Lesbók Morgunblaðsins - 28.02.1987, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 28.02.1987, Blaðsíða 13
Drangurinn sem sagt erfrá ígreininni er til vinstriá myndinni, síðan Hrútafells- fjall, Drangshlíðarfjall og bæirnir í Skarðshlíð og Drangshlíð. Drangnrinn í Drangshlíð undir Eyjafjöll- um var frá fomu fari talinn huldufólks- byggð. Samskipti mennskra manna og huldufóks reyndust með slíkum ágætum að útihús voru að ósekju byggð við hann. Fjós vesturbæjar stóð þar fram um 1920. Margs bar þó að gæta. Við Drangnum sjálfum mátti í engu hrófla. Ekki skyldi vaka yfir kúm við burð, einungis skilja eft- ir tóma skjólu. Að morgni var broddur í henni og nýfæddur kálfur í stalli móður sinnar. Einhveiju sinni hugðist strákur fylgjast með aðförum huldufólks og faldi sig í auðum bás. Engu varð hann vísari en fékk blautar hildir framan í sig. Hætti þá huldufólk að annast kýr við burð og varð nú að vaka yfír þeim. Faðir minn, Gissur Jónsson, hóf búskap í Drangshlíð 1901. Hluti fjárhellis hans við Dranginn reyndist lekur og nýttist því verr en skyldi. Hann sá að höggva mætti loft hellis þessa til og veita vatni á einn stað. Tvennt ynnist: safna mætti vatni í kerald til drykkjar fénaði og nýtilegt húsrúm ykist. Nágrannar höfðu illan bifur á þessari ráða- breytni og töldu hana mundi draga dilk á eftir sér. Gissur lét orð þeirra sem vind um eyru þjóta, enda hann maður hins nýja tíma sem léti engin hindurvitni hamla brýnum framkvæmdum. Makleg málagjöld létu ekki á sér standa. Morgun einn lá besta snemmbæra Gissurar dauð á bási sínum er að var komið. Þetta þótti mönnum óræk sönnun þess að ekki mætti hrófla við Drangnum. I sömu viku önduðust tvö ungböm Gissurar úr land- farsótt. Slíkt taldist litlum tíðindum sæta, enda engin nýlunda og huldufólki óviðkom- andi. Á öðrum áratug þessarar aldar stóðu bræður tveir, Rútur og Eyjólfur, fyrir stór- búi aldurhniginna foreldra sinna á Hrútafelli undir Eyjafjöllum. Rútur var fyrir þeim bræðrum, enda eldri. Hann þótti mann- vænlegur og naut hylli almennings. Vorið 1917 réðust þeir bræður í hlöðu- byggingu mikla. Þeir völdu henni stað inn í hól sem mikil helgi lá á. Móður þeirra, Sigríði Tómasdóttur, var staðarval þetta mjög mót skapi en fékk ekki að gert. Sjálf var hún borin og bamfædd á Hrútafelli og hafði alið þar allan sinn aldur. Son sinn, Rút, hafði hún heitið eftir landnámsmanni sem búið hafði í helli skammt frá bæ henn- ar. Ekki er Rúts þessa getið í fomum rituðum heimildum en um hann gengu sög- ur þar í sveit miklu ýtarlegri en sú prentaða í Þjóðsögum Jóns Ámasonar. Hlöðubyggingu þeirra bræðra miðaði vel, enda gengið að af kappi. Langveggir stóðu í fullri hæð. Þegar Rútur lagði undirstöðu að gaflhlaði féll á hann moldarbingur. Rúti var bjargað lemstmðum. Hann lifði við harmkvæli nokkur dægur. Faðir minn vakti yfir honum uns yfir lauk. Rútur vitjaði hans í draumum næstu nætur. Eyjólfur lét nú að orðum móður sinnár. Hlaða þessi reis aldrei af gmnni en tóttin stóð óhreyfð ámm saman. Höfundurinn er fyrrum skólastjóri. Frá leiksýningunni á Kaj Munk / Hallgrímskirkju. Frá vinstri: Reinhold Richer, Amar Jónsson, Ragnheiður Tryggvadóttir og Jón Hjartarson. ofstækisfyllstur — þar sem hann var. Við hlutum að virða staðfestu hans, trú og heið- arleika. Samhryggð okkar með Dönum og fjölskyldu hans var sár og einlæg, þegar okkur urðu örlög hans kunn. Þegar þessar línur em ritaðar er ég nýbú- inn að horfa á ævidrama Kaj Munks í ótrúlega vel heppnaðri gerð Guðrúnar Ás- mundsdóttur, sem leikstýrir verki sínu og leikur eitt hlutverkið. Amar Jónsson er eins og skapaður til þess að sýna þennan sterka persónuleika, mikla guðsmann, ættjarðarvin og trúarhetju. En leikritið verkar fyrst og fremst sem heild. Allir leikaramir, og þá ekki síst þeir yngstu, gera skyldu sína. Og hið sama má segja um tónlistarfólkið. Hvergi veikur hlekkur. Hér er píslarvottur og þjóðhetja. Auðvitað ber höfundi hástig lofsorðanna. Ég get ekki að neinu fundið. Varð alveg huganginn. H O R F T w A H E 1 M 1 N N EFTIR GABRIEL LAUB FJANDI VOR PAPPÍRENN Við búum undir hlíðum pappírsfjallanna, pappírsskriður hellast niðryfir okkur. Pappír ræður bæði innra og ytra landslagi okk- ar. Yfirvöld, auglýsingastofur, bókaútgefendur em í pappírsstríði við okkur. Við reynum að veijast eftir megni og tortímum á hveijum degi öllum þeim pappír sem við getum — því annars mundum við kafna í öllum þessum pappímm, grafast undir flaumnum. í pappírshijáðu og pappírsmenguðu heilabúi mínu er pappír einlægt slæmur fyrirboði: einhverslags skilningsvana ánauðar — einsog tilað- mynda áróðursbæklinga og tiiskipana; einhvers sem bíður úrlausnar eða þá svars — tildæmis reikningar og kröfur eða þá sendibréf; einhvers sem mnnið er kanski út — skírteini alskonar tilaðmynda; einhvers sem þarf að lesa — þannig em bækur og tímarit sem haugast upp; einhvers sem þyrfti að skrifa — allur þessi óskrifaði drifhvíti pappír sem mænir biðjanöi uppá mann. Eins getur pappír líka táknað það- sem vantar, þaðsem engin leið verður nokkumtíma að nálgast. Ég á náttúrlega við peningaseðlana sem vitaskuld em sá eini pappír sem allir vildu nú hafa meira af. Margoft styn ég undir fargi skrifaðs og óskrifaðs pappírs og krossbölva þá Kínveijanum gamla sem fann upp þetta pyndingartæki. Sagan segir að hann væri ráðherra og héti Tsæ Lún. Þetta á að hafa verið árið 105 að vom tímatali. Það er vitaskuld haugalygi því fundist hefur pappírsskjal sem talið er sjö ámm eldra. Enda gat það heldur ekki verið því ráðherrar hafa aldrei fundið uppá neinu — nema vitaskuld nýjum sköttum og tollum. Það er þó allrar athygli vert að hin vísa þjóðsaga skuli tengja uppfundningu pappírsins við þennan embættismann ríkisins. Því — hvað hefðum við svosem að gera við pappírslausa embættismenn? Enda þótt ég gæti líka alveg hugsað mér fomaldarskattheimtumann sem látið hefði grafa hótanir á steintöflur og sent þær til vesælla þegna sem skulduðu ríkinu núll físka og núll skeppur af komi. En sjálft ritverkið á þeim hótunum mundi að vísu hafa sett sköpunarþrá embættismannsins vissar skorður. En hvorki þjóðsagan né heimild- ir sagnfræðinga telja nokkum minnsta vafa á því að pappír hafi verið fundinn upp í þágu embættismanna. Pappír hefur svo marga góða kosti sem aftur hafa vondar afleiðingar fyrir okk- ur. Hann er tiltölulega ódýr, meðfærilegur og endingargóður.. Verst er þó hversu þolinmóður hann er. Það gerir hann að helsta næringarefni skriffinskunnar. En hvað gagnar okkur þá pappírinn — ef horft er burtu frá þessum notum hans? Jú, hann varðveitir hugsanir og þekkingu fyrirrennara vorra. Og hvað með það? Ekki vom þeir spakari en við erum — þá væri öðruvísi umhorfs núna í heiminum. Okkur finst þeir bara hafa verið spakari vegna þess að það er ekki nema partur af hugarburði þeirra varðveittur, svolítið úrval. Annað er líka það að við lærum aldrei neitt af þeim eldri — ekkert gagnlegt minstakosti — annars væmm við naum- ast svona einsog við emm. Kveðskapur og frásagnarlist var orðið háþróað löngu fyrir daga pappírsins, meir- aðsegja fyrir daga allrar ritlistar og rúnaskriftar. Glæsileiki frásagnarlistarinnar dofnar allur með tilkomu pappírsins — þá hættu sögur að ganga mann framaf manni og slipast í meðfömm þeirra allra, hætt var að nota rándýrt skinn eða perga- ment tilað skrifa á svo menn urðu kæmlausari með það sem ritað var. Frásögnum beinlínis hrakaði. Berið gömul ævintýri samanvið obbann af því sem nútildags birtist á prenti og þið skiljið hvað við er átt. Pappírinn er þolinmóður og reynir líka að þvinga okkur til þolinmæði. Enda sýn- um við flestu orðið þolinmæði, pappímum sjálfum meiraðsegja. Pappírinn hefur orðið að forlögum okkar. Nýju miðlamir losa okkur aldrei við pappírinn. Þeir em sjálfír um það bil níutíu og níu prósent pappír og stundum er þaðan lítið að heyra nema skijáf í pappír. Pappírinn er samt ekki höfuðóvinurinn, höfuðóvinurinn emm við sjálf. Gallinn við pappír er sá að hann er í vitorði með okkur og nýtist sem vopn. Þolinmæði hans gerir okkur kleift að skrifa sekt okkar og samviskukvalir niðrá pappír — og birta svo hauga af pappíram með harmatölum um pappír. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 28. FEBRÚAR 1987 13

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.