Lesbók Morgunblaðsins - 24.10.1987, Blaðsíða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 24.10.1987, Blaðsíða 11
Margrét Jónsdóttír íFTM-salnum ú er síðasta sýningarhelgin hjá Margréti Jónsdóttur, sem sýnir verk sín í FÍM-salnum í Garða- stræti. Hún hefur marg- sinnis áður tekið þátt í sýningum hér og erlendis einnig, enda verið starfandi myndlistarmaður frá því hún kom heim frá fram- haldsnámi í London 1976. Áður hafði hún numið við Myndlista- og handíðaskóla íslands. Margrét er Reyk- víkingur, dóttir Jóhönnu Hannesdóttur og Jóns Ben- ediktssonar myndhöggv- ara. Skúlptúrar hans hafa að sjálfsögðu verið daglega fyrir augum hennar í upp- vextinum og það er ögn merkilegt, að málverk Margrétar virðast vera af höggmyndum. Svo er þó að sjálfsögðu ekki. Þessar ein- kennilegu fígúrur, sem virðast vera úr steini á myndunum, eru hennar eig- in og þær eru einungis málaðar á venjulegan hátt. Að loknu myndlistamá- mi, lauk Margrét námi frá auglýsingadeild Myndlista- og handíðaskólans og hefur jafnframt list sinni unnið á auglýsingastofu og einnig verið myndmenntakennari. Hún vinnur jöfnum höndum með vatnslit og olíulitum, og grafíkmyndir einnig. I janúar og febrúar næst- komandi verður hún í listamannaíbúðinni í París og hyggst nota tímann vel þar og síðar meir er ætlun- in að minnka auglýsinga- vinnuna og snúa sér í vaxandi mæli að myndlist- inni. ANNA BJÖRNSDÓTTIR FYRIR HÖIMD VANDAMANNA Þegar ég finn tímann nálgast fer ég í svörtu sparikápuna og set á mig litla hvíta hatiinn minn með svörtu blómunum, slörinu og öllum minningunum. Svo tek ég til skemmtilegustu bækurnar mínar og lúðrasveitarkonsertana. Horfi í spegilinn í síðasta sinn. Gömul kona með munaðarsvip og broshrukkur í kringum augun. Gömul kona sem fékk svo oft það sem hún vildi. Síðan held ég mína leið út í guðsgræna náttúruna. Hjálparsveit skáta vinsamlegast afþökkuð. Vaka Við skulum vaka í sumarnóttinni. Og þegar haustar og vetrar skulum við samt vaka í sumarnóttinni. Þegar við deyjum skulum við deyja inn í sumarnóttina. Höfundurinn er kennari í Reykjavík. ELÍSABET JÖKULSDÓTTIR Á einum stað Allan tímann hefur hún horft á þig gömul kona Allan tímann meðan þú dansaðir í vornóttinni duflaðir í hauströkkrinu Allan tímann Hvörf Inni í rósagarði fiðlunnar beið sól eftir uppáhaldspíanólaginu sínu Ljóð í litlum fiskum hverfa þegarnetin eru dregin á land Fylgdist hún með þér gamla konan ogþú varst svo ung og þú sást hana aldrei Fyrr en þú komst auga á unga stúlku sem dansaði í vornóttinni og duflaði í hauströkkrinu. Kemur hún Stundum verður alheimur inni í mér Þá. Og aðeins þá. Kemur hún. Tómleikatilfinningin. Þá skýt ég eldflaug á loft til stjarnanna MAGNÚS GUÐBRANDSSON PÓLITÍSKUR ÖKUTÚR — Sambýli númer 2 — Aka saman ítar tveir Albert G og Þorsteinn P elskulegir eru þeir. Annar mælir við sessunaut sinn: Vilji minn skal vera þinn vilji okkar beggja. Aftur á móti ansar hinn: Vilji þinn skal vera minn vilji okkar tveggja. Höfundur er ellilífeyrisþegi í Reykjavík og hafa tækifærisljóð hans áður birst í Lesbók. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 24. OKTÓBER 1987 1 1

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.