Lesbók Morgunblaðsins - 06.06.1987, Page 16

Lesbók Morgunblaðsins - 06.06.1987, Page 16
IO - eitt hinna tólf tungla Júpíters er glóandi víti Við sjóndeildarhringinn aést fyrsta eldgosið, sem orðið hefur vart utan jarðar — á Júpítertunglinu IO. 1 650 milljón km fjarlægð frá jörðu er þunglamaleg, ristastór reikistjama, sem er tvisvar sinnum efnis- meiri en hinar 8 reikistjörnumar til samans. Hún drattast einn hring um sólu á 12 ámm og þarf að dragnast með 12 tungl.“ Svo segir í „Reikistjömunum" í Alfræði- safni AB, sem út kom 1967. Og ennfremur segir þar um tungl Júpíters m.a.: „Júpíter hefur 12 tungl, þremur fleiri en næsti keppi- nautur hans, Satúmus, og hafa þau ýmislegt athugavert í fari sínu. Flest þeirra fylgja nærri algjörri hringbraut um reikistjömuna, en örfá fara eftir sporöskjulagaðri braut. Innstu tunglin 8 snúast í sömu stefnu og reikistjaman, en hin fjögur hafa öfuga umferðarstefnu ... Stærstu og björtustu tungl Júpíters eru kölluð Galileo-tunglin, en Galileo uppgötvaði þau, er hann beindi fyrsta stjömusjónaukanum að himni árið 1609.“ Síðan hefur mikið verið horft út í himin- geiminn með stöðugt betri tækjum. Og hér birtist tiltölulega nýleg frásögn úr norska blaðinu „Farmand", sem aftur byggist á greinum úr „Seience". Linda Morabito var eiginlega að leita að stjömunni AGK3-10021, og það var ekki talið neitt vandaverk. En afstaða stjamar- innar til 10 gæti aukið nákvæmnina við útreikninga á braut tunglsins. Þá uppgötv- aði hún ský, líkt og regnhlíf í laginu, sem steig 280 km upp fyrir sjóndeildarhring IO. Þetta var merkileg uppgötvun. í fyrsta sinn höfðu menn fengið vitneskju um virk eldgos utan jarðar. Uppgötvunin var gerð föstudag- inn 9. marz 1979, og áður en mánudagur var mnninn upp, var búið að finna sex eld- gos á IO. Síðan hafa stjömufræðingar og jarð- fræðingar lagt fram stöðugt fleiri bita í það púsluspil, sem er þekkingin á ofsalega virku tungli. Vitað er, að þvermál IO er 3640 km, að það snýst umhverfís Júpíter í að meðal- tali 421.600 km fjarlægð og að yfírborð þess er samsett af brennisteini og brenni- steinstvísýringi, að ef til vill séu bráðin silíköt í iðmm IO og að kjami þess kunni að vera úr jámi. í tveimur greinum í tímaritinu „Science" hefur nýlega verið skýrt frá því, að geysi- mikil hraunflóð séu að minnsta kosti á þremur stöðum á IO. Þetta hafi verið stað- fest með rannsóknum á stjömuathugunar- stöð á Hawaii. Lögunin varð ekki greind á myndum Voyagers og bendir það til þess, að landslagið sé breytilegt: Rauðglóandi, brennheitt og síbreytilegt helvíti. Stærst hinna þriggja hraunflóða er á Loki-Patera svæðinu og er um 200 km í þvermál. IO er auð reikistjama, án storma og gufu- hvolfs og sennilega em engir gígir þar heldur. Eyðingin kemur sennilega að innan, frá fljótandi brennisteinstvísýringi undir miklum þrýstingi. Hann vellur upp á yfír- borðið eins og hjá gosbmnni. Þegar það gerist, springur vökvinn og verður að gas- og ísskýjum, sem líða út í nístandi kaldan geiminn. Um leið brestur skorpan, sem var yfír brennisteinstvísýringnum, sem hvarf. Sennilega renna hraunflóðin og fijósa sam- an mjög fljótt. Stórir, hvítir blettir nálægt miðbaug 10 benda til þess. 10 er bundið í eilífri togstreitu milli þess og nágrannatunglanna Evrópu og Ganymedus. Þyngdaraflið togar og rífur í yfírborð 10 og veldur þar_ hæðum og dæld- um, „flóði" og „Qöm“. Á ýmsum stöðum hækkar og lækkar yfírborð 10 um hundrað metra annan hvem dag. Sennilega er það þessi virkni, sem veldur hitanum í ytri lögum 10. Maður myndi kjósa að hringsóla um þetta litla tungl í ömggri íjarlægð frá eldgosun- um. Fyrir neðan myndi maður augum líta stórkostlegra og æðisgengnara landslag en hægt er að ímynda sér. Helvíti í vora sól- kerfí hlýtur að vera 10, hið glóðheita andrúmsloft Venusar eða hinir hræðilegu stormar á Júpíter. í samjöfnuði er hin blá- græna Móðir jörð paradís. IO er auð reikistjarna, án storma og gufuhvolfs og sennilega eru engir gígir þar heldur. Eyðing- in kemur sennilega að innan, frá fljótandi brennisteinstvísýringi undir miklum þrýstingi Fáir staðir ísólkerfi okkargeta verið líkari hinu fræga víti (Inferno) Dantes en litla Júpíterstunglið 10. Það erþó ekkimiklu minna en tunglið okkar, en Júpíter er svo stór. Arið 1979flaug gervihnötturinn Voyager Iþarna hjá, og þá uppgötvaði handarískur verkfræðing- ur, kona reyndar, eldgos á einni mynd- inni, sem gervihnötturinn hafði sent til jarðar. Nú hafaþrjú hraunflóð fundizt.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.