Lesbók Morgunblaðsins - 28.02.1987, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 28.02.1987, Blaðsíða 8
MYNDUSTARMEIMN FRAMTÍDARINNAR Kynning IBM á Kjarvalsstöðum 28. febrúar - 8. marz Um þessar mundir er fyr- irtækið IBM á íslandi 20 ára. Þegar rætt var um það á hvem veg afmælisins skyldi minnst, kom upp sú hugmynd að skapa vett- vang fyrir ungt fólk til að sýna list og þarf ekki að orðlengja, að sú hugmynd er orðin að veruleika; sýningin verður opnuð í dag. Það kom forráðamönn- um IBM nokkuð á óvart hversu góðar undirtektimar vom og að ungir myndlistar- menn vora mjög þakklátir að fá þetta tækifæri. Og vegna þess hve mikið kom af sýningarhæfum verkum, verður hún í öllu húsinu, báðum sölum og göngunum á Kjarv- alsstöðum. En því miður var ekki unnt að fá inni með hana lengur en til 8. marz. Aldursmörk þátttakenda era við 35 ár, en flestir era mun yngri.Sumir era í list- námi, aðrir búnir að ljúka því. Flestum er þó sameiginlegt, að nöfn þeirra era þjóðinni ókunnug ennþá. í upphafí var hugmynd forráðamanna IBM sú að lagt skyldi út af áhrifum tölvu- væðingar. Andstaða við svo markaðan bás kom þó fljótt í ljós, svo þeirri yfírskrift var ýtt til hliðar og málið gefíð frjalst. Sumir hafa þó verið minnugir hinnar upphaflegu hugmyndar og sent inn verk í þeim anda. En það er mjög í minnihluta. Svo mikil og góð urðu viðbrögðin, að 70-80 manns sendu inn samtals um 300 verk, sem síðan hefur verið valið úr. Ugglaust hefur þótt lokkandi, að IBM hefur heitið því að verðlauna eitt verkið á sýningunni með 100 þúsund krónum. Þá munar um minna sem era ungir og eiga stundum ekki fyrir efni. Auk þess hefur fyrirtækið áskilið sér rétt til að kaupa ein- hver verk, en það er ótilgreint. Fimm manna dómnefnd annast úrtakið á sýninguna og mun einnig ákveða hvaða verk hlýtur verð- launin. í nefndinni era Gunnar Hansson og Friðrik Friðriksson frá IBM, Einar Hákonar- son, Daði Guðbjömsson listmálarar og Halldór Bjöm Runólfsson listfræðingur og listamaður. Uppá síðkastið hefur færzt í vöxt að stór fyrirtæki styddu við bakið á myndlistar- mönnum með kaupum á listaverkum og hafa bankamir verið þar fremstir í flokki, svo sem kynnt hefur verið í Lesbók. Þeir hafa eignast verðmæt og merk listasöfn og í nokkram myndarlegum einkafyrirtækjum era nú þegar álitlegur vísir að safni, eða hugmjmdir uppi um að heijast handa. Fram- tak IBM kemur heim og saman við þessa hreyfíngu og er til fyrirmyndar. Til þessa hefur IBM ekki verið í flokki þeirra fyrir- tækja, sem safnað hafa mjmdlist til þess að ljá húsakynnum sínum menningarlegri blæ, en allar líkur era nú til þess að á því verði breyting. Ekki sízt þessvegna er ástæða til þess að óska IBM á íslandi til hamingju með afmælið, - ogframtakið. G.S. JÓNAS BRAGI er fæddur 1964, Hafn- fírðingur að upprana, en býr nú í Reykjavík og er á öðra ári í Myndlista- og handíðaskóla íslands. Þótt ungur sé hefur Jón- as þegar haldið einkasýn- ingu, það var í Eden í Hveragerði 1981 og auk þess hefur hann verið með á samsýningu ungra hafnfírskra mjmdlistar- manna 83 og Sýningu ungra myndlistar- manna á Kjarvalsstöðum ’86. hann tók þátt í samkeppninni um listaverk við útvarps- húsið og varð þar í 3. sæti. Á þessari sýningu er Jónas Bragi með glerskúlptúr og heitir sá ísalog, sem sést á mjmdinni. KRISTÍN MARÍA INGIMARSDÓTTIR er fædd 1962 og býr í Reykjavík. Listnám hefur hún stundað í Mjmdlista- og handíðaskóla íslands 1982-84 og framhalds- nám í San Fransisco Art Institut 1984-’86. Þar vestra tók hún þátt í nokkram samsýningum, t.d. í Diego Rivera Gall- eríi og South of Market Cultural Center. Hún hefur auk þess sýnt teikningar í Fellabæ. Mjmdin á Kjarvalstaðasýningunni, sem hér sést, heitir Lífsins tré og er 12oxl70cm á stærð. SVANBORG MATTHÍASDÓTTIR er fædd 1958 og á heima í Reykjavík. Hún hóf myndlistamám í Mynd- lista- og handíðaskóla íslands 1981, útskrifaðist ’85 og hefur stundað framhaldsnám í Maas- tricht í Hollandi, sem lýkur í ágúst á þessu ári. Mjmdina sem hér sést, nefnir hún Stígur. Stærð hénnar er 15xl4o cm. GUNNAR KARLSSON er fæddur 1959 og býr í Reykjavík. Um hann era ekki miklar upplýsingar að hafa aðrar en þær, að hann nam við Myndlista- og handíðaskóla íslands 1975-’79 og fór síðan f framhaldsnám við Kon- unglega listaháskólann í Stokkhólmi. Mjmdin sem hér birtist er án titils.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.