Lesbók Morgunblaðsins - 16.01.1988, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 16.01.1988, Blaðsíða 8
Kaldakul í mannlffinu SMÁSAGA Pilturinn í Firði var að strjúka þaðan. Það var slydduhríð, og hann á reiðhjóli, en vindurinn stóð í bakið á honum svo ekki þurfti að hafa mikið fyrir ferðinni. Það var aðeins tekið að birta og klukkan nær fímm að morgni í mars- mánuði. Hann hafði vafið treflinum um höfuð sér, en gleymt að hafa með sér vettl- inga og þegar helköld slyddan skall á höndum hans varð hann loppinn og dofinn. Leðuijakkinn hélt vel vatni þótt snjáður væri, en lærin -voru eins og frosin undir blautum gallabuxunum. Hann beit á jaxlinn og hélt áfram ... Á þennan þátt væri til dæmis hægt að segja frá hluta af þessari ferð piltsins í Firði nóttina sem hann strauk þaðan. En það verður ekki haldið áfram í þeim dúr. Við í Lundavogi vissum hvorki haus né sporð á stráknum fyrr en eftir á og þar af leiðandi varð heldur minna púður í þessu öllu heldur en ef við hefðum frétt þetta jafnóðum og það gerðist og líka var afleitt að langfæstir höfðu séð hann hvort heldur var fyrir eða eftir atburðinn. — Djöfull furðulegt að maður skyldi ekki sjá hann þess tvö skipti, sem hann kom hingað áður en hann strauk, sagði Bjartur í Smiðjunni og það var raunar undarlegt að hann skyldi ekki hafa séð strákinn, því Bjartur var alltaf á ferðinni, en sjaldnast í vélsmiðjunni, þar sem hann átti auðvitað að vera. — Þetta er einhver bölvaður ræfill úr Reykjavík, sagði Þorgeir sveitarstjóri, kall- aður Toggi. Hann sperrti sig allan eins og hani á haug og mjakaði sér betur í skjólið í króknum neðst við bryggjuhúsið. Við stóð- um þar í hnapp og ræddum málið. — Þeir fyrir sunnan eru að köma þessum fjanda af sér og svo eigum við að ala þetta upp og gera að mönnum, bætti hann við með sömu illskunni. — En þetta er bara drengur, aðeins fímmtán ára, hefur lent úti á galpiðunni og er aðallega vorkunn, sagði Bjartur í Smiðj- unni og leit með fyrirlitningu á Togga. Pilturinn, sem hét Amar, hóf feril sinn í óreglunni, þegar hann var ekki nema tólf ára, og næstu þrjú árin færðist hann úr áfenginu út í eiturlyf og bæði stórt og smátt hnupl, eiginlega þjófnaði til að fjármagna vímuefnin. Loks kom að því að honum var ráðstafað til ársdvalar í Firði að frumkvæði móður hans, sem var eldri systir Steindórs bónda þar. Hann var búinn að vera þar í Ijóra mán- uði þegar hann strauk og hafði komið sér heldur vel. Hann var ólatur við vinnu, að vísu fremur linur og átakalítill, en þægileg- ur á heimili, en hann aðlagaðist ekki heimilislífinu þar. Hann þótti bæði dulur og fámáll, hvorki glaður né dapur og hagaði sér á fæstan hátt eins og aðrir unglingar á hans aldri. Hann neitaði alfarið að fara með bömum bóndans í skóla á Lundavogi. Svo kom að því að hann hafði fengið sig fullsaddan á sveitadvölinni og strauk eina óveðursnótt. Auðvitað vakti þetta mikið umtal í staðn- um og það tók okkur umtalsverðan tíma að koma öllum staðreyndum málsins heim og saman. Því var nefnilega þannig háttað að það var ekki fyrr en nokkm eftir að drengurinn strauk frá Firði og lenti í ævintýmm, að við sem áttum heima í Lundavogi, rönkuðum við okkur og gerðum okkur grein fyrir að þessi ólánssami drengur hafði búið í næsta nágrenni við okkur í fjóra mánuði. Það skall yfir okkur eins og meiriháttar áfall. Kven- fólkið varð meira og minna miður sín yfír eftirtektarleysi sínu og körlunum fannst sem þeir hefðu verið gripnir sofandi á verðinum. Hvað hefði ekki getað skeð! Það hafði aðeins örfáum verið kunnugt um tilvist þessa ungmennis og þeir vom enn færri, sem höfðu séð hann. Jóna í Búð mundi eftir því að hafa séð hann skömmu eftir jól með Steindóri og tveimur börnum hans að versla í kaupfélaginu. Hann hafði svosem komið heldur vel fyrir, en var ósköp ræfilslegur í þessum leðutjakka sem var allur útkrotaður, með einhveijum orðum og merkjum. — Ég sveimér tók ekki mikið eftir honum, sagði Jóna, þetta var svosem ekki ósköpin að sjá. Björg í Móti sá Stein- dór svo burðugan sem hann nú er, sagði hún með svip, sem gaf ýmislegt sem ekki varð með orðum tjáð til kynna, fara inn á pósthúsið í þessari sömu ferð og krakkamir höfðu elt hann þangað inn, en þessi strákur kom svo út á undan hinum og var eitthvað að snudda í kringum jeppann þeirra. Það var ósköp að sjá þennan vesaling, í ein- hveijum jakkaræfli, það gat auðvitað alveg eins verið leðuijakki, en hann var allur út- bíaður með einhveiju fjandans mislitu krassi. Ég horfði ekki einu sinni á hann hvað þá meir, sagði Björg. Begga litla, sem var vinnukona hjá Hall- bergi kennara og konunni hans henni Maríu Ijósmóður, vissi vei um þennan pilt. Hún hafði tvívegis séð hann á ferð í plássinu með honum Steindóri í Firði og krökkunum hans. Hann var sonur eldri systur Steindórs og hafði verið komið fyrir hjá honum, helst til ársdvalar. Hversvegna? Hún sagðist ekk- ert vita um það. Hún fékkst aldrei til að segja það, sem hún ekki vildi segja, hún Begga litla, og hún sagði ekkert misjafnt um nokkum mann. Aldrei hallaði hún einu orði á þau Hallberg og Maríu, sem allir biðu og vonuðust eftir því við þóttumst vita vel að líf hennar hjá þeim væri ekki neinn dans á rósum. Nei, þessi dvergvaxna kona sagði iðulega við aðra að margur tali litla stund og iðrist eftir lengi. Og svo hálfhljóp hún í burtu á sínum stuttu hjólbeinóttu fótum. Amar var ekki kunnugur á Lundavogi, hafði aðeins komið þangað tvisvar sinnum. Hann átti þó í engum vandræðum með að fínna stórt og stæðilegt frystihúsið. Þar kom hann sér í slqol í krikanum hjá sláturhúsinu og beið eftir að sjá til mannaferða. Honum var ákaflega kalt, en reyndi að stappa niður fótunum og hlýja sér á dofnum fíngrunum í handarkrikunum undir leðuijakkanum. Vinna hófst klukkan sex. En þennan morgun um sjöleytið skaust Amar úr skjóli sínu í krikanum hjá slátur- húsinu og fór inn í fremri ganginn á frysti- húsinu. Strákurinn var orðinn gegnum kaldur og hrakinn eftir hraglandann, en honum hlýnaði fljótt þama inni í baðhitan- um. Hann vissi svo skelfíng lítið hvað hann ætlaði sér. Þó hafði hann hugsað sér að komast með einhveiju móti áfram áleiðis til Reykjavíkur, en hann vissi vel að það yrði honum erfítt. Þetta var býsna löng leið, varla skemmra en um fimm hundmð kíló- metrar. Þama stóð pilturinn í anddyrinu og om- aði sér við sjóðheitan ofninn. Það voru engar mannaferðir, enda allir komnir, sem höfðu ætlað sér að mæta klukkan sex. Það voru nokkrir sem ekki komu til vinnu fyrr en klukkan átta. Anna í Holti var ein þeirra sem kom ekki til starfa fyrr en klukkan átta aldrei þessu vant. Og nú var klukkan alveg að verða átta og hún ók að frystihúsinu í nýleg- um bílnum sínum. Að sjálfsögðu læsti hún bílnum, það gerði hún ævinlega, og svo gekk hún hægum og eins virðulegum skref- um og hvassviðrið frekast leyfði að dyrum hússins. Útidyrahurðin skall upp í veðurofs- anum og varð ekki hamin. En þá kom hjálpin. Amar stóð við ofninn í anddyrinu og kom eftir HARALD TEITSSON nú Onnu til hjálpar. Hann opnaði hurðina og hleypti henni inn, þögull og alvarlegur. — Þakka þér fyrir, væni minn, sagði Anna um leið og hún þeyttist undan vindinum inn um gættina og þakkaði sínum sæla fyrir að sleppa ósködduð inn. Indæll piltur þetta, hver skyldi hann annars vera? Ekki kannast ég við hann, hugsaði hún og hélt inn í bún- ingsherbergi kvenna. Þá fékk hún bakþanka um staðsetninguna á bílnum og skyndilega ákvað hún að fara út og færa bílinn í betra skjól, það gat eitthvað fokið á hann þar sem hann var nú og skemmt hann. Og umsvifa- laust snéri hún við og hélt til útidyranna aftur. — Þakka þér fyrir, væni minn, sagði hún við piltinn, sem opnaði fyrir henni og hélt hurðinni, ég ætla að færa bílinn minn í gott skjól, bætti hún við. Hún færði bílinn inn í krikann á sláturhúsinu, rétt undir húsvegginn, og flýtti sér svo inn aftur og enn á ný þakkaði hún piltinum hlýlega fyr- ir hjálpina við hurðina. í búningsherberginu fór hún úr hlýrri og vandaðri úlpunni sinni og í vinnuslopp og síðan gekk hún bein í baki og bar höfuðið hátt niður stigann og inn í vinnusalinn og hóf störf sín við að skera þorsk rétt eins og aðrar konur, sem stóðu þar við borðin og kepptust við, þetta var jú bónusvinna. Pilturinn fór inn fyrir, hallaði sér upp að hurð, sem merkt var eldhúsi. Nú hlaut klukkan að vera orðin átta. Tveir piltar komu inn og héldu viðstöðulaust að stigan- um og niður í vinnslusalinn. Síðan kom hvítklæddur kokkurinn og kona með honum, gæti verið konan hans, nokkru yngri, all- þriflegt par. Kokkurinn opnaði eldhúsið en konan fór inní búningsherbergið. Rétt á eftir kom kokkurinn í gættina og spurði: — Ert þú að byija að vinna héma? Nei, svaraði piíturinn, ég er bara að bíða eftir strák. Kokkurinn sagði ekki meira, en lokaði hurðinni. Þegar kona kokksins var farin út úr búningsherberginu og inn í borð- salinn, beið Amar enn um stund, en engin hreyfíng var á fólki og hann smeygði sér inn í búningsherbergi kvenna. Hann leitaði í nokkmm skápum uns hann fann það sem hann leitaði að: Svört úlpa með hvitum líningum og hann þuklaði á vösunum þar til hann fann bíllyklana, sem hann leitaði að. Þá fór hann út með lyklana hennar Önnu í vasa sínum. Það var hávaðarok, hann hallaði sér í veðrið, og hálfhljóp niður í krikann, þar sem fallegur bíllinn stóð. Hann var fljótur að komast inn í hann og líka fljótur að átta sig á honum, ræsti hann og ók af stað. Hann hafði oft ekið bíl áður, en að vísu oftast stolnum bílum í Reykjavík. En svo oft sem hann hafði stolið bílum hafði hann þó aldr- ei verið handtekinn þessvegna. Hann keyrði þá varlega, skemmdi bílana ekki og skildi við þá á áberandi stöðum, svo þeir fundust alltaf fljótlega og það var aldrei auglýst eftir þeim. Og nú ók hann sem leið lá út úr þorpinu. Þótt Ari Jóa væri lögreglumaðurinn okk- ar var það ekki hans aðalstarf. Hann var verkstjóri og tækjamaður hjá hreppnum okkar og eiginlega það sem nefnt hefur verið „allt mulig maður". Því var hann að- eins lausamaður í löggæslunni. Hann var nú á ferðinni í bílnum sínum og var staddur rétt á móts við kirkjuna, þegar hann mætti Önnu-bílnum. Honum þótti undarlegt að hún skyldi vera að aka leiðina heim til sín og þrátt fyrir að það væri ísing á rúðum bílsins þá gat hann greint að það var ekki Anna sem ók. Hann sagði okkur, að þá hafi sest að sér einhver óútskýranlegur grunur og hann snéri við á planinu hjá kaupfélaginu og elti hinn bílinn og grunur hans varð að vissu, þegar hann sá að bílnum var ekið út úr plássinu, en ekki leiðina upp í efri byggð- ina. Hann náði bílnum fljótlega, því Amar ók ekki hratt, og þá sá hann strax að það var ekki Anna í Holti, sem sat undir stýri. Hann jók enn hraðann og þegar þeir voru komnir út á þjóðveginn komst hann upp að hliðinni á hinum og ætlaði sér að þröngva honum út til hliðar á veginum svo hann yrði að stansa. En þá var það að pilturinn tók heldur betur við sér. Hann gaf duglega í, sveigði að Ara Jóa-bílnum, rakst nokkuð harkalega utan í hann á fremri hurðinni og hélt síðan áfram á fullri ferð. — Nú, leit þetta nokkuð alvarlega út, sagði Ari Jóa okkur niður við bryggjuhúsið daginn eftir, þegar við^ vorum að ræða við- burði gærdagsins. — Ég var alveg bensín- Jaus, nálin á mælinum komin á núllið og rauða aðvömnarljósið lbgaði. Það var ekki efnilegt að verða bensínlaus í eltingarleikn- um svo ég snéri við. Það var auðvelt að ná stráknum með því að hringja í Gunnar í Seli. Hann gæti stoppað hann við brúna á Gilsá. Ari Jóa fór inn í plássið, hringdi í Gunnar í Seli og keypti bensín á bílinn. Hann hafði samband við nokkra menn og bað þá aðstoð- ar við eftirförina eða leitina að þessum ókunna ökumanni. En Arnari gekk ekki vel á sinni ferð. Hann þóttist nú viss um að sér yrði veitt eftirför eða setið fyrir honum á veginum og sú hugsun skelfdi hann svo mjög að hann snarstöðvaði bílinn og þaut út úr hon- um yfirkominn af ótta við það sem hann hafði aðhafst að hann gætti þess ekki að taka bílinn úr gír svo hann rann stjómlaus út af veginum, rétt smaug framhjá tveimur stórum steinum, nam staðar á móabarði og þar drapst á honum. Strákurinn hljóp upp í hlíðina fyrir ofan veginn og fór út með fjallinu. Það var undan veðrinu að fara og talsverðan spöl framundan sá hann fjárhús og hlöðu og þangað hélt hann, hlaupandi og trylltur af hræðslu, algjörlega ráðlaus. Þetta hafði allt farið á annan veg en hann ætlaðist til. En nú fóru hjólin heldur betur að snúast! Ari Jóa hélt aftur af stað á eftir stolna bílnum og fann hann fljótlega utan vegar skammt frá þar sem bílunum hafði lent saman. — Þetta var ljótt að sjá svona í fyrstu, sagði Ari Jóa. Hann var ósköp spek- ingslegur og hugsaði sig vel og lengi um í frásögninni. Kaldur marsvindurinn stóð af norðaustan og næddi um okkur þótt við værum í skjóli undir vegg verkunarhússins. En þegar ég gáði betur að, hélt Ari Jóa áfram, þá sá ég að það hefði getað farið verr. Bíllinn hafði greinilega ekkert skemmst við að fara út af veginum, svo ég hugði ekki meira að honum heldur hélt nokk- uð áfram. Strákurinn gat varla hafa farið langt, það hafði ekki liðið nema svo sem hálftími. — Og hvað gerðirðu þá? spurði Gvendur á Bakka. Hann fylgdist æstur með frásögn- inni. Við vissum að nú myndi hann gefa kerlingunni sinni nákvæma skýrslu, þegar heim kæmi. Ari Jóa hafði þá snúið við og ekið upp að Drýli, sem var gamalt dýðibýli rétt aust- an við staðinn þar sem bíllinn hafði farið út af hjá Amari. Þetta voru nálægustu húsin á þessu svæði ef hús skyldi kalla. Fjárhúsin hans Péturs í pakkhúsinu voru talsvert vestar. En honum kom til hugar að ökumaðurinn hefði helst leitað í rústimar til þess að komast þó í eitthvert skjól. Á meðan hann var að leita í kofadraslinu þama óku þrír bílar framhjá, stönsuðu allir stutta stund við Önnu-bílinn, en héldu svo áfram til leitar. Beggi í bræðslunni hafði hlustað þögull á frásögn Áma Bjama, en verið á sífelldu iði og það var augljóst að hann hafði frá einhverju að segja, það brann á honum og nú komst hann að með auðveldu móti því Ari Jóa þurfti að hugsa sig lengi um áður en hann hélt áfram frásögninni. — Og hvað fær maður nú í fundarlaun? Hann beindi spumingunni svo sem ekki til peins sérstaks, en Ari Jóa var nú fljótur til

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.