Lesbók Morgunblaðsins - 15.11.1986, Síða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 15.11.1986, Síða 10
hvers staðar í mistri gremju sinnar finnst Mozart hann sjá þennan bannsetta Salieri. Á sama tíma njóta óperur Mozarts mik- illa vinsælda í öðrum löndum Evrópu, og þeir, sem sýna þær, raka saman fé, en frum- kvöðullinn, höfimdurinn, hlýtur samkvæmt þeirrar tíðar viðskiptavenjum ekkert nema heiðurinn. Mozart hefði verið fyrstur manna til að ganga í STEF, en hann hefði sennilega trassað að greiða inntökugjaldið. Hann átti þó griðastað í Prag og lyfti sér þar upp, en lét skömmina hann Salieri um sína Vín á meðan. Sjálfur féll Salieri í ónáð, þegar Josef 2. lést og við tók Leopold 2. sem hafði minni áhuga á músík en fyrirrennarinn. Eftir öll sín ár í sölum og göngum við baktjaldamakk hafði þó Salieri vit á því að segja sjálfur af sér störfum við fram- kvæmdastjóm hirðleikhúsanna, áður en honum yrði sagt upp sjálfum. Hann náði góðum samningum, er hann lét af emb- ætti, og byggðust þeir meðal annars á því, að hann seldi Schönbrunn-leikhúsinu eina óperu á ári. Hann sá um, að hinn holli nem- andi sinn, Weigl, tæki við starfi hljómsveit- arstjóra eftir sig, og síðan var hann allt í einu reiðubúinn að þiggja glæsileg boð frá Tónlistarskólanum, Félagi tónlistarmanna, Hljómlistarfélaginu og tónlistarskólanum í París. Furðuleg Samsetning En Mozart býr í æ lélegra leiguhúsnæði og hamast við að skrífa nótur fýrir eilífð- ina, meðan húsráðandinn ber að dyrum með reikninginn fyrir húsaleigunni. Frá myndrænu sjónarmiði er þetta ekki efnilegt, svo að Forman, leikstjóri, tekur til sinna ráða við endalokin. Mozart liggur í hálfgerðu óráði á bana- beði, meðan Salieri í öllu sínu vélræði veiðir upp úr honum tón fyrir tón það, sem átti að verða Requiem, síðasta verk hans. Þetta er æsispennandi lokaatriði myndar- innar, en úti í salnum sitja menn, sem þekkja til mála og furða sig á þessari sam- setningu. Svona verður tónverk ekki til — með því að tónskáld lesi fyrir veikum rómi með sprungnar varir, meðan annar tónlistar- maður, verr gefinn, en þeim mun lævísari, skrifar nótumar, eins og hann eigi lífið að leysa. Mozartfræðingurinn Wolfgang Hildes- heimer, sem hefur rannsakað raddskrána að Sálumessunni ítarlega, gerir þessa frá- sögn vægast sagt ósennilega: „ ... við höfum fyrir okkur rithönd heil- brigðs manns að öllum líkindum og að minnsta kosti manns, sm er skýr í hugsun og sýnir engin merki þreytu eða skjálfta — sem eru óhjákvæmileg viðbrögð deyjandi manns — og örugglega hefur engin nóta verið skrifuð af honum liggjandi...“ En það var hvorki Milos Forman eða Peter Shaffer, sem komu af stað tilgátunni um eiturbyrlunina, eða þeirri morðkenningu, sem hefur loðað svo fast við dauða Mozarts. Og eitt er nokkum veginn víst, eftir að þessar sögusagnir hafa gengið í 195 ár, að það hefur ekki verið Salieri... því að hann var ekki nálægt Mozart, fyrr en eftir að hann var grafinn í kirkjugarði fátækiinga. En kannski beindist athygli blaðanna að honum einmitt þess vegna, og í Berlín var skrifað: „ ... hann kom veikur heim frá Prag og versnaði stöðugt. Sagt er, að hann hafi haft vatnssótt og hafi dáið í Vín í lok fyrri viku. Þar sem líkaminn bólgnaði og þrútn- aði eftir dauðann, halda menn, að honum hafi verið byrlað eitur.“ Síðan koma nokkrar línur, þar sem gefið er í skyn, að helzti keppinautur hans hafi verið „hinn kunni hljómsveitarstjóri, Anton- io Salieri". Auk þess hefði ekkja Mozarts breitt það út, að maður hennar hefði sagt það í lokin, að verið væri að byrla sér eitur. Aftur á móti varð sá orðrómur ekki eins útbreiddur eða lífseigur, að hirðtónskáldið Hofdemel hefði ráðið Mozart af dögum, þar sem hann grunaði hann um að vera föður að bami sínu. Daginn eftir dauða Mozarts réðst hann að minnsta kosti á konu sína með hnífi og framdi síðan sjálfsmorð. Þekktari er sú kenning, að frímúrarar hafi myrt Mozart í hefndarskyni fyrir að hafa afhjúpað leyndarmál reglunnar í „Töfraflautunni", en hver þau voru er þó ekki vitað. En Pusjkin þótti meira varið í söguna um Salieri. Og nú verður Antonio Salieri enn að betj- ast fyrir sakleysi sínu gegn heimsbókmennt- unum og kvikmyndalistinni. En hann hefur þó fengið nýjan Ijóma á nafn sitt á Ieikhúsinu í heimabæ sfnum, Legnano. Sv. Ásg. þýddi úr „Mánadsjoumalen" lengsl truar og þjóðar í þessari grein mun ég fyrst fjalla um félagsfræðileg- ar skilgreiningar hugtaksins trú eða trúarbrögð og síðan ræða um trúarlíf íslendinga og trúarstofnanir frá sjónarhóli félagsfræðinnar. Tengsl trúar og þjóð- ar hér hjá okkur eru athyglisverð eins og nýlegar EFTIR PÉTUR PÉTURSSON Eru aðeins 7% íslendinga ákveðið kristnir? Svo gæti virzt eftir niðurstöður könnunar Hagvangs á lífsskoðunum og gildismati f slendinga. Samt eru íslendingar miklir trúmenn samkvæmt þessari könnun. En til að útskýra trúarlíf þjóðarinnar virðist þurfa að grípa til víðtækari skilgreiningar og ástæða er til að spyrja, hvort hin mikla trú íslendinga eigi sér ekki rætur, að minnsta kosti að hluta, utan hefðbundinna trúarbragða. skoðanakannanir sýna og hefur saman- burður við aðrar þjóðir vakið athygli. Ég mun leitast við að bregða nýju ljósi á þátt trúarinnar í andlegu lífi þjóðarinnar og skýra hvemig trúarbrögð íslendinga eru tengd þörfum þjóðfélagsins engu síður vitund einstaklinga. í þessu sambandi verður staða og hlutverk kristinnar kirkju verðugt við- fangsefni. Segja má að trúarlífsfélagsfræðingar geri sér erfitt um vik þegar þeir leitast við að skilgreina nákvæmlega hugtakið trú, eða það sem á erlendum málum er kallað „relig- ion“. Fyrir sagnfræðinga og fræðimenn í kirkjusögu er þetta ekki sérstaklega stórt vandamál. Þeir fjalla um ákveðnar stofnanir og ákveðin tímabil og það liggur oftast í augum uppi hvað er trú og hvað ekki. Fyrir félagsfræðinga sem reyna að koma sér upp allsheijar skýringu á þessu fyrirbæri mann- legs lífs og samfélags vandast málið, þegar skilgreiningin á að geta gilt fyrir öll þjóð- félög á öllum tímum. Vel Skilgreind Kerfi TÁKN OG HELGISIÐIR Sagnfræðingar og guðfræðingar fjalla oftast um hin opinberu trúarbrögð og trúar- bragðafyrirbrigði þeim nátengd. Hin opin- beru trúarbrögð birtast í tiltölulega vel skilgreindum og aðgreindum kenningakerf- um, táknum og helgisiðum og tengjast ákveðnum hlutverkum og stofnunum. Tengsl þessara trúarbragða við þjóðfélagið, valdastéttir og hópa eru margslungin. Það sem feliur utan hins opinbera ramma er þá kallað hindurvitni, vantrú eða villutrú eftir atvikum, enda eru þessi síðamefndu hugtök runnin undan rótum sérfræðinga og helgi- siðameistara hinna opinbem trúarbragða. Þess ber þó að geta að þjóðháttafræðingar, sagnfræðingar og aðrir fræðimenn hafa nú á seinni ámm sinnt meir en áður rannsókn- um á því sem kalla mætti alþýðutrú sem lifir og hrærist ýmist undir eða við hliðina á hinum opinbem trúarbrögðum. Alþýðutrú- in er hluti af menningu og menningarsögu þjóðanna engu síður en hin opinbem trúar- brögð. Þetta sýnir að trúarbrögð og trúarlíf birtist í margbreytilegum myndum við hinar ýmsu aðstæður, jafnvel innan eins þjóð- félags, hvað þá heldur þegar um er að ræða samanburð milli þjóðfélaga og menningar- heilda. HVAÐ ER TRÚIN í EÐLISÍNU í félagsfræði hafa komið fram tvær aðalstefnur varðandi skilgreiningu hugtaks- ins. Hina fyrri, sem er þrengri, getum við kallað inntaksskilgreininguna. Þar er reynt að afmarka hvað trúin er í eðli sínu, hvað hið sérstaka inntak hennar er sem aðgreinir hana frá öðmm fyrirbæmm. Þessi stefna gengur í raun út frá því að hægt sé að komast að þessum innsta kjama og gefa honum heiti, t.d. Guð, yfimáttúruleg fyrir- brigði, yfírmannleg öfl og svo framvegis. En þessar skilgreiningar standast ekki ströngustu kröfur félagsfræðinnar þar sem þær em ekki algildar. Konfúsíanisminn í Kína og ýmis afbrigði Búddatrúar hafa t.d. enga eiginiega guði og mörkin milli þess náttúmlega og yfimáttúrulega er ekkijiægt að draga í öllum trúarbrögðum. Það getur einnig verið ógjömingur að draga skörp skil á milli trúarstofnana og hlutverka annars vegar og veraldlegra hlutverka og stofnana hins vegar þannig að þetta getur heldur ekki orðið óyggjandi skilgreiningar- atriði. í hindúisma renna t.d. hið trúarlega og veraldlega svið inn í hvað annað svo að ekki er hægt að tala um trúfrelsi þar á sama hátt og við þekkjum. Aðgreining þessara tveggja sviða, hins trúarlega og veraldlega, hefur verið talið einkenni á hinum vestrænu trúarbrögðum sem mnnin em undan rótum gyðingdómsins. Það trúarlega hefur afmarkast við ákveðnar stofnanir sem virka sem fulltrúar annars heims. Þetta á raunar aðeins við þegar um er að ræða hin opinbem trúar- brögð sem ég minntist á í upphafi. Hina aðalskilgreiningaraðferðina mætti kalla hlutverksskilgreininguna. Fræði- menn sem aðhyllast hana hafa gefist upp á því að koma orðum að því hvað trúin er og leggja í stað þess áherslu á hvað trúin gerir, eða hvaða hlutverki hún gegnir fyrir einstaklinginn, hópinn og þjóðfélagið. Talað er um að það sem einkenni trúna sé að hún gefi lífi einstaklingsins gildi, eða takmark, komi jafnvægi á persónuleika mannsins, birtist í samstöðu hópsins og táknum heild- arinnar. Flestar þessar skilgreiningar gera ráð fyrir því á einn eða annan hátt að trúin sé sameiningarafl og tjáning samstöðu. Hin trúarlegu tákn em heilög vegna þess að allir em, eða eiga að vera, sammála um þau. Þau em hafín upp yfir hversdagsleik- ann og þau málefni sem menn deila um og glíma við með veraldlegum ráðum. Hin æðstu gildi og hinar göfugustu hugsjónir era eðli málsins samkvæmt trúarlegar og það er ekki hægt að segja fyrir um hvert sé inntak þeirra, það getur verið breytilegt eftir hópum og þjóðfélögum. Það má lengi upp telja þau tákn, stofnanir og stöður sem fá trúarlegt gildi út frá þessum forsendum, það getur verið leiðtoginn, flokkurinn, kerfið eða kóngur. Því síður er hægt að segja fyrir hvaða efnisleg fyrirbæri verða heilagir hlut- ir, nefna má tótemstaurinn meðal fmm- byggja Ástralíu eða bláa dúkinn okkar með hvítum og rauðum krossi í miðjunni. BREYTINGAR = AFHELGUN Sé þessum trúarhugsjónum, stofnunum og táknum ógnað eða þeim lítilsvirðing sýnd er voðinn vís, þá riðar gmndvöllur tilvemnn- ar til falls. Taki t.d. unga kynslóðin upp á því að vanrækja hugsjónir þeirra eldri — að ekki sé talað um þegar hún sýnir táknun- um, t.d. þjóðfánanum, lítilsvirðingu, þá er framtíð þjóðarheillarinnar í hættu. Inntaksskilgreiningin er þrengri eins og áður segir og hefur þess vegna takmarkað gildi þegar um er að ræða rannsóknir á tíma- bilum mikilla breytinga og samanburði milli ólíkra þjóðfélagsgerða og menningarheilda. Hún hefur einnig í sér fólgna þá hættu að allar breytinar frá því ástandi sem áður var em túlkaðar sem neikvæðar breytingar, þ.e.a.s. afhelgun. Fræðimenn og aðrir sem um trúmál fjalla út frá þessum forsendum gefa sér oft ákveðið fullkomið ástand sem ríkti áður fyrr, og allar trúarlegar breyting- ar, hveiju nafni sem þær svo nefnast, verða þá tákn um afturför og afkristnun. Gallar hlutverksskilgreiningarinnar em hins vegar folgnir í því að hún getur náð yfir fyrirbæri sem ekki em almennt flokkuð undir trúarbrögð. Fræðimaðurinn athugar þá þessi fyrirbrigði út frá öðmm forsendum en þeim sem um er fjallað. Þeir síðastnefndu mundu oft á tíðum alls ekki samþykkja að hugmyndir þeirra og hegðan flokkuðust undir trúarbrögð. Þetta þarf þó alls ekki alltaf að leiða til þess að niðurstöður at- hugunar sem hefur hlutverksskilgreiningu að forsendu séu marklausar. Þvert á móti geta þær varpað nýju ljósi á fyrirbrigðin og útskýrt þau í nýju samhengi. Oft styðjast fræðimenn við kennileiti sem heimfæra má til beggja þessara skilgrein- ingaraðferða. Svo var t.d. um Karl Marx sem kenndi að inntak trúarbragða væri endurspeglun hins efnahagslega vemleika og hlutverk þeirra væri að dylja fyrir öreig-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.