Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 31.05.1986, Qupperneq 10

Lesbók Morgunblaðsins - 31.05.1986, Qupperneq 10
Séð yfir VaJlhólminn á fögrum sumardegi. Heimkynni Maríu voru í Skagafirði. Á löngum vinnumennskuferli fór hún oft bæ afbæ. Maríu þáttur Af einstæðri móður í Skagafirði á öldinni sem leið að mun vera misjafnt, hvað böm eru gömul, þegar þau muna fyrst eftir einhverju, sem gerist í umhverfi þeirra. Ég held að ég hafi verið þriggja ára, þegar ég man fyrst eftir því, sem var að gerast. Ég svaf í miðbaðstofu María Bjömsdóttir var engin frægðarmanneskja. Hún var í æsku tökubam, síðan skráð hreppsómagi, á 16. ári matvinnungur og síðan vinnukona á mörgum bæjum í Skagafirði. Hærra komst hún ekki í mannfélagsstiganum. í vinnumennskunni eignaðist hún börn, en einstæð móðir gat ekki fengið að hafa þau hjá sér. Og þegar hún lézt úr ellihrumleika, var hún enn skráð hreppsómagi. Eftir Björn Egilsson frá Sveinsstöðum og yfirsetukona gekk hröðum skrefum inn gólfið, inn í hjónahúsið, til þess að taka á móti bróður mínum sem þá var að fæðast. Þegar ég var á aldrinum tveggja til sjö ára var gömul kona á heimili mínu, sem var sérstaklega góð við mig og lét sér annt um mig á allan hátt. Hún hét María. Það þótti eftirtektarvert, hvað þessi hálfáttræða kona lét sér annt um mig, sem leiddi til þess, að ég hændist að henni og þótti vænt um hana. Meðfædd móðurumhyggja mun hafa valdið, og líka minningin um syni hennar þtjá, sem höfðu farið til Ameríku fyrir meira en tuttugu árum. Stundum á vetrum var María rúmföst tíma og tíma. Hún svaf í rúmi í miðbað- stofu, móti baðstofudyrunum. í rúmshomi undir sæng átti hún kandíssykur og kallaði á mig til að gefa mér mola. Móðir mín bannaði mér að þiggja kandísinn. Hún óttað- ist að María gamla væri með tæringu. Ég fór ekki eftir fyrirmælum móður minnar. Mér þótti kandísinn svo góður, að ég tók við honum svo lítið bar á og varð ekki meint af. í kirkjubók er skrifað að banamein Maríu Bjömsdóttir hafi verið ellihmmleiki. Ýmsar sögur vom sagðar af okkur Maríu og fer ein þeirra hér á eftir. Á sumrin var María alltaf heima við þegar annað fólk var á engjum og ég var þá með henni. Ég var ekki iátinn fara frá bænum, vegna þess að ég var krampaveikur, fékk stundum krampa í svefni. Um þá veiki mina er það að segja að Jónas Kristjánsson læknaði hana að fullu þegar ég var átta ára. Veturinn 1914 kallaði læknirinn nokkur böm. saman að Sveinsstöð- um, kom þangað, skar eitla úr hálsi og hreinsaði nefkok. Það var ekkert dútlað við að deyfa eða svæfa. Bömin vom látin setjast á stól og maður kraup fyrir aftan stólinn og hélt utan um þau. Athöfnin hófst með því, að læknirinn sagði við krakkann: „Opn- Björn Egilsson frá Sveinsstöðum. Hann kynntist Maríu í æsku og man eftir henni. Líf hennar var ekki sérstætt, en miklu frekar dæmigert fyrir líf fjölda einstæðra alþýðukvenna. aðu ginið geyið mitt“. Svo fór hann með vísifingur ofan í kokið til þess að finna fyrir því, sem átti að nema burtu. Það vom ekki skomir eitlar úr mér, en nefkok hreinsað. Til þess var notað verkfæri með gljáfægðum I 1e ójjvrí sþ 6j5 tgasri 19 frfjST .ftmfe ní stálhring á endanum. Læknisaðgerðin var sársaukafull og óviðkunnanleg meðan á henni stóð, en það borgaði sig að fá fulla heilsu. Ég sýndi engan mótþróa, en einhver krakkinn beit um fingur iæknisins, þegar hann var að skoða kokið. SKRIFUÐ HREPPSÓMAGI1845 Nokkur æviatriði Maríu Bjömsdóttir fara hér á eftir. Hún var fædd að Bjamastaða- hlíð í Goðdalasókn 2. febrúar 1835. Foreldr- ar hennar vom Bjöm Lúðvígsson og Guðrún Gunnlaugsdóttir, vinnuhjú þar. Bjöm Lúðvígsson var þá ekkjumaður kominn til aldurs, 58 ára, hafði áður verið bóndi í Litladalskoti í Tungusveit 1808 til 1816 og í Efra-Lýtingsstaðakoti 1816 til 1823. Móðurafi Bjöms var Bjöm Gíslason bóndi á Valabjörgum, sem hafði viðumefni „halti og harði", nafnkenndur á sinni tíð. Guðrún móðir Maríu var dóttir Gunnlaugs Magnússonar og konu hans Ólafar Jóns- dóttur. Þau bjuggu á Tunguhálsi og Sveins- stöðum, Gunnlaugur dáinn 1832. Ekki er hægt að sjá, að María hafi verið með móður sinni eftir fæðingu, nema þá eitthvað stutt. Á þessum tíma em manntöl ekki til nema á fimm ára fresti. Guðrún móðir Maríu fluttist frá Villinganesi að Tyrfingsstöðum á Kjálka 1837. A manntali 1840 er María á írafelli skráð tökubam og enn er hún þar á manntali 1845, en þá skrifuð hreppsómagi. Árið 1850 er María komin að Litluhlíð og er skrifað í kirkjubók „á 16. ári, matvinnungur, les“. 1851 er María á Breið, en fer þaðan aftur að íra- felli og er þar til 1854. Ekki er hægt að álykta annað en María Bjömsdóttir hafi alizt upp á góðum heimil- um. Fyrst í Bjamastaðahlíð, þar sem foreldr- ar hennar vom í vinnumennsku, hjá Guð- mundi Jónssyni hreppstjóra og fyrri konu hans Guðríði Jónsdóttir, sem var afbragðs- kona talin og síðar á Irafelli hjá Ásmundi Ásmundssyni, er var sonur Ásmundar ríka á Silfrastöðum. í Litluhlfð var María hjá Ólafi Guðmundssyni hreppstjóra. Öll vora þessi heimili ríkisheimili og húsráðendur vel látið fólk á sinni tíð. María Og Reykjar- HÓLS-HANNES 19 ára gömul 1854, fór María burtu úr Goðdalasókn og réði sig í vinnumennsku að Grófargili og þar vom henni örlög búin um sinn. Þetta sama ár réðist vinnumaður að Grófargili, Hannes, oft nefndur Reykjar- hóls-Hannes, sonur Hannesar Þorvaldssonar er lengi bjó á Reykjarhóli og átti mörg böm. Stefán Jónsson fræðimaður á Höskulds- stöðum skrifaði þátt um Reykjarhóls- Hannes er birtist í 2. bindi af ritsafiú hans er Sögufélag Skagfirðinga gaf út 1985. Þar segir svo: „Hannes Hannesson ólst upp hjá foreldr- um sínum og var fermdur vorið 1831. Segir prestur um hann við ferminguna í kirkjubók: „Vel gáfaður til náms og skilnings, rétt vel að sér í kristindóminum, les mæta vel bæði skrift og prent; skikkaniegur." Má kalla þennan vitnisburð prests ágætan um ferm- ingarbam og líklega fágætan á þeirri tíð. Ber og mjög saman um þetta almannarómi og umsögn samtíðar Hannesar, er taldi hann bráðgreindan og vel að sér, skrifara ágætan og vel hagorðan. Sögusagnir segja líka að sæmilega væri Hannes verkfær til starfa þeirra er í hans tíð þurfti að vinna á sveitabæjum, laus í ráði nokkuð, lítið hneigður til fésýslu, en leit löngum hým auga til kvenna." Rétt er það, að Hannes þessi leit hým auga til kvenna. Við ijórar konur var hann kenndur áður en fundum hans og Maríu Bjömsdóttir bar saman. Einni þeirra var hann kvæntur, en hún hljóp frá honum eftir stuttan tíma og þegar eignum þeirra var skipt, varð gjaldþrot. Hannes Hannesson mun hafa verið elztur af bömum foreldra sinna, Hannesar Þor- valdssonar og Rósu Jónasdóttir. Hann var fæddur 1818, en tólf ámm yngri var Guð- björg systir hans, fædd 1830, móðir Stefáns G. skálds. Landsmál lét Hannes til sín taka og var einn þeirra sem riðu frá Vallalaug norður að Möðruvöllum í Hörgárdal árið 1849 til aðafhrópaGrímamtmannJónsson. • Samvistir þeirra Hannesar og Maríu á Grófargili leiddu til þess að þau eignuðust þijú böm saman. Stefán á Höskuldsstöðum getur þess til, að hreppstjóravaldi hafi verið beitt til þess að koma í veg fyrir að þau gengju í hjónaband. VINNUHJÚ ElGNAST BARN í vinnumennskunni á Grófargilj eignuðust þau Hannes og María dóttur; Áslaug var

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.