Lesbók Morgunblaðsins - 16.01.1988, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 16.01.1988, Blaðsíða 13
Ííslenzkum frystihúsum erhafin vélvæddpökkun í neytendaumbúðir fyrir Banda- ríkjamarkað. Uppskrifta bæklingvr fylgir hverri öskju. Selt er undir merki kaupandans, sem hefur hannað umbúðirnar. Borð úr gleri og steini eftir David Hertz, arkitekt í Los Angeles. íslenskur Iistiðnaður / hæsta gæðaflokki, þar sem frábær hönnun og útfærsla helst í hendur: Munir eftir Sigrúnu Ó. Einarsdóttur og Sören Larsen, sem standa að verkstæðinu Gler í Bergvík. málmum og samsetningum ýmiskonar er slíkt að mðnnum óar við. Allt er til og sam- keppnisstaða einstakra framleiðenda ræðst fyrst og fremst af því hve vel þeir þekkja þarfirnar og vita hvar á að nálgast hentu- gustu lausnimar til að uppfylla þær. Við _erum samt ekki á leiðinni á smiðjustigið aftur; það er ekki farið að framleiða á hand- verksgrunni það sem áður var' fjöldafram- leitt. Heldur hefur sú ögun og tækni sem 'fjöldaframleiðslan krefst, náð hærra stigi. Það sem borgar sig að framleiða í stórum seríum verður áfram framleitt með þeim hætti, en það er lítið sem ekkert dýrara að sérsmíða (innan skynsamlegra marka). Nýja handverkið er ákveðin útgáfa af fjöldafram- leiðslu, ekki gamla handiðnin endurvakin. Upplýsingatæknin hefur á sér aðra hlið. Pjölmiðlun og upplýsingamiðlun almennt hefur stóreflst og nú er staðan sú að reynsluheimur okkar mótast líklega jafn mikið af þeim upplýsingum og hughrifum sem við nálgumst í gegnum Qölmiðla og af samneyti okkar við fjölskyldu, vini, kunn- ingja og nánustu samstarfsmenn. Þetta er ný staða sem ekki má vanmeta, eins og komið verður að síðar. I rauninni er aðdáunarvert að við þessar aðstæður skuli vera til fólk sem hefur at- vinnu af því að skipuleggja neysluvenjur tvö til fjögur ár fram í tímann. L. Edelkort er litasérfræðingur og ráðgjafi fyrir fjöl- mörg fyrirtæki í mörgum greinum. Hún vinnur m.a. fyrir tískufyrirtækin, snyrti- </ / vöruiðnaðinn og bílaiðnaðinn. Edelkort flutti fyrirlestur sem hún nefndi Identification and Visualization ofu Trends. Homsteinninn í aðferðafræði Edelkort byggist á þrískiptingu þróunarinnar. Hún líkti þróuriinni við bylgjuhreyfingar sem væru mis umfangsmiklar og tækju mismun- andi tíma. Þannig eru til langar bylgjur sem ná yfir áratug eða þaðan af lengur. Hér er hún eiginlega að fjalla um tíðarandann og tók hún dæmi af áherslunni á aukinn frítíma, heilbrigðara mataræði og tækniþróun. Allir þessir þættir ná til margra ára, jafnvel ára- tuga. Þannig er ljóst að fólk heldur áfram að leggja áherslu á heilbrigði, vinnutíminn stjrttist (allsstaðar nema á íslandi!) og áhrifa upplýsingatækninnar gætir æ meir. Millibylgjur ná til tímabundinna áherslna, sem þó ná til nokkurra ára. Hún taldi vera starfsvettvang sinn að sjá nokkur ár fram í tímann og tók dæmi af litanotkun. Undan- farin ár hafa verið ríkjandi svartur og dökkir litir annars vegar og hins vegar litríki. Nú virðast hvitir litir og fínlegri og dempaðri litir vera búnir að ná yfirhönd- inni. Astæðuna taldi hún ekki einungis vera þörfina fyrir tilbreytingu, heldur tengjast þeirri bjartsýni, eða tiltrú á framtíðina sem hefur vaknað, eftir myrkviði samdráttarins. Að lokum sagði hún að alltaf kæmu til óvæntar uppákomur, þ.e. hinar eiginlegu nýjungar, sem þó væri undantekningalítið innan ramma fyrirnefndra þróunartilhneig- inga. Löngu bylgjurnar ná þá til þess sem við Hugmyndafluginu gefinn laus taumur- inn: StóII úr margskonar efniviði eftir Bandaríkjamanninn Jack Larimore. Það má segja, að þessi gripur sé frem- ur til að horfa á en hægindi tilað sitja í. teljum nánast sjálfgefið. Þær styttri eru til- komnar vegna þeirrar áherslu sem lögð er á breytingar í iðnaðarsamfélaginu og stutt- bylgjurnar verða til fyrir óvænt innsæi, eða óvenjulega samsetningu þróunartilhneig- inga sem „liggja í loftinu". Edelkort blandaði saman hlutlægri grein- ingu, lestri á umhverfínu og hugflæði. Hún studdist við tölulegar upplýsingar og þekk- ingu á þróuninni sem orðið hefur, rétt eins og allir gera: Svo og svo margir kaupa þetta eða hitt, þessir litir hafa verið í tísku o.s.frv. Raunar vinnur hún í byijun nákvæmlega á sama hátt og markaðsmenn gera. Nóg er af upplýsingunum. Síðan vinnur hún úr þeim boðum sem hægt er að lesa úr um- hverfinu. Hvað er vinsælt, um hvað er skrifað í blöðunum, hvaða bíómyndir eru vinsælar og hvernig hagar fólk sér yfírleitt. Hún safnar þessum upplýsingum saman, síðan hefst vinnan við að setja saman og þá tekur hugflæðið við. Eins og áður sagði eru margar stefnur í gangi samtímis; heim- urinn er samsettur úr mörgum heimum sem oft eru ólíkir. Galdurinn er að finna „straum- ana“ og setja þá saman á nýstárlegan hátt, þó þannig að nýjungamar byggi á „hefð“ eða raunverulegum þörfum. Edelkort tók dæmi af því hvernig hún vann: Borgarskæruliðar voru aftur orðnir að fréttaefni og kvikmyndir um einrænu hetjuna með alvæpni höfðuðu til stórs hóps. Þar var fyrstur í flokki Syslvester Stallone og hetja hans Rambó. Á sama tíma tók hún eftir því að rómantíkin var aftur í uppsigl- ingu, blúndur og kvenleiki eða eins og hún sagði: „Að vera rikur hvort sem maður hef- ur efni á því eða ekki.“ Það sem meira var hetjudýrkuninni og rómantíkinni fylgdi ákveðið öiyggisleysi sem m.a. kom fram f því að gælubangsar voru vinsælir. Þegar síðan myndin Out of Africa sló aðsóknar- met sá hún sameiningarflöt á þessum hugrenningum sínum. Með því að leggja áherslu á herfatnað, en þó herfatnað sem fremur tekur mið af veiðimennsku á fjarlæg- um slóðum en manndrápi í Víetnam, þá gat hún sameinað hetjudýrkunina og þær flótta- tilhneigingar sem. einkenna rómantíkina. Hún lagði því til ljósa liti, kakí og kvenleg- an „veiðifatnað" sem grundvöll að tískunni. Þetta gerði hún fyrir tveimur árum og í vor og sumar voru þetta einkenni ráðandi tísku. Það sem skipti máli hér er að hún las sig inn í tíðarandann og skapaði eitthvað sem var í senn til staðar, en um leið nýtt. Líklega er erfitt að fella þær aðferðir sem Edelkort beitir undir skipulega aðferða- fræði, sem hægt væri að kenna í kennslu- bókum, hér er fremur um ákveðinn þankagang að ræða. Hún hefur þjálfað hjá sér næmni til að átta sig á þróunartilhneig- ingum og við slíka iðju er ekki ónýtt að búa í París eins og hún! Svona rétt til mótvægis: Raymond Le Gué, grafískur hönnuður, sem hefur farið út í að hanna hönnunarstöðvar í samvinnu við tæknimenn, flaug öllu hærra en Edel- kort í fyrirlestri sínum Redesigning Humanity.il ann taldi að hlutverk hönnuðar- ins myndi breytast verulega á næstu árum og áratug. Hlutverk hans yrði ekki lengur að hanna hluti, heldur myndi samruni tölvu- tækni og líftækni skapa algerlega nýja IESBÓK MORGUNBLAÐStNS 16. JANÚAR 198g 13

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.