Lesbók Morgunblaðsins - 07.11.1987, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 07.11.1987, Blaðsíða 8
Málverk frá 1985 - tengalin við landalag leyna sér ekki. MÁLA Á VETURNA HLAÐÞRAUKA TTL NÆSTA VORS Rætt við BJÖRN BIRNI listmálara sem opnar í dag sýningu á Kjarvalsstöðum Bjöm Bimir er frá Grafarholti, gamalkunnum bæ við enda Grafarvogsins og nú orðinn inn- lyksa í Reykjavíkurborg, enda þótt hann hafí frá gamalli tíð verið í Mosfellssveitinni. Þama fæddist Bjöm fyrir 55 ámm og afí hans var Bjöm gamli í Grafarholti, sem þótti sér- kennilegur maður og sérvitringur svo orð fór af. Ekki verður séð, að Bjöm Bimir hafi erft sérvizkuna, nema þá að hún birtist í því að vilja helzt mála fslenzkt landslag í flatastíl; með öðrum orðum abstrakt. Að öðm leyti er Bjöm Bimir eins og fólk er flest, ijúfur maður í viðmóti og fínlegur eins og litatónamir í myndum hans. Það er áreið- anlega eitthvað til í því, að miklir skap- og geðbrigðamenn máli öðmvísi en þeir, sem oftast em í jafnvægi. Ofsinn, sem birtist í sumum myndum Svavars Guðnasonar og Jóns Engilberts er eðlilegur vegna þess að Málverk frá 1986, sem verður á sýningunni. Þama eru grófari og expressjóní- skarí vinnubrögð en áður var -ennú hefur Björn aftur horfið til fínlegrí áferðar. við heimfæmm hann uppá þessa málara. Ef marka má myndir, hefur Þórarinn B. Þorláksson verið geðprýðismaður og rósem- in hjá Scheving er í fullu samræmi við ljúft fas hans. Bjöm Bimir hefur ekki haldið stórar sýn- ingar eða verið fyrirferðarmikill í listalífínu á annan hátt, en meðal listamanna er hann vel metinn fyrir vönduð vinnubrögð og inn- an abstaktgeirans hefur hann áunnið sér stíl, sem er nokkuð sér á parti í íslenzkri myndlist. Þegar litið er á nýjustu myndir Bjöms, til dæmis þá sem prentuð er á forsíð- unni, á móti myndum frá síðustu tveimur ámnum, má sjá afturhvarf til fínlegri forma og lita, líkt og hann sýndi, þegar hann kom frá Ameríku 1979 og aftur 1981. Hann er í upphafi spurður að því, hvort þetta sé amerískur skóli eða stefna í abstraktlist. „Ameríska málverkið hefur haft áhrif á mig; á því er enginn vafi, enda var ég þar vestra í þijú ár og allan tímann í skólum, bæði í Indiana State University og Univers- ity of Maryland. „Nú er þetta einmitt á tíma þegar kons- eptlistin er að fjara út og nýja málverkið að fæðast sem tízkustefna. Var samt lögð áherzla á abstraktlist í þessum skólum?" „Nei, það var engin sérstök áherzla lög á abstraktlist. Menn em ekki eins tízku- bundnir þar eins og hér. Mér finnst þessi eltingaleikur við tízkustefnur ganga alltof langt hér og nálgast stundum trúarbragð- astríð. Maður vissi um allar hræringar þama, en það er ekkert verið að hlaupa upp til handa og fóta eftir slíku og þaðan af síður að verið sé að halda einhveijum tfzku- bólum að nemendum. Bjöm Birnir - landslagsminni á bak við abstraktið. Þessar tfzkubylgjur koma hver á fætur annarri, en í minni tíð er langmesta bylting- in sú, sem varð með tilkomu módemismans eftir stríðið, þegar landslagsmálverkið sem verið hafði einrátt svo lengi þokaði að minnsta kosti að hluta til fyrir stílfærðri teikningu, sem var afsprengi kúbismans. Þetta þótti - og var reyndar - rosaleg breyt- ing frá því sem verið hafði, enda undanfari þess að skrefið væri stigið til fulls til óhlut- bundinnar myndlistar. Ég man fyrst eftir þesskonar nýmælum í myndum eftir Þor- vald Skúlason og Svavar Guðnason og fleiri málurum, sem stóðu að septembersýningun- um. Ég var í Handíða-og myndlistaskólanum 1949-52 og þá má segja, að abstraktlistin væri að verða að trúarbrögðum. Menn voru á þeim árum mjög spenntir fyrir Vasarely; það var áður en hann tók op-listina uppá sína arma. Herbin hafði líka mikil áhrif; hann var hreinn flatamálari. Ég var í skólan- um með Guðmundi Erró, Sverri Haraldssyni, Braga Ásgeirssyni, Hring, og ári á eftir okkur voru til dæmis Kári Eiríksson og Steinþór Sigurðsson. Af þeim urðum við þó ekki nema þrir abstraktmálarar. Sverrir í nokkur ár, en við Steinþór til frambúðar. Sverrir gerði síðar lítið úr þessu tímabili í list sinni og vildi helzt ekki af því vita, en mín skoðun er sú, að abstraktmyndimar séu með því bezta, sem eftir hann liggur. Við máluðum samt allir fígúratfft í skól- anum og alls ekkert ýtt á okkur þar að gera eitthvað annað, enda var Sigurður Sig- urðsson kennari okkar." „Var það löngu síðar, að þú fórst að leggja fyrir þig abstraktlist?" „Nei, það var f kennaradeildinni á sfðasta

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.