Lesbók Morgunblaðsins - 07.03.1987, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 07.03.1987, Blaðsíða 8
f i Litmyndir: Myndiðn/Leifur Þorsteinsson. Stærsta kirkjulistaverk á íslandi Víðistaðakirlga í Hafnarfirði er enn í byggingu, en stefnt er að vígslu hennará þessu ári. Álmumar hil hægri lykjast utan uin tjöm og uppúr henni á tuminn að standa. ILesbók stendur umfjöllun um myndlistarmenn venjulega í sambandi við sýningar, sem eru á döf- inni, stundum stórar, en stundum litlar. Naumast verður það talinn minni viðburður, þegar lokið er við stærsta kirkjulistaverk landsins, sem tekur yfír hvorki meira né minna en 200 fermetra og er að sjálfsögðu ætlað að standa um ókomn- ar aldir eins og allt, sem snertir þá stofnun. Sjálf er kirkjan að öðru leyti í byggingu, en vonir standa til þess að hún verði vígð á þessu ári. Dagurinn í dag markar þó merk áfangaskil, því söfnuðinum gefst nú kostur á að líta augum þá hina stóru fresku Baltasars, sem hann hefur nýlega lokið við. Víðistaðakirkja er byggð á fallegum stað í hrauninu í norðurbænum í Hafnarfirði; hún er hringlaga þegar inn er komið og tekur myndin yfir fímm veggi, sem mynda boga og mæta kirkjugestinum um leið og hann kemur inn úr dyrunum. Á teikningunni af kirkjunni er gert ráð fyrir ijöm úti fyrir og umlykur kirkjan hana að hluta. Tuminn á að rísa uppúr tjöminni og inngangurinn í kirlg'una er jrfír brú, sem liggur yfír tjömina og gegnum tuminn. Það er allt ennþá óunn- ið. Höfundar þessarar athyglisverðu bygg- ingar em þau Óli G. H. Þórðarson arkitekt og kona hans Lovísa Christiansen, sem er innanhússarkitekt og sér um þá hlið málsins. Baltasar hefur nýlokið við 200 fermetra fresku í Víðistaðakirkju í Hafn- arfirði, þar sem nýjustu verktækni var beitt við þessa fornu aðferð, en myndefnið sækir lista- maðurinn í Fjallræðu Krists 8

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.