamir Benjamin Thompson & Associates haldið sig við gamal- kunna formúlu. er hún geymd í heilu lagi aftast á sviðinu. Má þannig breyta Ordway Theatre í tón- leikasal á fáeinum mínútum. Tónleikasviðs- myndin er auðvitað fyrst og fremst hönnuð með hljómburð í huga. Hijómburðinum ErStjórnað Annað hús sem athyglisvert er í tengslum við tóniistarhúsið er Centre in the Square ingu þess og innra skipulag. Það er þó aðalatriði, nú þegar tekin hefur verið ákvörðun um að reisa hús tónlistarinnar. Ákafinn einn, svo nauðsynlegur sem hann er, má ekki ráða ferðinni. Hjá því verður ekki komist að taka inn í umrseðuna hina bágbornu stöðu óperusöngvara á íslandi. Höfundur er formaður óperudeiidar Félags íslenskra ieikara, sem er stéttar- og hags- munafélag óperusöngvara. Kristín Ómarsdóttir Hvít Ijósaskipti Það eru engar stjömur Himinninn galtómur Tæmdistígær Éggeng með regnhlíf á íssléttrijörð úrplasti enginn skuggi áfram einn áfram tveir Og það fjúka kom íþurraugu mín áfram þríráfram ffórir Það eru engar hæðir barahvíttryk hvíttmý Éggeng með regnhlíf skrefíþögn áfram einn þangað áfram tveir íátt til þín sem átt ekkert handa mér Kristín Ómarsdóttir vann 1. verðlaun í ein- þáttungakeppni Þjóðleikhússins sl. vetur. Hún býr í Kaupmannahöfn. Guðbergur Aðalsteinsson Vorljóð Vorið er komið í bæinn góðan daginn með nefrennsli ogkvef eins og vanalega stórhættulegt í umferðinni ígömlu strigaskónum fráífyrra oghittifyrra oghitti- hittifyrra fullt afbjartsýni þráttfyrir allt Lóa með brenglað tímaskyn skýstfyrirhorn fjölmiðlamir þenja út brjóstið ogsyngja: dirrin dí Guðbergur Aöalsteinsson er rithöfundur og býr á Vatnsleysuströnd, LESBÖK MORGUNBLAÐSINS 31. MAl 1986 5

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.