Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 28.02.1987, Qupperneq 9

Lesbók Morgunblaðsins - 28.02.1987, Qupperneq 9
ÓMAR STEFÁNSSON er fæddur 1960 og býr í Reykjavík. Hann er að minnsta kosti þekktur meðal þeirra, sem fylgj- ast með myndlistarsýn- ingum í höfuðstaðnum. Nýlega hélt hann sýningu í Galleríi Svörtu á hvítu, sem vakti talsverða at- hygli. Ómar er expressj- ónisti af nýja, þýzka skólanum, enda hefur hann stundað framhaldsnám i Hochschule der Kiinste í Berlín þar sem kröftug vinnu- brögð eru höfð í hávegum.Áður hafði hann numið við Myndlista-og handíðaskóla ís- lands. Myndin sem hér sést, heitir Píanó pikknikk. Hún er 100x80 cm á stærð. BJARNI SIGURBJÖRNSSON er fæddur 1966 og býr í Kópavogi. Hann hefur sótt námskeið í myndlist í Myndlistarskóla ís- lands, en hefur annars lært bifreiðasmíði og starfar við það. Sam- kvæmt fáanlegum heim- ildum er þetta fyrsta sýning, sem Bjami tekur þátt í. Hann hefur verið minnugur hinnar upphaf- legu forskriftar sýningarinar, því myndin sem hér birtist heitir: Það er gott að geta létt á höfðinu og látið tölvuna um það að hugsa. Stærð myndarinnar er 120x90 cm. HELGI ÞORGILS FRIÐJÓNSSON er ugglaust þekktastur þátttakenda í sýning- unni, enda hefur hann látið mikið að sér kveða í myndlistarlífi hérlendis og tekið þátt í fjölda sýn- inga erlendis með þeim árangri að verk eftir hann er nú á Nútíma- safninu í Stokkhólmi. Helgi Þorgils er fæddur 1953. Hann nam fyrst í Myndlista- og handíðaskóla íslands og var síðan við framhaldsnám í tveimur listaskól- um í Hollandi frá 1976-1979. Helgi býr í Reykjavík og hefur unnið þar að myndlist sinni jafnframt því að kenna við Myndlista- og handíðaskólann. Myndin sem hér er birt, heitir Stefnumót og er 210x75cm á stærð. ÞORVALDUR ÞORSTEINSSON er fæddur 1960 og býr í Reykjavík. Hann á að baki fjölbreyttari náms- feril en hinir þátttakend- umir: Stúdent frá MA 1980 og íslenzkunám í Háskóla íslands ’81-’82. Myndlistarnám hófst með námskeiði við Mynd- listarskólann á Akureyri og síðan í Myndlista- og handíðaskóla íslands 1983-87. Þorvaldur hélt 3 einkasýningar á Akureyri, þá íjórðu í Cosy Comer og nokkr- um samsýningum hefur hann tekið þátt í, þar á meðal UM 83. Hann hefur auk þess myndlýst bamabók fyrir Mál og Menningu. Á myndinni sem hér birtist hefur hann bmgðið upp frægum Akureyringi og nafnið er við hæfí: Eitt eilífðar smáblóm. Myndin er 120xl50cm á stærð. E w j LW ifi 1 ... -. WL ; A jk-. 1 'v l{ B ji , - j j&l í 5» \£ j JÓNÍNA MAGNÚSDÓTTIR er fædd 1955 í Reylq'avík, en búsett í Danmörku síðan 1982. Hún lauk námi úr kenn- aradeild Myndlista- og handíðaskóla íslands 1978 og kenndi síðan mynd- og handmennt við Sérkennslustöð Kópa- vogs frá ’78-’82. í Danmörku hefur Jónína lagt stund á frekara myndlistamám, m.a. í postulínsmálun og kennt þá grein jafnframt. Myndin sem hér birtist, heitir Sólarsýn og er unnin á flísar með postulínslitum. Stærðin er 85x65cm. Jónína hefur ekki tekið þátt í sýningu áður en ætlar að halda sína fyrstu einkasýningu í marz. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 28. FEBRÚAR 1987 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.