Lesbók Morgunblaðsins - 14.11.1987, Side 9
ilÍSfSí
bein, 1943. Olíulitír á Iéreft.
Dautt tré i Nýju Mexíkó, 1943. Olíulitir & léreft.
„Og af hveiju þótti engum ég falleg,"
þótti henni ástæða til að spyija sig löngu
seinna, „og ég, sem var bara eins árs ..
„Fjölskyldutengslin voru aldrei náin,“
sagði hin níutíu og tveggja ára systir henn-
ar, Catherine Clenert, eftir lát Gíeorgíu og
hin eina eftirlifandi þeirra systkina. Og
annar aðalerfíngi hennar, bróðurdóttirin,
June O’Keeffe Sebring, kvaðst aðeins hafa
hitt listakonuna tvisvar.
Einfaldir Strangir Siðir
— Þetta fólk ræktaði með sér einfalda
og stranga siði, sem voru í nánum tengslum
við náttúruna, og þessi einfaidleiki ein-
kenndi list Georgíu frá fyrstu tíð til hins
siðasta.
Chaterine, amma hennar, fléttaði venju-
lega hár sitt og vafði fléttunum um höfuðið;
hún klæddist bláu heima fyrir, en svörtu,
þegar hún fór í heimsókn. Sú venja hins
þroskaða listamanns að klæðast svörtu með
hvítum kraga eða annars konar einlitum
klæðnaði, með silfrað hárið fléttað eða fest
með pijóni í hnakkagrófína, teinrétta stöðu,
skýran talanda og með samsafn „ósnertan-
legs“ skrauts úr ríki náttúrunnar — allt eru
þetta trúlega meðvituð eða ómeðvituð áhrif
frá ömmunum tveim.
Prá fýrstu tíð hafði Georgía ánægju af
að vinna með höndunum, sem voru einstak-
lega fagrar, og sú árátta hennar að sauma
fín föt á brúður sínar kom óefað frá ömm-
unni Catherinu, sem saumaði allt á sig yst
sem innst. Georgia saumaði einnig ýmislegt
af fötum sínum sjálf, og er hún var orðin
þekktur listamaður, pantaði hún föt sérstak-
lega, sem hæfðu hennar eigin mótaða stíl.
Af framanskráðu er ljóst, að Georgía var
af sterkum, dugmiklum og framagjömum
ættum og þess má geta, að langafí hennar
átti nafnkennda hótelkeðju í miðri New
York-borg. En þessi fjölskylda hefur um
margt verið óvenjuleg, sem marka má af
því, að þótt allir meðlimir hennar að heimil-
iskennurunum meðtöldum snæddu saman
og byggju í hinu stóra húsi, þá fóru þau
hvellt og snöggt: „Þú mátt ekki gera þetta
a-ftur“ (You must no do it a-gain).
ÍRSK í FÖÐURÆTT
En þrátt fyrir allt þá kaus hún heldur
að halla sér að hinu glæsilega nafni hinnar
ömmunnar, Mary Catherine O’Keeffe. Föð-
urættin O’Keeffe fluttist fyrst 1848 frá
Kilkenny á írlandi til Ameríku. Tók sig upp
þaðan, vegna þess að ullarfyrirtæki fjöl-
skyldunnar varð gjaldþrota. Fór með skipi
frá Liverpool til New York, og þaðan var
haldið til vatnanna miklu og svo með uxa-
kerru til Winsconsin, þar sem hún festi sér
Kjúkl-
ingur við
sólar-
upprás,
1917.
Vatnslit-
ir.
Rauðar plómur og bláar, 1920. Olíulitir á léreft.
land þijár og hálfa mflu frá Sun Prairie og
tólf mflur frá Madison. Ræktuðu kartöflur,
kom og næpur og reistu fyrsta grindahúsið
þar um slóðir. Að sjálfsögðu var fólkið kaþ-
óiskt og gerði sér langar ferðir uppábúið í
guðshús.
Georgia var einfari, þótt systkinin væru
sjö, og ólst upp á stórum búgarði með mik-
il umsvif. Foreldrar hennar höfðu alist upp
í nágrannabúgarðinum, sem sameinaðist við
giftingu þeirra. Móðir hennar, Ida Ten Eyck
Totto, var tvítug, þegar hún átti Francis
O’Keeffe í Madison, Winconsin, 19. febrúar
árið 1884.
Ein af fyrstu minningum Georgíu úr
frumbemsku tengist árstíðaskiptum, er
snjórinn var á burt og grasið farið að
spretta. Hún var borin út í ilmandi vorið
og lögð á heimasaumað bútateppi á gras-
flötinni. Minningin af nýsprottnu grænu og
angandi grasinu, sterku sólarljósi, sem bar
við mjúkt rósótt og litfagurt teppið, fylgdi
henni alla tíð. Einkum fyrir það, að aðdáun
viðstaddra beindist öll að eldri bróður henn-
ar og frumburði foreldranna ásamt öðm
bami. Og þar sem Georgia litla skreið um,
fannst henni hún vera sárlega afskipt og
prflaði út fyrir teppið, en var skjótlega föng-
uð og borin á það aftur.
sínar eigin leiðir og heimilisfaðirinn var í
burtu frá því árla morguns til kvölds við
hina umfangsmiklu búsýslu.
Allt þetta er rétt að gaumgæfa varðandi
hinn sérstæða stíl, sem Georgía þróaði með
sér snemma á ferli sínum, kristalstæran og
einfaldan, sem vó salt milli kerfísbundins
natúralisma og óhlutstæðs málverks (ab-
straktsjónar).
Lengi hef ég velt því fyrir mér um dag-
ana, hvaðan þessi sláandi einfaldleiki væri
ættaður, sem einkennir list Georgíu
O’Keeffe, óaðfínnanlegt handbragð, birta
og dularfullt yfírbragð. Og nú sé ég ekki
betur, en að svarið fínnist í persónu henn-
ar, ættarmóti, umhverfí og uppeldi. Það er
líkast því, sem margt af því helsta, sem
einkennir íra og Ungveija, sé samankomið
í svipsterku andliti hennar og fagurlega
mótuðu höndum með hollenzka drætti í
bland.
VarlaNokkur
Evrópuáhrif
Georgia O’Keeffe skilur sig að því leyti
frá flestum öðrum frumkvöðlum núlistar í
Ameríku, að menntun hennar var algjörlega
af innlendum toga spunnin, og það er erfitt
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 14. NÓVEMBER 1987 9