Lesbók Morgunblaðsins - 15.11.1986, Síða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 15.11.1986, Síða 4
Enginn verður óbarinn biskup Samantekt um rokksöngvarann Bob Geldof sem sneri sér að líknarmálum og skipulagði m.a. Band Aid og Live Aid Texti: Illugi Jökulsson. Fyrri hluti. kki fékk Bob Geldof friðarverðlaun Nóbels í þetta sinn enda þótt fáum blandist hugur um að þessi írski rokksöngvari eigi þau fyllilega skilið. Á síðustu áratugum hafa ekki margir gert mönnum Ijósar en hann hvers einstakl- ingurinn er megnugur til hjálpar nauðstödd- um meðbræðrum sínum, ef ábyrgð, vilji og hugkvæmni er fyrir hendi. Ferill Geldofs er raunar hinn athyglisverðasti. Hann varð þekktur á árum pönksins og alræmdur þeg- ar hann lýsti því yfir að helstu metnaðarmál sín væru að vera frægur, ríkur og að kom- ast yfir sem flestar konur. Þá var hann talinn helstur siðspillir unga fólksins en hefur nú verið sleginn til riddara af Breta- drottningu og útnefndur til Nóbelsverðlaun- anna, vegna þess að þegar fréttir tóku að berast um hræðilega hungursneyð í Eþíópíu og víðar í Afríku þá sat hann ekki auðum höndum og dæsti heldur ákvað að gera eitt- hvað í málinu. Mikilvægi „heilags Bobs“ — eins og farið er að kalla hann — felst ekki síst í því að hann hefur leitt mönnum fyrir sjónir að þegar hörmungar dynja yfír berum við öll ábyrgð og enginn ætti að geta skot- ið sér undan. Eftirfarandi samantekt um Geldof og ævi hans er einkum byggð á sjálfsævisögu hans sem er nýkomin út og ber heitið Is that it? — eða: Er þetta allt og sumt? ElNN MEÐ SJÁLFUM SÉR „Mér er sama þó ég sé í hávegum hafður og heiðraður. Mér er meira að segja sama þó ég sé gerður að svolitlum dýrlingi, svo fremi sem enginn ætlast til þess að ég hagi mér eins og dýrlingur." Þessi tilvitnun í Sögu heilags Vespaluusar eftir Saki er á titilsíðu sjálfsævisögu Gel- dofs og lýsir anda hennar býsna vel. Þó starfið fyrir hungraða í Afríku sé honum mikið alvörumál tekur hann Bob Geldof hreint ekki hátíðlega; hann gerir óspart gys að sjálfum sér og er ófeiminn við að segja frá brestum sínum og göllum. Svo til algert hispursleysi einkennir bókina og á kápu hennar er orðsending frá höfundi og útgef- anda þar sem segir að foreldrum og öðrum lesendum muni vafalítið gremjast ýmsir kaflar hennar. Bókin er nefnilega ekki ein- göngu saga Live Aid og Band Aid heldur raunveruleg og sönn frásögn af ævi Geldofs — enda varla seinna vænna þar sem maður- inn er orðinn rúmlega þrítugur! Hann segir hreinskilnislega frá harkalegum deilum sínum við föður og skólayfirvöld á unglings- árunum, rekur ansi skemmtilega og opin- skátt tilraunir sínar til þess að komast yfir konur og fer ekkert í felur með alls konar vafasöm uppátæki sín. Þegar hann lendir í bland við tröllin er hann heldur ekki spar á stóryrðin. Á Englandi hefur bókin hlotið geysigóða dóma og má taka undir þá hér. „Heilagur Bob“ er kannski ekkert sérlega heilagur en sjarmerandi er hann. Hann fæddist í Dublin fyrir rúmlega þrjátíu árum og er af millistéttarfólki kom- inn. Heimilið var ekki auðugt en þar skorti heldur engar nauðsynjar. Faðir hans fékkst aðallega við gistihúsrekstur meðan Geldof var að alast upp, var fjarri heimilinu alla vikuna en kom heim um helgar. Af móður sinni hafði Geldof lítið að segja því hún lést þegar hann var um það bil fimm ára (það er lítið af ártölum í bók hans) — hún var ekki nema 44ra ára þegar hún fékk fyrir- varalaust heilablóðfall og dó. Geldof átti tvær systur sem í orði kveðnu sáu um upp- eldi hans eftir að móðirin féll frá en þær voru mun eldri en hann og urðu þvf hvorki félagar hans né sannfærandi mæður. Afleið- ingin varð sú að hann var mikið með sjálfum sér á æskuárunum, átti að vísu vini meðal jafnaldra sinna eins og gengur en hafði engan sem hann gat almennilega treyst á. Eins og títt er um böm sem þannig alast upp varð sjálfsvitund hans óhófleg; hann segir frá því í bókinni að hvað sem hann taki sér fyrir hendur eða fyrir hann komi þá sé ætíð eins og hluti huga hans standi utan við allt saman og skoði og skilgreini úr fjarlægð. Annars vegar er sjálfsöryggið óskorað, af gömlum vana og illri nauðsyn; hins vegar efast hann sýknt og heilagt um að hann sé að gera rétt og finnst einhver gervibragur á öllu saman. Barsmíðar í Skóla OgHeima Það efldi líka einsemd og staðfestu Gel- dofs þegar hann lenti í vandræðum í skólanum. Eitt haustið átti hann sjálfur að afhenda skólagjöldin í skóla sínum en í ein- hveiju bríaríi stakk hann peningunum í eigin vasa. Þetta var ekki há upphæð og enginn gerði athugasemd í bili svo Geldof var á endanum farinn að halda að öllum væri sama. Um vorið var föður hans hins vegar sendur reikningur fyrir skólagjöldum sonar- is og þá komst allt upp. Geldof baðst afsökunar og sagðist ekki hafa haldið að þetta væri sérlega mikið mál en faðir hans og skólayfirvöldin voru á öðru máli. Fyrst var hann barinn í skólanum og síðan tóku systur hans og faðir heldur kuldalega á móti honum. Honum sveið sárt að systumar skyldu ekki bera í bætifláka fyrir hann en því fór fjarri. Faðirinn fór síðan með hann upp á loft og sagðist ætla að beija hann sex sinnum með bambusstöng sem hann hafði keypt af þessu eina tilefni. Geldof blöskraði, fannst það ansi kaldrifjað af föð- ur sínum, og blöskraði enn meira þegar faðir hans sagði, eins og gert er í bíómynd- um: „Þetta mun meiða mig meira en það meiðir þig!“ Eftir þijú högg lagði hann á flótta en faðirinn elti hann um herbergið og sló til hans hvað eftir annað. „Ég trúði ekki að hann væri að þessu. Síðan reyndi skepnan í lokin að faðma mig að sér. Hvem- ig dirfðist hann að reyna að friða sína vesæiu samvisku með annarri eins hræsni? Ef maður ætlar að meiða einhvem þá á maður að meiða hann en ekki láta sem það sé ást. Það er viðbjóðslegt. Ég varð fullur andstyggðar og ég hataði hann. Sársauk- inn, reiðin, skömmin og undrunin voru mér um megn. Frá og með þessum degi vorum við faðir minn svamir óvinir. Hann skyldi fá að borga fyrir þetta." Falsaðar Einkunnir Eftir þennan atburð tók Geldof jafnan mjög kuldalega öllum tilraunum föður síns Geldof á hátindiævisinnar (?), aðsyngja IDon’tLikeMondays fyriráhorfenda- skarann & Wembley meðan á Live Aid-tónleikunum stóðum. til að nálgast hann; hann hélt sig í sínum eigin heimi og fannst faðirinn fyrirlitlegur ef eitthvað var. í skólanum varð svipað upp á teningnum. Fram að þessu hafði Geldof staðið sig býsna vel, verið talsvert yfir með- allagi og unnið til verðlauna í ýmsum greinum. Eftir þetta gaf hann skólann hins vegar alveg upp á bátinn og árangri hans hrakaði sem því nam. Þá tóku meiri barsmíð- ar við því í lok hverrar viku fór hann með vitnisburðarspjald heim til föður síns til að fá kvittun hans, og í hvert sinn, og það var oft, sem árangur var ekki fullnægjandi dró faðirinn fram bambusstöngina. Geldof fannst þessar barsmíðar óréttlátar og óþol- andi en hafði jafnframt þvílíka skömm á skólanum (sem var rammkaþólskur klaust- urskóli) að það hvarflaði ekki að honnum að leggja sig fram þar. Loks greip hann til þess bragðs að ræna auðu vitnisburðar- spjaldi og falsaði eftir það ágætan vitnisburð handa föður sínum, um leið og hann líkti eftir rithönd föðurins á hið raunverulega spjald. Þannig lék allt í lyndi um hríð og faðirinn var hinn kátasti með framfarir son- ar síns. Þar kom þó að sannleikurinn í málinu varð lýðum ljós og faðirinn reiddist ofsalega. Hann og prestamir sem kenndu í skólanum höfðu allt frá stuldinum á skóla- gjöldunum sagt hveijum sem heyra vildi að Geldof væri ekki treystandi og að hann væri lygari, jafnvel í áheym hans sjálfs. Nú sló faðirinn hann rækilega utan undir og sagði: „Þú ert enn að ljúga. Ég skal kenna þér að ljúga aldrei framar!" „Eg fok- reiddist," segir Geldof í ævisögu sinni. „Ég hafði ekki viljað þetta. Ég hafði verið neydd- ur í þessa aðstöðu af þeim. Mér fannst ég hafa fullan rétt til að gera það sem ég hafði gert til þess að sleppa úr þessum óþolandi aðstæðum sem þeir höfðu komið mér í. „Þú skalt ekki voga þér að beija mig oftar," sagði ég Hann varð furðu lostinn en hann gerði það ekki framar." „Mikið HATUR, LÍTIÐ PLÁSS“ Nú er löngu gróið um heilt með þeim feðgum og þeir eru bestu vinir en sú þróun tók tímann sinn og faðirinn hirti lítið um son sinn næstu árin. Hann hélt áfram í skólanum en einkunnimar urðu æ lélegri og að lokum féll hann á því prófi sem veitti inngöngu í háskóla. Hann var þá átján ára gamall og í aðra röndina var honum sama en samt var þetta þó nokkuð áfall. Hann hafði, skal tekið fram, ekkert á móti mennt-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.