Lesbók Morgunblaðsins - 14.03.1987, Side 3

Lesbók Morgunblaðsins - 14.03.1987, Side 3
IKIIrtg 1! [ö| U @ [U] ® H] 0 ® 0 ® Œl ® Sl Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvstj.: Haratdur Sveinsson. Ritstjórar: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aðstoö- arritstjóri: Bjöm Bjamason. Ritstjómarfulitr.: Gísli SigurAsson. Auglýsingar: Baldvin Jóns- son. Ritstjóm: AAalstrœti 6. Sími 691100. Forsíðan Myndina tók Sibyl Urbancic úti í Budapest í maí 1985, þar sem Signý Sæmundsdóttir, til hægri á myndinni, var við sjónvarpsupp- töku ásamt ástralskri söngkonu, Pamelu Mildenhall. Sibyl hefur rætt við Signýju og einnig Hauk Pál Haraldsson og Rannveigu Friðu Bragadóttur, en öll stunda þau söngnám í Vínarborg og hafa getið sér góðan orðstír fyrir flutning á Brúðkaupi Fígarós. Kabarett er á dagskrá hjá Leikfélagi Akureyrar og það er enginn venjulegur kabarett, heldur það fræga sviðsverk, sem samið var eftir sögu Isherwoods og á sér stað í Berlín 1930, þegar hún var mest gleðiborg frá því Róm- veijar voru og hétu. Þetta flytur LÁ í tilefni 70 ára afmælis leikfélagsins. Sigurður Guðmundarsonur af Stórahraunsætt hefur gert garðinn frægan úti í Hollandi, en sýn- ir nú verk sín á tveimur stöðum í Reykjavík: í Norræna Húsinu ásamt tveimur Norð- mönnum og í Galleríi Svörtu á hvítu við Óðinstorg. Af því tilefni er greinarkom um listamanninn. Enn fornir í skapi að gerðist hér nýlega, að maður nokkur, sem hafði verið að heiman nokkra daga, hringdi heim. Sonur hans 11 ára tók símann. Faðirinn spurði: „Hvað segirðu?“ og drengur svar- aði „allt ágætt" og dró seiminn. Síðar kom fram í samtali þeirra, að hann hafði handleggsbrotnað, en hann fylgdi siðvenju og sagði „allt ágætt“. íslendingar bera sig vel og gera lítið úr vanlíðan annarra. „Honum líður vel eftir at- vikum," er sagt, þegar atvik eru þannig, að manninum hlýtur að líða illa. Ég spurði eitt sinn um fólk mér kunnugt. „Þeim líður vel eftir ástæðum," var mér sagt. Ég forvitnaðist um ástæður fólksins og þá kom í ljós, að þær voru slæmar. íslendingar töldust hamingjusamari en aðr- ar þjóðir samkvæmt nýlegri könnun á lífsvið- horftim. Raunar var aðeins kannað, hvemig fólk lét af sér. Svörin voru í stíl við orðtak ömmu minnar: „og það er þó alltaf búnings- bót að bera sig karlmannlega," en svo kvað Kristján Fjallaskáld. (Ekki entist honum bún-_ ingsbótin lengi, hann lézt 26 ára gamall.) I Hávamálum er hollræðið „glaður og reifur skuli gumna hver, unz sinn bíður bana“, og enn kvað Þórir jökull á banastund „skafl beygjattu, skalli, þótt skúr á þig falli“. í þessu efni er því allt við það sama með þjóðina frá upphafi. Fyrsti íslenzki forsætisráðherrann felldi hið hressilega viðhorf í stuðla: „Ég vildi það yrði nú ærlegt regn og íslenzkur stormur á Kalda- dal.“ Og enn kvað hann: „og — alltaf má fá annað skip og annað föruneyti". Ég hef ekki þurft að horfa á eftir neinum mér nákomnum í sjóinn, en ég hef oft hugsað, þegar ég heyri framangreint sungið, hvemig samtíðarmönn- um skáldsins var innanbrjósts að heyra slíkt, sem þúsundum saman höfðu misst son, föð- ur, bróður og eiginmann í sjóinn. Hefur heyrzt um sjómann, sem neitaði að fara í róður, þótt hann sæi, að það væri flan? I nútímanum fá mannalætin mynd í ávarps- orðunum „ertu ekki hress?" Sumir útvarps- þulir og þáttastjómendur eru syngjandi hressir, en aðrir tala stillilega og í sama tón, nema þegar þeir segja sorglegar fréttir; þeir heyrast samt. Víst er ánægjulegast að hitta fólk, sem ber sig vel og er glaðvært, ef slík framkoma er eðlileg, en ekki tilgerð samkvæmt tízku. En sorgin á líka sinn tíma. Það er illa gert að hasta á þann, sem grætur, bam eða fullorð- inn, eins og oft má heyra. Víðtækar rannsókn- ir, sem brezki sálfræðingurinn Eysenck kynnti í fyrrahaust í erindi í Krabbameinsfélaginu í Reykjavík, benda eindregið til þess, að þeir lifi helzt af krabbamein, sem bæla ekki niður angist sína, þegar slíkt mein kemur í ljós. Kona nokkur fékk illkynjað mein, og kvartaði og bar sig illa. Að því var fundið við hana. Konan lifir enn. í eftirmælum dagblaðanna er dauðastríði krabbameinssjúklinga furðu oft lýst svo, að „aldrei heyrðist æðmorð frá honum“ eða „hún kvartaði aldrei". Slík viðbrögð þykja lofsverð, en kunna sem sagt að bera dauðann í sér. Víst þurfa fullorðnir oft að harka af sér, en böm, sem ekki fá að gráta af þörf (þau gráta aðeins af þörf) gráta inn í sig og munu aldrei þola mikið fullorðin, þótt þau kunni að temja sér að bera sig mannalega. Hvað er að vera forn í skapi? Er það að bera sig vel samkvæmt Hávamálum, þótt innra blæði? Er það líka að vera „hress" í nútímastíl? BJÖRN S. STEFÁNSSON Jóhannes úr Kötlum Ævi ágrip Ég Jóhannes Bjarni Jónasson skáld úr Kötlum, — fyrrum Jói í Seli, litli óþekktarhnokkinn, sem óttaðist hjólið, hataði fjalldrapavöndinn, en hlaut þó sannleikans vegna að stelast í rokkinn, - bið forláts á því, að enn er ég oftast í klípu og óánægður með heiminn, þjóðina og flokkinn. Mitt líf hefur mestan part lent í villu og svíma: í labbi og áti og svefni og þvíumlíku. Og ég skammast mín sárlega fyrir þá forsmán að lenda í fátæktarbasli, skáldskap og öðru slíku. Og eins bið ég guð og forseta að fyrirgefa, að ég fór ekki strax í bernsku til Ameríku. Ognú minnist égþess hve krumminn krunkaði á skjánum, hvað ég kvaldist af því að hafa aldrei séð dúfu. Og eins þegar jökullinn faldaði fagurhvítu, hvað ég fyrirleit mína skítugu hundaþúfu. Og eins þegar sýslunnar yfirvald þingaði í dalnum, hvað ég öfundaði manninn af þvílíkri húfu. En langmestur var þó Ijóminn í augum mínum af landvarnarsólinni nítján hundruð og átta, þegar Bjarni frá Vogi stóð keikur við kirkjudyrnar og krafðist þar andvöku, — bannaði mönnum að hátta. Þann dag fannst mér himinninn hrópa í fyrsta sinni og heimta mig strax á vit sinna björtu nátta. Nú vissi ég hina knýjandi köllun mína: að kveða vort land inn í fegurð hins nýja tíma. Og til þess að fá þetta frelsi, sem Steingrímur dáði, við fornaldartröllin ætlaði ég að glíma. Ég hlakkaði til og efaðist aldrei um sigur, — ég var ungur og stæltur og mesti forkur að ríma. En áform mitt reyndist uppblásin sápukúla, sem undireins sprakk, þegar fyrstu haglkornin dundu í gerningaveðrinu fyrra, frá fjórtán til átján, — égfann, hvernigstoðir mannlífsins titruðu oghrundu og hvernig ég sjálfur minnkaði og missti kjarkinn, — mitt mark hefur verið að lækka frá þeirri stundu. Svo kenndi ég börnum — og beið milli vonar og ótta, í biblíutrúnni og forfeðraskruminu hálfur. En þegar ég Ieit yfir Iandabréf skólans, þá fann ég, hve lítið ég vissi um þjóðir heimsins og álfur, ogkomst áþá skoðun, að skáldið, sem börnunum kenndi, væri skelfilegt flón — og langmesta barnið sjálfur. Og þrjátíu og níu, er váin í annað sinn veittist að vesalings Jóa í Seli uppi í Kerlingarfjöllum, þá varð égsvo hræddur, að sólin varð svört eins og tjara, — ég sat þar við læk og bað guð að hjálpa okkur öllum. Og ég segi það rétt eins og er, mínir elskanlegu, að þá öfundaði ég smalana á Betlehemsvöllum. Og ég, sem átt hefði að duga til þess að drepa og drepast, rétt eins og aðrir mannanna synir, bið forláts á því, að ég fékk ekki kúlu í brjóstið og fúnaði niður í moldina eins og hinir. — Því kannski eru þessir, sem þraukuðu, fjendur mínir, en þeir, sem féllu, mínir einustu vinir. Jóhannes úr Kötlum fæddist 1899 að Goddastöðum í Dalasýslu og dó 1972. Hann tók kennarapróf frá Kennaraskólanum, kenndi f Reykjavfk og vestur í Dölum, en bjó seinni- part ævinnar bæði f Reykjavík og Hveragerði og var lengi umsjónarmaður f Skagfjörðsskála Ferðafélags íslands í Þórsmörk. Fyrir utan 20 Ijóðabækur gaf Jóhannes út 5 skáldsögur. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 14. MARZ 1987 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.