Lesbók Morgunblaðsins - 16.01.1988, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 16.01.1988, Blaðsíða 3
I LESBOK MORQUNBLADS I NS Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvstj.: Haraldur Svelnsson. Ritstjórar: Matthias Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aðstoð- arritstjóri: Björn Bjarnason. Ritstjórnarfulltr.: Gísli Sigurðsson. Auglýsingar: Baldvin Jóns- son. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Simi 691100. I Hönnun er lykilorð í iðnaðarsamfélögum nútímans og getur haft- áhrif á það, hvort einhver hlutur eða vara mokselst eða dettur upp fyrir. Öm D. Jónsson forstöðumaður Iðntækni- stofnunar sat fyrir skömmu hönnunarráðstefnu í Amsterdam og segir í fróðlegri grein frá ýmsu því, sem þar bar á góma. Jorn er víðkunnastur danskra myndlistarmanna á þessari öld; einn af Cobra-málurunum svonefndu. Hann málaði að gamni sínu myndir á heilu veggina í sumarbústað vinar síns í Danmörku og nú hafa sérfræðingar unnið að því að flysja myndimar af steinveggjunum með sérstakri tækni og flytja þær á safn í Kaupmannahöfn. Forsíðan Myndin er af málverki eftir Helga Vilberg, myndlistar- mann og skólastjóra Myndlistarskólans á Akureyri. Hann nefnir myndina „Heiðsæi“, hún er máluð með akrýl á léreft og stærðin er 160x120 sm. Myndin var ásamt fleirum á sýningu Helga á Akureyri í nóvember- mánuði síðastliðnum og fékk mjög lofsamlega gagnrýni hjá myndrýni Morgunblaðsins, sem brá sér norður til að sjá hana. Helgi Vilberg hefur þótt mjög vaxandi myndlistarmaður og hefur auk þess unnið gott verk í skólanum. er norrænt nafn og þótt einum um of heiðið, þegar þessi stúlka norðan úr Strandasýslu, tók upp trú og lífshætti Islams. Hún bjó um tfma með manni sínum í Indlandi, en er núna einstæð móðir í Svíþjóð og iðkar þar sína trú áfram. Kristín Bjarnadóttir, okkar maður í Gautaborg, hitti hana að máli. Ásdís Þorsteinn Gíslason Grafskrift Það vantaði sízt aðhann hugsaðihátt, oghann hefði mátt koma að notum. Hann byijaði á ýmsu, en endaðifátt, og allt lá það hálfgert, i brotum. Frá barnæsku varhann meðgleraugu grá, en glerið var efalaust svikið, þvíhvarsemhannráfaði, rakhannsigá, var rauður og blár fyrir vikið. Ogáform hans, þau voru ósmá ogmörg, en ætti’ hann sér vegi að skapa, þá klifraði’ hann ætíð íógengis björg, var alltafað detta og hrapa. Oghvergi ílífinu festu hann fékk, þó flæktist hann víða um álfur; hann rétti þeim hönd sem að haltrandi gekk, en haltraði allramest sjálfur. Hann skildi’ ekki Iánsins og lukkunnar spil og lífsseglið kunni ekkiað vinda, var fugl, sem eiþekkti á fjöðrunum skil, eða fiskur, sem lærði’ ekki að synda. Oggæzka ogmiskunn fórgjafarans blíð um garð hans hið efra og neðra, unz þreyttur á ævi, sem aðeins var stríð, hann álpaðist til sinna feðra. íguðs nafni’ íjörðina grófu hann menn viðgleymsku ogmyrkursins skorður. En lýðurinn hrasar um leiðið hans enn: hann liggur ísuður og norður. Og nú, þá hann Iiðinn er dauðans ídá, hann dreymir und sverðinum grænum um hálsbrotinn val undir hömrunum blá, oghákarl, sem drukknaði’ ísænum. Þorsteinn Gíslason, fæddur 1867 að Stærra- Árskógi í Eyjafirði, d. 1938, var landskunnur sem skáld og menningarfrömuður á fyrstu ára- tugum aldarinnar. Hann hvarf frá námi við Hafnarháskóla þegar hann gat ekki valið sér íslenskar bókmenntir sem kjörsvið til prófs. Helgaöi sig upp frá því ritstörfum, blaöa- og bókaútgáfu, var ritstjóri nokkurra tímarita og blaða, þ. á m. Morgunblaðsins 1920-24. ! Jón Steingrímsson, eldklerkur, lýsir í ævisögu sinni stakri ógestrisni, sem þeir bræður mættu, þegar þeir fóru suður fjöll og fluttu búferlum úr Skagafirði. Sunnlendingar voru á varðbergi gagnvart framandi fólki, enda bláfátækir og þjakaðir af harðindum og drepsóttum. Sú gestrisni, sem einkennt hefur þjóðina, eins lengi og elztu menn muna, var samkvæmt þessu ekki til um miðja 18. öld. Sá finnur það bezt, sem er með öðrum þjóðum eða sinnir erlendum gestum, að gestrisni og rausnarlund er samgróin þjóð- inni. Ég sá um nokkra leiðangra útlendinga í sumar leið. Þeim þótti landið fagurt og frítt, byggingar myndarlegar og þrifnaður til prýði, móttökur rausnarlegar í mat og öll kynning veitt ftjálslega af alúð og af- greiðslufólk í verzlunum greiðvikið og áhugasamt. Þegar ég fann hrifningu fólks- ins, óskaði ég þess með sjálfum mér, að við íslendingar mættum koma eins fram við samlanda okkar, svo sem í bílaumferðinni. Auðvitað er þetta m.a. því að þakka, að þjóðin býr við góð efni og ekki mikla gesta- nauð. Það þykir enn nokkurt átak að ferðast til íslands og dýrt og gestakomur sérhópa ekki tíðar, svo að nokkur tilbreyting þykir og lærdómur að taka á móti þeim. Norðmenn hafa fengið marga gesti langt að komna á allra síðustu árum og þeir eru komnir til að vera. Þetta er sumt lang- hrakið fólk, en aðrir koma í skjóli þess og hafa sæmileg efni og starfsfnenntun. í sum- um skólum í Ósló eru börn af framandi þjóðum í meirihluta í yngri deildum. Mörgum ' er nóg boðið, trúlega ekki sízt þeim Norð- B Gestanauð íNoregi mönnum, sem búa við skarðan hlut og telja eftir það, sem gert er fyrir gestina. Þeir mæta því vaxandi andúð. Við sveitarstjórn- arkosningarnar í haust kepptust stjórn- málaflokkarnir um að setja innflytjendur í örugg sæti, en fjöldi kjósenda svaraði því með því að strika þá út, svo að þeir féllu. I verkamannahverfum í Ósló var óvenju lítil kjörsókn. Virtist Verkamannaflokkurinn hafa misst þannig mörg atkvæði, en flokkur- inn hefur beitt sér fyrir því að greiða götu útlendinga. Allmargir Albanar, flóttamenn frá Júgó- slavíu, eru nú í Ósló. Þykir sumum í Ósló sem verið sé að flytja til Noregs þau vand- ræði, sem oft verða þegar ólíkar þjóðir búa saman, eins og sannist í Júgóslavíu og væri nær, að norsk stjórnvöld ynnu að því við júgóslavnesk stjórnvöld að tryggja hag Albana í heimahéruðum þeirra. Kunningi minn ræddi við Albana, sem þvær gólf á stofnun hans. Albananum var mjög uppsig- að við Belgrad-stjóm, en hann kvaðst gera sér grein fyrir því að ekki væru fleiri gólf í Ósló handa Albönum að þvo. Flóttamenn- imir hafa sem sagt í heild óhag af því, að fleiri komi á eftir. Enginn þeirra leyfir sér þó að setja það fram opinberlega vegna félaga þeirra, sem kunna að vera að vinna að því að fá heimild fyrir landvist venzla- fólks. Fréttamenn í Noregi brýna þjóðina mjög til að gera vel við gestina og fordæma þá, sem leyfa sér að láta í Ijósi, að þeim þyki nóg um komið, og telja það lýsa fyrirlitn- ingu á framandi þjóðum. í fréttum í haust var sagt frá þeirri uppgötvun heilbrigðisyfir- valda, að þeim börnum hefði fjölgað mjög undanfarið, sem ekki væri komið með til mænusóttarbólusetningar. Mest bæri á þessu í borgunum og sérstaklega í vissum hverfum í Osló. Væri hlutfall óbólusettra orðið svo hátt, að hætta væri á farsótt. Almenningur þóttist vita, að þetta ætti við innflytjendahverfin, en enginn fréttamaður kom sér til að spyija yfirvöld um það. Yfir þeim sem það gerði hefði vofað að verða ásakaður um andúð á fólkinu fyrir það eitt að yekja máls á grun og fá hann staðfestan. Ég hef oft komið til Óslóar. Borgarbúar taka ókunnugum fálega, t.d. þeim sem þarf að knýja dyra að kvöldi dags til að spyrja til vegar. Fólk utan af landi hefur sumt fundið fyrir andúð borgarbúa vegna málfars og framkomu og jafnvel orðið fyrir aðkasti fyrir, og þeir sem hafa setzt að í borginni hafa flestir reynt að afmá sérkenni sín til að þóknast borgarbúum. Er ekki nema von, að nú þyki sumum skjóta skökku við, hversu mjög er komið til móts við fólk, sem er meira framandi en norskir þegnar af Mæri og Hálogalandi. Þegar ég kynntist þessum málum í nokk- urra daga viðdvöl í Ósló í haust, fannst mér siðavendni Brands Ibsen komin upp í leið- togum Norðmanna (fréttamönnum og stjómmálamönnum). Og biskupar landsins bættust í hópinn einn daginn með brýningu til þjóðarinnar um að greiða götu innflytj- enda, én minntust ekki á það sem ágreining- urinn er um, hversu langt eigi að ganga í því að opna landið útlendingum. Ekki get ég fundið að því, að fréttamenn og biskupar og forystulið stjómmálaflokká hvetji þjóð sína til að sýna bágstöddum bróð- urþel, en til þess em ýmis ráð. Það ráð sem Norðmenn hafa tekið nú síðustu árin að taka við fjölda flóttamanna, hefur snúizt upp í andhverfu sína. Hugur almennings fylgir ekki máli forystumanna þjóðarinnar, heldur snýst gegn þeim, sem áttu að njóta, svo að þeir hljóta að finna að þeir em óvel- komnir gestir. Því em takmörk sett, hvað fólk á til mikla tillitssemi við framandi fólk, og fram hjá því hefur ekki tekizt að g'anga í Noregi þrátt fyrir dynjandi áróður. Islend- ingar hafa réttilega miðað hjálparstarf sitt að mestu við að hjálpa bágstöddum til sjálfs- hjálpar í umhverfi sem er þeim sem minnst framandi. björn s. stefánsson LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 16. JANÚAR 1988 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.