Lesbók Morgunblaðsins - 14.03.1987, Side 11

Lesbók Morgunblaðsins - 14.03.1987, Side 11
litlum stað. Enda var ekkert til sparað að hæna fólk að sýningunum og þar sem pen- ingaeign var ekki almenn var t.d. auglýst í Stefni (11/2 1898) ... „þeir sem ekki hafa peninga, mega borga inngöngumiða með íslenzkum vörum, svo sem prjónasaum, ull, smjöri og fl.“ Þá voru auglýsingar þeirra ára býsna tilkomumiklar. Skugga-Sveinn 1877—8 var t.d. auglýstur með kröftugum fallbyssuskotum sem heyrðist um bæinn og næsta nágrenni. En „kanónan“, sem var svartur járnhólkur rúmlega alin á lengd, var stundum notuð til að kynna komu vöruskipa og einnig ef síld kom inn á fjörðinn." Tildrögin að stofnun félagsins voru þau að haustið 1916 tóku nokkrir ungir menn sig saman með Gísla Magnússon í farar- broddi og gerðu samning við templara um leigu á leikhúsinu þennan vetur. Skugga- Sveinn var leikinn og var frumsýning í janúar 1917. Nokkrir, svo sem Jón Stein- grímsson (Skugga-Sveinn), Páll Vatnsdal (Ketill skrækur) og Ingimar Eydal (Sigurður í Dal), af öðrum leikendum skal minnst á unga parið Harald og Astu, sem þau Jóhann Kröyer og Eva Pálsdóttir léku, Gísli Magn- ússon lék Lárenzíus sýslumann, Sigtryggur Þorsteinsson lék Ögmund og Jóhannes Jón- asson lék Grasa-Guddu af mikili snilld. Stúdenta léku Konráð Jóhannsson (síðar gullsmiður) og Hallgrímur Sigtryggsson. Einn af púkunum var leikinn af ungum pilti, Jóni Norðfjörð, sem síðar varð einn fremsti leikari bæjarins og margoft leik- stjóri. Aðsókn að sýningum var fádæma góð og urðu oftast margir frá að hverfa. Sýning- ar þessarar er hér getið sérstaklega vegna þess að allmargir leikendur úr Skugga- Sveini mynduðu kjarna þess hóps sem hófst nú handa að sameina leikkrafta í bænum og stofnuðu Leikfélag Akureyrar á sumar- daginn fyrsta 1917. Stofnendur voru þessir: Hallgrímur Valdi- marsson, Júlíus Havsteen, Sigurður E. Hlíðar, Gísli Magnússon, Ingimar Eydal, Jón Steingrímsson, Páll Vatnsdal, Sveinn Á. Bjarman, Guðbjöm Björnsson, Jónas Jónas- son, Jóhannes Jónasson, Pétur Þorgrímsson, Sigtryggur Þorsteinsson og Hallgrímur Sig- tryggsson og mun hann vera eini stofnand- inn sem enn er á lífi. Höfundurinn er leikari og leikhússtjóri á Akur- eyri. Lotte Lenya í hlutverki frk. Schneid- er í frumuppfærsiunni í New York 1966. henni. Hún þótti efnileg, fékk Tony- verðlaunin, en var ekki nógu þroskuð til að ráða við hlutverkið. Hún var enn ekki nema meðal leikkona, satt best að segja, klunnaleg, og í söng stældi hún enn móður sína, Judy Garland. Það var ekki fyrr en í kvikmyndinni Kabarett 1972 sem hún fékk að glíma við Sally og stóðst þá raun með þvílíkum ágætum að hún hlaut heimsfrægð fyrir. Kvikmyndin sópaði að sér Óskars- og öðrum verðlaunum. Kabarett var sýndur í London 1968 og var Judi Dench í hlutverki Sally Bow- les. Aftur er verið að sýna Kabarett í London á þessu leikári með dansaranum Wayne Sleep í hlutverki skemmtana- stjórans. Kabarett var sýndur hjá Þjóðleikhús- inu leikárið ’72—’73 og þá var Bessi Bjamason í hlutverki skemmtanastjór- ans og Edda Þórarinsdóttir Sally Bowles. Úr sýningu Appollo-Ieikhússins í Berlín 1930. Berlín 1930 Villtasta gleðiborg sem sögur fara af síðan á dögum Rómverja Ilok fyrri heimsstyijaldarinnar vom Þjóðverjar neyddir tii uppgjafar, afvopnaðir, þeim gert að greiða háar stríðsskaðabætur, og stór landsvæði tekin af þeim, þar á meðal nýlendur þeirra. Fyrirsjáanlegt var að þessi friðargerð gæti ekki staðist til lengdar. Hvorki væri Þjóðveijum fært að greiða þær stríðsskaðabætur sem af þeim vom heimtaðar, né heldur gætu þeir með nokkm móti sætt sig við þau landamæri sem þeim vom ákveðin. 1920 skrifar Matthías Jochumsson í bréfi til Kristjáns Albertssonar: „Verra axarskaft en Parísarfriður þeirra Clemenceau finnst varla í sögu hnattarins.” Margir Þjóðverjar vom á því að ekki skyldu líða tuttugu ár áður en Þjóðverjar gerðu upp sakir við Vesturveldin. Weimar-lýðveldið var stofnað 11. ágúst 1919 og stóð fram að valdatöku Hitlers 30. janúar 1933. Á þessum árum magnast í Þýskalandi einhver ótrúlegasti samfélagsglundroði sem um getur og Berlín var miðpunktur þessa glundroða. Stanslaus verkföll, óðaverðbólga, ótrúlegt atvinnuleysi, uppþot, uppreisnartilraunir, spilling, gífurleg fátækt, glæpir og vændi blómstra o.s.frv. Stjórnmálin voru óendanlega flókin og óstöðug. Verndartollar nýlenduríkjanna gera Þjóðverjum ókleift að selja iðnaðarvörur sínar. Kreppan kemur og herðir á glundroðanum. Það einkenniiega er að á þessum ámm rísa listir hæst í Berlín. Leikhús, kvikmyndir, bokmenntir, tónlist og myndlist blómstra. Alls staðar vom prófaðir nýir hlutir og áhugi almennings var mikill. Leikhúsin sýndu allt frá grísku harmleikjunum og Shakespeare til óperettanna. Revíur með risa skrautsýningum og kabarettar af öllum gerðum. Allt gekk. Til Berlínar safnaðist stór hópur gáfaðra og merkilegra lista- og menntamanna. Allt þetta listalíf hmndi við valdatöku Hitlers og listamennirnir hundeltir. Sumum tókst að flýja og marga þeirra dró Hollywood til sín. Við hliðina á þessu geisaði svo annað Christopher Isherwood Höfundur bókarinnar Berlín kvödd, sem út kom 1939 og söngleikurinn Kabarett er byggður á Christopher Isherwood Breski rithöfundurinn Christop- her Isherwood (1904—1986) var af virtri ætt í Cheshire, hlaut menntun sína í Repton og Cambridge og hóf meira að segja læknisnám, en hætti fljótt. Hann var sífellt í þögulli uppreisn gegn uppmna sínum. Fyrsta bók hans, „All the conspir- ators“ kom út 1928. Hann kom í fyrsta sinn til Berlínar í mars 1929 í fylgd með skáldinu W.H. Auden. Hann ferðaðist þangað aftur í júlí og nóvember sama ár. Segja má að hann hafi búið samfellt í Berlín frá september 1930 til ársbyijun- ar 1933. Isherwood var ekki fjáður maður og vann því fyrir mat sínum og húsnæði með því að kenna ensku. Eftir Berlínardvölina sendir hann frá sér bækumar „Herra Norris skiptir um lest“ 1935 og „Berlín kvödd“ 1939, en á þeirri bók er leikritið „Ég er mynda- vél“ og síðar söngleikurinn „Kabarett" byggð. Síðar koma tvær bækur í viðbót, sem tengjast Berlín. I gegnum smásögur hans frá Berlín, kryddaðar með geðfelld- um gæum, frökkum og eggjandi stelp- um, bijóstgóðum húsráðanda og skítblönkum útlendingum, glittir á skugga þess hryllings sem í vændum er. Upphaflegt nafn hans fyrir bókina „Berlín kvödd“ var „Hin glötuðu" („Die Verlorenen"). Áhugi Christophers Isherwood á Berlín var hvorki tengdur þeirri listrænu örvun, sem þar var að hafa, né því pólitíska öngþveiti sem þar ríkti. Síðar afsakaði hann sig og yppti áhyggjulaust öxlum yfir því að hafa ekki haft viðtöl við pótintáta eins og Hitler, Goebbels, eða Göring, á þeim tímum er þeir höfðu áhuga á að skapa góða mynd af sér í Bretlandi. Fyrir honum voru þessir ná- ungar einungis hlægilegar fígúrur. Þegar Hitler komst til valda með aðstoð Hindenburg gamla, skrifaði hann móður sinni: „Charlie Chaplin og jólasveinninn eru búnir að taka við.“ Það var aðeins eitt sem dró hann þangað. í Berlín gat hann loks lifað óáreittur vegna samkynhneigðar sinnar. í Bretlandi voru hörð viðurlög við sam- kynhneigðum athöfnum. I Berlín var stofnun sem Magnús nokkur Hirschfeld hafði komið á fót 1919 og hann nefndi „Institut fur Sexu- alwissenschaft". Hann var sjálfur samkynhneigður og til stofnunar hans kom fólk hvaðanæva úr heiminum, ekki bara samkynhneigt fólk, heldur einnig manneskjur með önnur kynferðisleg vandamál. Með samtölum reyndi hann að „lækna“ fólkið, eða öllu heldur hjálpa þeim til að skynja og skilja sérstöðu sína. Hirschfeld yfirgaf Þýskaland strax 1930, skömmu eftir að Isherwood komn þangað. Stofnun hans, safn og bókasafn brenndu nasistar 1933. Christopher Isherwood kom sér snemma frá þessari stofnun, en þar eign- aðist hann sína fyrstu kunningja í Berlín. Hann stundaði bari samkynhneigðra og dróst aðallega að stórvöxnum, grófgerð- um strákum úr fátækrahverfum Berlínar og borgaði fyrir sig. Einn þessara stráka, Heinz, fylgdi honum síðar á ævintýraleg- um flótta um alla Evrópu, fýrst undan hommaofsóknum nasista, en síðar vegna þess að hann fékk hvergi dvalarleyfí fyrir stóru ástina sína. Isherwood skrifaði handrit fyrir Heinz, þegar hann var að reyna að koma honum inn í Bretland. í handritinu var það sem hann átti að sgja við embættismann út- lendingaeftirlitsins. Því miður gleymdi Heinz einhveiju tilsvari og leit á blaðið og þeir félagar voru aftur komnir á flakk. Flóttamannanefnd Þjóðabandalagsins sáluga upplýsti að skömmu eftir valda- töku Hitlers væru 65.000 manns á flótta undan nasistum. Þessum flótta Isherwoods lauk ekki og fékk þar ríkisfang fýrr en hann flutt- ist til Bandaríkjanna. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 14. MARZ 1987 1 1

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.