Lesbók Morgunblaðsins - 31.05.1986, Page 6
Ráð til að hætta
reykingum
EFTIR ÁSGEIR R. HELGASON
Fyrsta skrefíð er að ákveða að hætta reykingum.
Reyndu að gera þér grein fyrir því hvers vegna
þú vilt hætta og skráðu hjá þér ástæðurnar.
Þessa skrá skulum við kalla Skrá 1. Hafðu
þessa skrá ávallt handbæra og bættu inn nýjum
Óteljandi dæmi sýna
og sanna, að fólk getur
hætt að reykja ef það
vill. En það eru til ýmis
góð húsráð til að gera
það auðveldara.
ástæðum eftir því sem þær skjóta upp kollin-
um.
Byijaðu á því að ákveða dag með góðum
fyrirvara t.d. mánuð fram í tímann. Lengri
tími er þó æskilegur. Gott er að miða við
einhvem merkisdag í lífi þínu, t.d. fæðingar-
dag eða brúðkaupsafmæli. Þann dag ætlar
þú að hætta aðreykja.
Strax og þú hefur ákveðið daginn skaltu
byrja á að mynda reyklaus svæði. Hættu
alfarið að reykja á þeim stöðum þar sem
þú dvelst lengst, í flestum tilvikum er þar
um að ræða heimili, vinnustað og e.t.v. bíl-
inn. Þegar þú hefur einu sinni ákveðið að
tiltekinn staður skuli vera reyklaus, máttu
ekki hvika frá því hvað sem á dynur. Reyk-
laust svæði táknar ekki endilega að aðrir
megi ekki reykja þar heldur á það fyrst og
fremst við þig. Það ert þú sem hefur ákveð-
ið að hætta að reykja. Ef þú gerir sem flest
svæði reyklaus sem fyrst máttu vera alveg
viss um að baráttan við löngunina verður
mun auðveldari eftir að þú hættir. Ef þú
ert stödd (staddur) á reyklausu svæði, t.d.
heimili þínu og löngunin er alveg að sliga
þig verður þú annað hvort að standast
löngunina eða bregða þér út fyrir, t.d. út á
svalir eða út á tröppur til að fá þér reyk.
Mundu að því fleiri sem reyklausu svæðin
eru og því lengra sem líður frá myndun
þeirra og þar til þú hættir, þeim mun auð-
veldari verður baráttan við tóbakslöngunina
þegar þú hættir alveg að reykja.
ATFERLISKÖNNUN
Skrá2:
Meðan á undirbúningstímanum stendur
skaltu reyna að fylgjast sem gerst með
því hvað það er öðru fremur sem vekur hjá
þér löngun í tóbak. Skráðu hjá þér hvaða
matar- og drykkjartegundir, persónur eða
aðstæður kalla mjög oft á löngun í tóbak.
Reynslan hefur sýnt að langanir manna
stjómast að mjög miklu leyti af slíkum
utanaðkomandi þáttum en það er algerlega
einstaklingsbundið hvað vekur löngun hjá
hverjum. Þannig getur kaffi vakið mikla
löngun hjá einum en dregið úr löngun hjá
öðrum. Þú verður því að finna út og skrá
hjá þér hvað það er sem vekur löngun hjá
þér. Þessa skrá skulum við kalla Skrá 2.
Skrá3:
Samhliða því sem þú reynir að gera þér
grein fyrir því hvað það er sem vekur hjá
þér löngun, skaltu skrá hjá þér þau svæði
og aðstæður sem tengjast ekki reykingum.
Öll eigum við slík svæði, þ.e. okkar „grið-
helgu staði" þó þeir séu mismargir eftir
því hver í hlut á. Það reykja t.d. fæstir í
sturtu eða sundi. Sumir reykja aldrei í
svefnherberginu eða úti á götu, o.s.frv.
Þessa skrá skulum við kalla Skrá 3.
H-dagur.
H-dagur er dagurinn sem þú hefur valið
til þess að hætta að reykja. Að morgni
H-dags skaltu henda öllu tóbaki og reyk-
færum í ruslið. Þú ert hætt(ur) að reykja.
Frá og með þessari stundu þarft þú stöku
sinnum að beijast við löngun í tóbak. Hve
mikil og langvarandi löngunin er fer eftir
því hver í hlut á, engin algild regla er til
um það (sjá í síðari hluta greinarinnar um
„löngunarkveisur").
RÁÐ TlL AÐ DRAGA
ÚrLöngunum
Þó að erfitt sé að gefa algild ráð til að
draga úr löngunum manna eru nokkur ráð
algildari en önnur, þ.e. eiga við um flesta
menn. Nokkur slík ráð eru til við tóbakslöng-
un en þau helstu eru:
1. Farið út (eða út í glugga), og andið að
ykkur fersku lofti, dragið andann djúpt
og fyllið Iungun a.m.k. 5—10 sinnum.
Andiðrólega.
2. Drekkið kalt vatn, eins mörg glös og þið
getið.
3. Hafið tannburstann ávallt handbæran,
og burstið tennur sem oftast upp úr
sterku mentól-tannkremi.
4. Hafið eitthvað (t.d. penna) í höndum.
5. Hafið mentól töflur við höndina.
Þó að þessi nokkuð algildu ráð geti verið
handhæg skipta mestu máli þau ráð sem
taka mið af þínum eigin persónulegu þörfum
en þau eru:
I. Hafið skrá 1 ávallt handbæra.
II. Notið skrá 2 og 3 eins mikið og mögu-
legt er og haldið áfram að fullkomna
skrámar eins lengi og þörf krefur.
III. Fyrir alla muni verið góð við ykkur og
sleppið ekki öðru en því sem óumflýjan-
lega tengist löngun í tóbak. Því full-
komnari sem skrá 2 er þeim mun betri
getið þið verið við sjálf ykkur. Farið
sem oftast í leikhús eða á tónleika eða
gerið eitthvað annað sem veitir ykkur
ánægju svo fremi það vekji ekki óvið-
ráðanlega löngun í tóbak.
Fráhvarf seinkenni.
Margir greina frá líkamlegum og sálræn-
um fráhvarfseinkennum við það að hætta
að reykja. Algengustu fráhvarfseinkennin
eru:
Skapsveiflur.
Handskjálfti.
Rangskynjanir.
Svefntruflanir.
Doði.
Ofnæmisviðbrögð.
Svitakóf.
• Fá allir fráhvarfseinkenni?:
Nei, það er langur vegur frá. Sumir fá
alls engin fráhvarfseinkenni, aðrir fá eitt
eða tvö, en sumir fá nánast öll fyrmefnd
einkenni og fleiri til.
• Er hægt að koma i veg fyrir frá-
hvarfseinkenni?
Engin leið er til að fyrirbyggja með vissu
að fráhvarfseinkenna verði vart, en dragi
menn mikið úr reykingum nokkm áður en
hætt er minnka líkumar á fráhvarfi vem-
lega. Myndi menn reyklaus svæði eins og
fyrir er lagt, dregur það yfirleitt nógu mikið
úr reykingum til þess að minnka líkur á
fráhvarfi vemlega.
• Standa fráhvarfseinkenni lengi yfir?:
Það ferð algerlega eftir því hvers konar
fráhvarfseinkenni um er að ræða. Misjafnt
er hvenær fráhvarfseinkenna verður vart
komi þau á annað borð fram en eftir að þau
koma fram líður allt frá einum degi upp í
þijár vikur þar til þau hverfa að fullu. Hand-
skjálfti, rangskynjanir, doði og svitakóf
hverfur yfirleitt á einum til þrem dögum.
Skapsveiflur geta staðið yfir í nokkrar vikur,
en lengra verður á milli kasta eftir því sem
frá líður og tímabil hvers kasts styttist mjög.
Reyndu að gera umhverfinu grein fyrir
ástæðum skapsveiflanna til þess að valda
ekki óþarfa hugarangri. Ofnæmisviðbrögð
hverfa yfirleitt á nokkmm dögum. Svefn-
truflanir geta lýst sér bæði í óeðlilega
miklum svefni eða óeðlilega litlum svefni.
Hvort tveggja getur verið bagalegt til lengd-
ar. Svefntmflanir geta varað í allt að tvær
Við tölum um „hinn
upprétta mann“ sem
var liður í þróuninni
fyrir margt löngu. Ef
nútímamaðurinn er
sviptur öllum tíma
sínum og látinn
þræla myrkranna á
milli til að geta
fullnægt frumþörfum
sínum, þá er hann
naumast uppréttur
lengur.
Hinn
Það er mikið talað um
nútímamanninn; raunar
er alltaf verið að staglast á þess-
um manni, á umhverfi hans og
aðstæðum, réttindum og skyldum,
gleði og sorg — og yfirleitt öllu
sem fólki hugkvæmist að tengja
þessari veru. Ég hef þráfaldlega
velt fyrir mér hver þessi skepna
eiginlega sé; er þetta einhver ný
ættkvísl útfrá hómó sapíens — ef
til vill kölluð hómó módemus? Eða
lítt þekkt apategund? Týndi
hlekkurinn? Er þetta einhver sem
ég þekki? Kannski maðurinn í
næsta húsi? Nei, ég fæ engan
botn í þessar mínar þrásamlegu
vangaveltur. Til þess þó að sjá
einhveijar línur í þeirri ógreini-
legu mynd sem hugur minn geym-
ir af kvikindinu hómó módemusi
fannst mér ekki vitlausara en
hvað annað að leita aftur í fom-
eskju og kanna soldið feril forfeðr-
anna; þeirra sem hafa verið kall-
beygði maður
aðir frummenn.
Hinar íjölbreytilegustu kenn-
ingar eru til um ættfeður okkar
— þá félaga hómó habílis, kró-
magnonmanninn, neanderdals-
gæann, hómó erektus og fíla-
manninn — eða hvað þeir hétu
nú allir saman. Það hafa líka verið
Settar fram ótrúlegustu tilgátur
um hvemig fmmmaðurinnn fór
að orga, syngja og loks tala,
hvemig hann lærði að nota gijót
til að létta sér störf og hvemig
hann uppgötvaði sköpunarmátt-
inn og hagnýtti til að smíða sér
hin ýmislegustu tól sem hann
ekki aðeins notaði í blákaldri lífs-
baráttunni heldur gerði líka með
sín fyrstu listaverk, og leysti þar
með anda sinn úr viðjum brauð-
stritsins.
Að vísu íjölluðu allra fyrstu
myndverk þessara áa okkar
kannski fyrst og fremst um mat
eða a.m.k. það sem þeir snæddu
— eftir að þeir snæddu það; það
er að segja: verkin sýndu matinn
eins og hann var áður en hann.
varð meltingarfærum listamanns-
ins að bráð en myndin varð ekki
til fyrr en að máltíð lokinni: södd-
um og ánægðum fannst lista-
manninum hann skulda mat sín-
um einhveija lofgjörð; hann stóð
því upp frá beinunum, rymjandi
af vellíðan og hóf að draga á
hellisveggina línur sem brátt urðu
að unaðslegum nautpeningi að
leik úti í guðlausri náttúrunni; það
fór mikil natni í þetta verk og að
því loknu gekk afi vor fáein skref
afturábak og virti fyrir sér þetta
fyrsta málverk mannkyns. Hann
hafði ekki horft nema nokkur
augnablik þegar yxn þau sem
hann hafði rist í kalt bergið lifn-
uðu við fyrir augum hans og tóku
á rás í ærslafengnum leik um
endalausar slétturnar. Við þessa
sýn setti svo mikið hungur að
manninum að hann þaut rakleiðis
útá veiðilendur sínar og felldi sér
til matar myndarlegan tarf. Þann-
ig var klaufpeningurinn ekki
framar öllu mótíf í augum hins
listfenga brautryðjanda heldur
matur; lífið og listin voru fyrir
þessum villta manni ein órofa
heild, svölun líkamsþarfanna varð
ekki skilin frá fullnægingu hinna
andlegu; og hringrásin var: Matur
er mynd er matur er mynd er
matur. .. er list er líf er list er
líf. Og svo framvegis frammá
þennan dag.
Og þetta er náttúrulega bara
enn ein tilgátan.
Nú er langt liðið á þá öld sem
hefur hlotið kennitöluna 9 í hinu
nýja nafnnúmerakerfí Hagstof-
unnar, hómó hitt eða þetta er
löngu dauður og hafði enga kenni-
tölu. En má það vera að hann sé
enn á vappi á meðal vor? Að
Neanderdals-króinn frá Þusla-
þorpi gangi aftur hér mitt á meðal
okkar?! Erum við þá enn ekki
vaxin frá magnonundrinu ...?
Til eru tvær yrðingar, annars-
vegar sú að allir menn séu í eðli
sínu villimennn og hinsvegar að