Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 17.01.1987, Qupperneq 7

Lesbók Morgunblaðsins - 17.01.1987, Qupperneq 7
Fjórmenningarnir, sem sú gamla Ileana Sonnabend, á myndinni til hægri, ætlar að gera heimsfræga. Efst tii vinstri er Meyer Vaisman. Binkerton er tii hægri. Fyrir neðan tii vinstri Jeff Koon og tii hægri Peter Hailey. Stjörnur á Einni Nóttu „Stars are made“ - stjörnur eru búnar til, sögðu þeir forðum í Hollywood og það gildir enn, einnig í listabransanum. Sölu- mennskan þarf á stjömum að halda og þær p®p # Æm átöt. nm *«' tíi Stefnur allraátta A banda- rískum myndlistar- vettvangi vítt og breitt um landið EFTIR GISLA SIGURÐSSON ftir að hafa litið á söfn og sýningar í sjö banda- rískum stórborgum og komið á um það bil 4o vinnustofur listamanna, hef ég stundum verið spurður þeirrar spurningar, hvað sé of- aná þessa stundina í bandarískri myndlist: Hvemig mála þeir í Ameríku? Þetta er ein- föld spuming, sem samt svo stór, að það vefst fyrir manni að svara henni og vita- skuld þyrfti að fara víðar og vera lengur til að kunna á því betri skil. Reyni maður samt eftir dálitla umhugsun að taka saman örstutt svar og segi: Þeir mála allavega - þá hljómar það eins og útúrsnúningur, eða þá að maður sé að víkja sér undan því að svara. Samt er þetta svar við spumingunni nærri lagi. Nýja málverkið eða nýbylgjan, sem svo hefur verið nefnt og ættað er frá Þýzkal- andi og Ítalíu um og eftir 1980, náði að sjálfsögðu fótfestu vestan Atlantshafsins og sumir brautryðjendur stefnunnar í Evr- ópu fluttust til New York þegar þeir voru orðnir frægir; menn eins og Sandro Chia, Clemente, og Salome. Og þar sem lista- bransinn gerir menn fræga á einni nóttu ef þurfa þykir, eignuðust Kanár sínar eigin stjömur í snarhasti: Julian Schnabel, David Salle, ofl. Alltaf er séð til þess að örfá nöfn séu flóðlýst og á þann hátt fleytt inn í lista- söguna. Á bak við það em bæði peningasjón- armið og þjóðemishyggja. Undanfama áratugi hefur New York ver- ið talin nafli myndlistarheimsins og sú staða verður ekki gefín eftir baráttulaust. Samt er tekið að hrikta í stoðum musterisins og Seattle: Fjölskylda (Úr Hiroshima- myndröð) eftir Jacob Lawrence. Hann er svertingi, áttræður að aldri. bandarískum borgum, að eitthvað verulega athyglisvert ber ekki fyrir augu nema á einni sýningu af hverjum tíu, gróflega áætl- að. Svo það er nokkurt þolinmæðisverk að leita að góðri myndlist á gallerísýningum. En eftir þá yfírferð, sem ég gerði á um það bil fímm vikum, finnst mér augljóst, að lítið sé eftir þar af nýja málverkinu eins og við höfum kynnst því hjá málurum eins og Gunnari Emi og Tolla til dæmis. Mér skilst af málurum þar vestra, að það hafí gengið yfir og átt skamman blómatíma, en það verður lengi að Ieita til að fínna dæmi um þennan þýzkættaða grófa expressjónisma. Italska útgáfan af þessari liststefnu, tals- vert rómantískari og ljóðrænni, virðist hafa haft meiri áhrif til langframa á bandaríska listamenn. Það sem maður sér oftast, bæði á sýningum og í vinnustofum listamanna, er einhverskonar framhald af þessum ítalska expressjónisma. Langsamlega flestir málar- ar sýndist mér að væru að kljást við mannskepnuna, misjafnlega stílfært og inn- takið er mjög oft einhverskonar fantasía. Þessi myndlist er frásagnarleg og leitast við að koma einhverju á framfæri, stundum um ástina, stundum um þjáninguna. Al- þýðulist, sem mjög blómstrar vestantil í Bandaríkjunum, virðist hafa veruleg áhrif og nokkra málara hitti ég, sem kváðust leggja meira kapp á að sjá sýningar al- þýðulistamanna en flest annað. Ég sá nokkrar slíkar sýningar í San Fransisco og Seattle, þar sem saman fór hrífandi blanda af nævisma, listrænni framsetningu og húmor. Þessi tegund listar er naumast til hér og er alveg óskyld lágkúrunnmi, sem oft er sýnd á stöðum eins og Eden í Hvera- gerði og víðar. Eg sá afar lítið af pólitískri list og þjóð- félagslegt inntak getur naumast talizt áberandi. Þó er það til eins og allt annað; til dæmis má nefna Leon Golub, sem sjálfur hefur verið í bandaríska hernum og tekið þátt í afskiptasemi hans í löndum Mið— Ameríku. Golub hefur málað hrikalegar myndir af löndum sínum, meðal annars við pyntingar og þetta er að sjálfsögðu miklu magnaðri pólitísk list en margt annað, því hún byggir á því sem málarinn hefur séð og upplifað. kunnur bandarískur listfræðingur lét svo um mSélt í tímaritinu New Art Examiner eftir síðasta Feneyja-tvíæring, að Evrópa væri að taka frumkvæðið aftur. Um það er ugglaust erfítt að dæma, en það kynni að koma Könum í koll, hvað þeir eru ákafir í að halda fram eigin stjömum á þessu sviði. Ég minnist þess, að Erró lét eitt sinn svo um mælt, að það væri hreinlega eins og að rekast á vegg að koma sér á framfæri í New York. I heimsborginni við Hudsonfljót er samt urmull erlendra listamanna, sem trúa á drauminn um frægð og frama, enda er meira að sjá þar í myndlist en í nokkurri annarri borg. Fyrir utan frábær söfn, eru um 4oo myndlistargallerí á Manhattan og segir sig sjálft, að enginn kemst yfir að sjá nema brot af því, sem þar er til sýnis.í annan stað er þess að geta, að galleríin em hreint ekki aðgengileg; mörg þeirra uppi á annarri og þriðju hæð eða ofar. Svo er sagt, að í New York sé hægt að sjá það bezta en einnig það versta af því sem mannkindin aðhefst. Það gildir raunar jafnt um gallerísýningar þar og í öðrum ! LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 17. JANÚAR 1987 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.