Lesbók Morgunblaðsins - 15.11.1986, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 15.11.1986, Blaðsíða 8
JL JLðalpersónan í •ðalpersónan dularfyllsta morðmáli tónlistarsögunnar. — Átti hann þátt í dauða Mozarts? EFTIR OSCAR HEDLUND Um allan heim fer kvikmyndin „AMADEUS“ sigurför, alls staðar nema í ítalska bænum Legnano. Niðurbæld reiði og hneykslun fékk loks útrás í sumar í mynd nýrrar tónlistarhá- tíðar — Salieri Festival. Ný þykir nefnilega sumum nóg komið af ósvífninni. Hinn mikli sonur bæjarins, Antonio Salieri, er fórnar- lamb rógsherferðar um heim allan, þar sem honum er lýst sem hræsnisfullu hirðfífli, miðlungsmanni í tónlist, en valdasjúkum í meira lagi, þjófí og morðingja. Sjálfur hljóm- sveitarstjórinn við hirð Jósefs 2., sem þar með gegndi æðsta tónlistarembætti í Evr- ópu, er látinn hverfa í skuggann af ungum æringja, sem fyllir hallarsali í Vín af flissi, freti og fagurri hljómlist. 0g þessi háttsetti hirðmaður, sem átti glæsilegan feril í þjón- ustu keisarans í 50 ár, á ekki aðeins að hafa stolið verki þessa æringja, sálumessu... — Fyrirgefðu mér, Mozart. .. fyrirgefðu morðingja þínum, hrópar Salieri þegar í inngangi myndarinnar. Síðan kastar hann róðukrossi sínum á eldinn og formælir skap- aranum fyrir að hafa gert sig að miðlungs- manni, en fómarlamb sitt að snillingi. . . Maður þarf ekki að vera ítalskur kaþólikki til að rétta vel úr sér í sætinu í bíóinu. Menn voru furðu lostnir í Legnano. Fund- ir voru haldnir í skyndi meðal ráðamanna í bænum. Menn ræddu hálfringlaðir um hið alvarlega ástand, sem skapazt hefði. Hvílík meðferð á hinum mikla syni bæjarins! Það þurfti eitthvað að gera til að bjarga heiðri hans. Minningu hans hafði að vísu ekki verið sýndur ýkjamikill sómi í bænum, áþreifanlega eða sýnilega, en þó hét götu- spotti eftir honum og leikhús, sem var í niðumíðslu. En skyndilega beindist athygli umheims- ins enn meira að Legnano, litlum iðnaðarbæ með innan við 30.000 íbúa, en nágranna- borginni Verona. Antonio Salieri varð 75 ára, en saga hans hefur aðeins verið skráð í stómm dráttum. Hann fæddist 18. ágúst 1750 í Legnano og var fimmti sonur efnaðs kaupmanns þar. Hann var alinn upp við tónlistamám, og einn bræðra hans, Ferdinand, sem var nem- andi fiðlusnillingsins Tartini, kenndi honum að leika á sembal og fiðlu með þeim til- þrifum, sem þá tíðkuðust. Skyndilega varð hann foreldralaus og var honum þá komið fyrir hjá vinum fjölskyld- unnar í Feneyjum, hinni miklu tónlistarborg, sem þá var, og ómaði öll af barokktónlist eftir menn á borð við Vivaldi, Torelli, Monte- verdi, Gabrieli og Tartini, sem segja má að VIÐ REISUM Styttu — Við verðum að reisa af honum styttu miðsvæðis í bænum, gera við leikhúsið og byija að spila öll verk hins mikla Salieris, sagði bæjarstjórinn og sósíalistinn Buoso. — Við verðum að veita Saliemi okkar uppreisn æm, þó að við höfum eiginlega ekki efni á því einmitt núna, sagði formað- ur fræðslunefndar bæjarins, Guliani Mario, og hann sendi út söfnunarlista í fyrravor. Það, sem inn kom, nægði að minnsta kosti fyrir nýju blaðgulli í skiltið á Salieri- leikhúsinu og til að halda allmerkilega hljómleika að gefnu tilefni. Þar var flutt í fyrsta sinni á Italíu það Requiem, sem Mozart byijaði á að dauða kominn og Salieri lauk við — það er að segja stal samkvæmt kvikmyndinni. Þá tók fólk að uppgötva Legnano og verða forvitið. Hver var hinn raunverulegi Antonio Salieri? Um Mozart er meira vitað. Menn hafa reynt að færa hvem tón og blæbrigði hinna 36 ára hans í tónlistarsöguna. Kvikmyndin Amadeus hefur endurlífgað Salieri og nú er spurt: Var hann svonaT hafi ráðið tóninum í þjóðlífinu þama á þess- um tíma. Því að þetta tímabil er stórveldis- tími ítölsku barokk-tónlistarinnar, og háborg hennar var St. Markúsarkirkjan. Hljóðbylgjumar náðu inn í hvem kima borg- arinnar, og til dæmis tíðkaðist það á öllum sómasamlegum rakarastofum að hafa hljóð- færi og nótur til reiðu fyrir þá, sem biðu. Það fór ekki á milli mála, hvað Antonio Salieri ætlaði að verða: tónlistarmaður. Auk þess að leika á sembal og fíðlu tók hann nú til við bassafiðlu og söng. Árið 1766 kom hirðhljómsveitarstjórinn í Vín, Florian Leopold Gassman, í heimsókn til Feneyja. Hann hlustaði á leik hins unga bassafiðluleikara og sannfærðist um hæfi- leika hans, því að hann gerði honum þegar það boð, að hann kæmi til Vínar til fram- haldsnáms við hirðhljómsveitina þar undir leiðsögn sinni og vemd. HVÍLÍK TÆKIFÆRI Það kom fljótt í ljós, hvílíkt kostaboð hér var um að ræða. Þegar árið eftir var hann kynntur fyrir keisaranum, Jósef 2., við kammerhljómleika, en þó var það enn mikil- vægara, að hann átti eftir að kynnast öðmm manni, hinu mikla tónskáldi Christoff Willi- bald Gluck. Það varð einnig eins og að komast undir andlegan vemdarvæng keis- ara, því að Gluck tók þegar að koma skjólstæðingi sínum á framfæri og láta hann spreyta sig. Og tækifærin buðust víða um Evrópu. Gluck hafði lofað að semja vígslutónlist fyr- ir nýju óperana La Scala í Mílanó, en hann varð lasinn og fól Salieri verkefnið. Seinna hljóp hann á svipaðan hátt í skarðið á ör- lagaríkri stund, og það varð til þess, að Af keisarans náð varð hann æðsti yfirmaður tónlistarmála í Vín: Antonio Salieri. Myndirnar eru úr kvikmynd- inni Amadeus. Mozart sem Tom Hu að hafa stolið verkin

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.