Lesbók Morgunblaðsins - 16.05.1987, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 16.05.1987, Blaðsíða 8
Holskeflur sífellt nýrra áhrifa dynja á listamönnum Rætt við Einar Hákonarson í tilefni sýningar sem hann opnar á Kjarvalsstöðum í dag. Iformála að sýningarskrá vegna sýningarinnar, sem Einar Hákonarson opnar á Kjarvalsstöðum í dag, segir hann svo meðal annars: „Framan af málaði ég myndir, er sýndu hlutskipti manneskjunnar í vélrænum og oft fjandsamlegum heimi. Oft var það einstaklingurinn undir fargi vélvæðingar, þéttbýlis eða múgmenningar". Og ennfrem- ur segir hann þar: „Eg er kannski skilgetið afkvæmi þeirrar frásagnarhefðar, sem löng- um hefur mátt finna hér á landi. Frá- sagnarlöngunin hefur verið ríkur þáttur í verkum mínum, bæði bein og óbein, svo og íslenzk menningararfleifð“. Þessi orð eru athyglisverð af tveimur ástæðum. í fyrsta lagi er fremur óvenju- legt, að myndlistarmenn birti eigin stefnu- yfírlýsingu eða skilgreini hugmyndafræði sína í tengslum við sýningarhald. Þetta er þó mjög við hæfi; auðveldar listsagnfræð- ingum mat á listamanninum síðar meir og auðveldar sýningargestinum að komast í samband við verkin, ef vel er að þessu stað- ið. Listamenn hafa stundum vikizt undan því að fylgja verkum sínum úr hlaði í sýning- arskrá, en þess í stað fengið einhvem annan, rithöfund eða jafnvel gagnrýnanda og þá hefur verið sagt í gamni og alvöru, að þeir væru að kaupa sér hagstæða gagnrýni. Vitanlega eiga listamenn að hafa burði til þess að skrifa sjálfír formála, ef þeir telja slíkt til bóta í sýningarskrá. Það er óhugs- andi að einhver annar en þeir sjálfír komizt nær kjama málsins. I öðru lagi er það óvenjuleg hreinskilni, að málari telji sig skilgetið afkvæmi frá- sagnarhefðar. Þegar þröngsýnin ríkti ein á abstrakt-tímabilinu um og uppúr miðri öld- inni, var á allan hátt reynt að gera frásagn- arlega myndlist tortryggilega, m.a. með þeim orðalepp, að hún væri þarmeð „bók- menntaleg", sem var vitaskuld eins og hver önnur þvæla útí loftið. Það hefur heldur ekki verið í tízku hjá yngstu kynslóðinni, sem hefur sitt vit umfram allt úr tímaritun- um, að viðurkenna eitthvað sem kalla mætti íslenzkan veruleika. Það er víst alveg gasa- lega sveitó og óhugsandi fyrir fólk sem hefur komið til Hollands. Það er vandséð hvemig Einar ætlar að standa þetta allt saman af sér; hann lýsir því nefnilega einn- ig yfír í skránni, að hann fjalli um íslenzkar aðstæður og fólkið í landinu eins og hann upplifír það. En hann tekur einnig fram og biður menn að hafa hugfast, að myndmál sé eitt og skrifaður texti annað. Eins og flestir vita, sem fýlgjast eitthvað með í myndlist, hefur Einar nýlega verið ráðinn forstöðumaður Kjarvalsstaða til næstu íjögurra ára. Hann hefur aftur á móti einvörðungu unnið að myndlist undan- farin 5 ár og það var gott og gjöfult tímabil, sem hafði í för með sér geijun og breyting- ar og birtast þær ekki hvað sízt í þeirri hugmyndafræði, sem að baki býr. „Mér fínnst ég loks núna búinn að ná merkjanlegum þroska“, segir Einar, þegar við reynum í sameiningu að skilgreina þró- Að tjaldabaki, 200x150 sm Einar Hákonarson - „Þvi miður verðurað viðurl eru gagnslausar menntastofnanir. Þaðfyrirbæi unina hjá honum. „Þetta er beint áframhald af mínu fyrra málverki, en breytingin er einkum sú, að huglægt inntak myndanna hefur eflst. Allar mínar myndir hafa verið skáldskaparlegs eðlis í þá veru, að ég nota aldrei nein mótíf, sem ég mála beinlínis eftir, nema þegar ég mála portret. Ég nota oft landslag, en oftast sem baksvið og það verður þá um leið þáttur í myndbyggingu. En það hefur yfírleitt ekki verið þekkjanlegt landslag. Það sem er nýtt núna er notkun á tákn- rænum atriðum, symbólum, sem notuð eru til þess að miðla táknrænni merkingu og um leið sem hluti af myndbyggingu. Og eins og ég tek fram í sýningarskránni: Allt- af að segja frá einhveiju, - þannig hefur það verið síðan ég fór að líta á mig sem málara." Við ræddum um þann pytt, sem hægt er að falla í þegar mynd byggir á einhveiju frásagnarlegu; nefnilega að verða það sem kallað er á útlenzku „illústatífur" og er dreg- ið af illustration, sem merkir myndlýsing og á við teiknaðar myndir í blöðum og bók- um, til dæmis með smásögum og þvíumlíku, þar sem reynt er að túlka í raunsærri mynd það sem fjallað er um í sögunni. Alvöru lista- menn vilja ógjaman detta f þennan pytt, því þeir vilja skyggnast miklu dýpra og hafa listrænni búning og flóknari framsetn- ingu en heimntað er af teiknara, sem teiknar, segjum með smásögu í Vikunni. Þessi ótti við of mikla nálægð við mynd- skreytingu er til kominn á þessari öld; það er ekki hægt að sjá að hann hafi haldið vöku fyrir listamönnum á síðustu öld til dæmis. Hann er kannski í rénun í seinni tíð og sumir erlendir listamenn, ekki sízt amerí- skir, gefa þessari kenningu langt nef og nægir að benda á frægan málara eins og Eric Fiscl sem dæmi. Sumt af því sem hann hefur gert og hangir nú á virðulegum söfn- um, gætu sem bezt verið myndskreytingar úr Familie Joumal. En það er önnur saga. í myndum Einars sjáum við hinsvegar dæmi um frásagnarlega myndlist, sem er afar fjærri hugmyndinni um illustration. Til þess er hún alltof huglæg. Um þetta sagði Einar í spjalli okkar: „Þegar spurt er um mörkin milli þess sem venjulega er kölluð myndskreyting annars- vegar og fijálsrar myndtúlkunar hinsvegar, þá er verið að fjalla um grundvallarspum- ingu. Til þess að forðast að ákveðin hugmynd komi fram sem myndiýsing eða illustrasjón, hef ég gripið til þess táknræna.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.