Lesbók Morgunblaðsins - 16.01.1988, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 16.01.1988, Blaðsíða 7
Af öllum heilagramannasögum hefur ein orðið langsamlega vinsælust sem mynd- efni: Heilagur Georg, þar sem hann drepur drekann. Fjöldi listamanna fyrr á öidum lét eftir sig myndir um þennan atburð. ég ganga að eiga hana því að hún er vænni en vel flestar konur aðrar." Sendimenn jarls sögðu meynni þetta. III Þá kallaði heilög Margareta til guðs og mælti: „Miskunnaðu mér, drottinn, að eigi glat- ist önd mín með ómildum mönnum, heldur láttu mig gieðjast með þér í eilífum fagn- aði. Láttu eigi, drottinn, fyrirfarast fegurð meydóms míns. Nú er ég svo komin sem sauður með vörgum og fengin sem fiskur í neti. Sendu engil þinn að hann gæti andar minnar við öllum svikum fjandans og hann styrki mig að svara þessum hinum ómilda greifa og styrki mig í móti píslum hans.“ En er sendimenn greifans heyrðu það er mærin sagði þá fóru þeir í brott og sögðu Olibrio að þessi mær trúði á Krist hinn kross- festa; „og máttu eigi,“ sögðu þeir, „hana með þér hafa.“ Þá varð hann reiður og bauð að meyna skyldi þangað leiða. Og er hún kom fyrir greifann spurði hann hana hvort hún væri frjáls eða eigi. Heilög Margareta svarar: „Frjáls er ég og kristin." Greifinn mælti: „Hversu heitir þú eða hvert er kyn þitt?" Heilög Margareta svarar: „Ég heiti Marg- areta og er ég ambátt guðs almáttugs. Eg trúi á Jesúm Krist en hann mun vera að eilífu og eigi mun vera endir ríkis hans.“ Greifínn mælti: „Trúir þú á þann er feður vorir krossfestu?" Hún svarar: „Því fyrirfórust feður þínir að þeir krossfestu hann.“ Þá varð greifínn reiður mjög og bauð að hana skyldi leiða í myrkvastofu og ætlaði að fá meydóm hennar með fjölkynngi nokk- urri. IV Annan dag eftir lét greifinn leiða meyna fyrir sig. Og er hún kom þar mælti greifinn: „Miskunna þú æsku þinni og fegurð líkama þíns. Gerðu sem ég vil og göfga goð mín og mun ég þig meira virða en þá menn aðra er með mér eru og mun ég gefa þér nóg auðæfí." Heilög Margareta svarar: „Þegi þú,“ sagði hún, „því að þú mátt eigi snúa hug mínum frá ást við guð minn og honum mun ég þjóna meðan ég lifi; mun ég líkama minn meiða í píslum að öndin megi gleðjast með helgum mönnum í himinríkis dýrð. Og svo sem Kristur lét sér sóma að deyja öllum til hjálpar svo vil ég og deyja honum til dýrð- ar. En auðræði þín veri í eilífri glatan með þér sjálfum.“ Þá bauð Olibrius að hana skyldi.festa upp og berja með vöndum. Heilög Margareta leit þá til himins og mælti: „Allsvaldandi guð, þú ert allt traust mitt. Líttu til mín og miskunna mér, drottinn, og lát mig eigi óttast meinlæti." Og er hún hafði þetta mælt þá börðu þeir hana svo að blóð féll um hana og grétu margir þeir sem sáu meinlæti hennar. ^Þá mælti greifinn: „Trú þú, Margareta, og göfga goð mín.“ Sæl Margareta svaraði: „Eigi mun ég göfga goð þín, dauf og durnb." Þá reiddist greifinn og bauð að hana skyldi upp festa og síðan lét hann slíta hold hennar með járnkrókum. Og svo mjög særðu þeir hana að greifinn mátti eigi á sjá og dró upp skikkjuna fyrir augu sér og mælti: „Hvi viltu eigi hlýða boðorðum mínum?" Hún svaraði: „Ef ég hlýddi boðorðum þínum þá mun önd mín vera í eilífum kvöl- um með þér.“ Síðan bauð hann að hana skyldi enn leiða tibmyrkvastofu. V En er guðs mær kom inn í myrkvastof- una þá signdi hún sig og mælti: „Heyrðu guð allsvaldandi! Bjóð þú að ég sjái óvininn og eigi ég orrustu við hann, en hvað muni ég mega við honum? Dæmdu millum mín og hans! í þér er öll von mín! Þú sért lofaður um allar aldir!" En fóstra Margarete kom til myrkvastof- unnar og færði henni brauð og vatn og heyrði hún bæn hennar. En er hún var í brott farin þá kom úr hyrningu einni myrkvastofunnar ógurlegur dreki. Hann var með ýmsum litum, hár hans var álits sem gull, skegg hans var hart sem þyrnir en tennur hans sem jám og svo stórar sem í villigelti; augu hans voru sem blóðsegar, eldur brann úr augum hans, höggormur lá um háls honum, ódaunan mikið og illt stóð af honum. Og er hann kom á mitt gólf þá örgaðist hann upp og blaðraði tungunni. Ljós gerðist í myrkvastofunni af eldi þeim er fór úr munni hans og nösum. Þá varð Margareta svo hrædd að hún féll til jarðar og eigi minntist hún þá þess er hún hafði fyrr beðið að sjá óvininn. Þá rétti hún hend- ur sínar til himins og mælti: „Heyrðu, guð minn almáttugur, veittu mér að eigi stígi sá hinn ógurlegi dreki yfír mig!“ En þá er hún hafði þetta mælt tók drek- inn hinum efra kjaftinum yfír hvirfil henni en tungunni tók hann undir tæmar og svalg hana síðan. En þá er hún kom gegnt hjart- anu drekans sprakk harn í tvo hluta. En heilög Margareta reis heil upp. Þá sá hún til vinstri handar sér ar.nan djöful. Hann sat og voru hendur hans bundnar við kné honum. Þá mælti heilög Margareta: „Lofa ég nafn þitt, drottinn minn. Nú sé ég fagnað andar minnar, ég sé drekann dauðan liggja en djöfulinn bundinn. Fyrir því geri ég þér þakkir, heilagur guð, og þig lofa ég, ódauð- legur konungur.“ Þá reis sá djöfull upp er setið hafði og mælti við meyna: „Mikið mega bænir þínar. Ég sendi Rufonem, bróður minn, til þess að hann sylgi þig og glataði fegurð þinni en þú vannst hann með krossmarki en nú viltu mig vega fyrir bænir þínar." Þá tók sæl Margareta í hár djöflinum og varp honum á jörðina og sté hinum hægra fæti sínum á háls honum og mælti: „Láttu af, illgjam andi, að freista mín því að ég er Krists ambátt." Þá kom kross með ljósi miklu í myrkva- stofuna. Dúfa sat á krossinum og mælti við Margaretam: „Þín bíða helgir englar við hlið Paradísar." Þá þakkaði hin sæla mær Margareta guði vitran þessa. Síðan mælti hún við fjand- ann: „Hvert er kyn þitt?“ Hann mælti: „Bið ég þig, guðs ambátt, að þú lyftir fæti þínum af hálsi mér svo að ég megi segja þér frá verkum mínum." Hún hóf upp fótinn. „Ég heiti Belzebub og hef ég marga rétt- láta menn tælda. Mörgum hef ég í mót barist og hefur enginn fyrr yfír mig stigið en nú hefur þú útsprengt auga mitt og afl mitt brotið. Mátti ég svíkja föður þinn og móður en nú hefur þú fengið svo mikla miskunn af guði að vér erum allir hræddir við þig. Ég berst í móti réttlátum mönnum nótt með degi, blinda ég augu þeirra og hyggjur, læt ég þá gleyma himneskri speki. Ég kem til manna þá er þeir sofa og vek ég þá upp og læt ég þá reika til ónýtra hluta. En ef þeir geta við séð þá er þeir vaka þá læt ég þá misgera er þeir sofa. En frá þeim segi ég þetta er eigi unna guði eða órækilega signa sig, en ég verð yfirstiginn af þeim öllum er þér eru líkir. Eigi veit ég hvað ég skal til taka er mær ein hefur yfir mig stigið. Mér þætti ekki til koma ef karlmaður hefði þetta gert.“ Þá mælti heilög Margareta: „Hver býður þér að blekkja góða menn eða hvert er kyn þitt?“ Hann svaraði: „Segðu mér kyn þitt!“ Hún svaraði: „Eigi ertu þess maklegur að heyra það, guð veitti mér miskunn." Fjandinn mælti: „Sathanas er konungur vor: Hann var brott rekinn úr himinríki, frá honum er komið kyn djöfla. Eigi aðeins förum vér með jörðu heldur og stundum með vindum í lofti. Nú mun ég eigi segja þér lengra því að ég sé Krist hjá þér. En þó mundi ég fleira segja ef þú létir mig lausan vera eftir andlát þitt, að þá mætti ég beijast í móti réttlátum mönnum. Salom- on konungur byrgði oss djöfla nokkra í einu keri. En eftir andlát hans gjörðum vér svo að kerið sýndist sem gull væri utan. Þá komu heimskir menn úr Babilon og brutu kerið." Heilög Margareta mælti þá: „Þegi þú hinn illi djöfull, far til helvítis og gjör engum manni mein.“ Þá fór hann í brott ýlandi. VI Annan dag bauð greifinn að meyna skyldi leiða fyrir dómstöl hans. Þá komu margir menn að sjá hversu hún væri pínd. Þá mælti greifinn við hana: „Það hæfir þér að göfga goð mín og gera sem ég býð.“ Hún svaraði: „Þér hæfír að göfga Jesúm Krist og vera vin hans.“ Greifinn mælti: „Færið þér hana úr fötum og brennið hana með logbröndum." Þeir gerðu sem hann baúð. Þá bað heilög Margareta til guðs og mælti: „Brenn þú af, drottinn, saurflekka af hjarta mínu.“ Greifinn mælti: „Blótaðu goðum vorum!" Þá bauð greifinn að þangað skyldi færa ker mikið, fullt af vatni, og binda fætur hennar og hendur og kasta henni á kerið. Þeir gerðu sem hann bauð. Þá leit heilög mær til himins og mælti: „Heyrðu bæn mína, drottinn, og leys bönd mín og mun ég færa þér lofs fóm. Komi yfir mig heilög dúfa með helgum anda og blessi vatnið í þínu nafni og græddu mig, drottinn, með miskunn þinni og skírðu mig í þessu vatni í nafni föður og sonar og anda heilags." Þá gerðist landskjálfti mikill og kom dúfa af himni og hafði gulllega kórónu og setti á höfuð sælli Margarete. Þá urðu lausar hendur hennar og fætur og gekk hún úr kerinu og lofaði guð. Þá kom rödd af himni og mælti: „Kom ■ þú, Margareta, í hvíld Krists, kom þú í ríki himna! Sæl ertu, Margareta, því að þú öðlað- ist fegurð meydóms þíns.“ Á þeirri stundu snerust til trúar fjögur þúsundir manna og hvorki talið konur né böm. vn Eftir þetta bauð greifínn.að hina helgu mey Margaretam skyldi höggva; var hún síðan leidd út úr borginni. Þá mælti sá maður er hana skyldi höggva, sá hét Malcus: „Eigi mun ég höggva þig því að ég sé Krist hjá þér með englum sínum." Hún svaraði: „Ef þú sérð Krist hjá mér þá bið ég þig að þú bíðir litla stund meðan ég biðjumst fyrir." Hann svaraði: „Bið þú sem þú vilt.“ Þá kallaði sæl Margareta til guðs og mælti: „Heyrðu bæn mína. Þess bið ég að þvoist syndir þess manns er les píslarsögu mína og hver sem.einn sá er lýsi færir til kirkju minnar, þvoist af syndir þess á þeirri tíð; og hveijir þeir menn sem staddir verða í nokkrum háska eða þrönging og heiti á mig sér til fulltings, leystu þá, drottinn minn. Enn bið ég þig, drottinn minn, sá er minning gerir minnar píslar eða hefur í hendi bók þá sem mín píslarsaga er á, þvo- ist af syndir hans því að vér erum eitt hold og blóð og misgerðum oft. Enn bið ég, drott- inn, sá er ritar píslarsögu mína eða kaupir þá bók, fylltu þá af helgum anda. Og í því húsi er bók sú er inni, verði þar eigi fætt dautt barn né lamað. Fyrirgef þú þeim manni syndir, drottinn, er bók mína hefur að varðveita, ef hann biður þig líknar." Þá gerðist reiðarþruma mikil og kom dúfa úr lofti með krossmarki og var mælt við hina helgu Margaretam svo að allir heyrðu þeir sem hjá voru: „Sæl ertu, Margareta, því að þú leitaðir miskunnar af mér og minntist allra í bænum þínum; sver ég fyrir dýrð engla minna að allt mun þér veitt það sem þú vilt biðja. Og ef syndugur maður kemur til þess staðar, sem þinn heilagur dómur er varðveittur, með iðran synda og lítillæti þá munu honum fyrirgefast syndir og þar mun eigi fjandi inni vera sem píslarsaga þín er, heldur mun þar vera ást og friður. Sæl ertu, Margar- eta, því að ég er með þér og mun ég upp ljúka fyrir þér ríki himna." Þá leit heilög Margareta til þeirra manna er þar voru við og mælti: „Heyrið þér, feður og mæður, bræður og systur! Særi ég yður fyrir nafn eilífs kon- ungs allra veralda, minnist þér mín, nefnið þér nafn mitt og þótt ég sé syndug þá mun ég þó biðja drottin minn Jesus Kristum og hann veiti miskunn eilífa þeim öllum er mig dýrka." Þá reis hún upp og mælti: „Tak þú nú sverð þitt og högg mig!“ Hann svaraði: „Eigi þori ég að höggva þig því að guð mælti við þig.“ Sæl Margareta svaraði: „Eigi muntu vera með mér í Paradisó ef þú gerir eigi þetta." Þá hjó hann höfuð af hinni sælu Margar- ete með mikilli hræðslu. Hann féll þegar til jarðar á hægri hönd henni og bað sér líknar og mælti: „Fyrirgefðu mérþessa synd, drott- inn!“ Þangað komu margir menn daufír og blindir og fengu allir bót meina sinna. Guðs englar fóru með önd sællar Margar- ete til himneskra fagnaða og sungu lof guði. „En ég tók,“ segir Theophilus, „líkama heilagrar meyjar Margarete og gróf ég hana í húsum Scindecie húsfreyju. Ég kom til hennar og sá ég píslir þær sem hún hafði og ritaði ég sögu hennar; gerði ég minning hennar; bið ég yður, kristnir menn, og biðj- ið að hún minnist yðar í sínum bænum við almáttugan guð, þann er lifir og ríkir um allar aldir. Arnen." Höfundurinn er í BA-námi í íslenskum fræðum við Háskóla Islands og á 3. ári í Kennaraháskól- anum. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 16. JANÚAR 1988 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.