Lesbók Morgunblaðsins - 13.08.1988, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 13.08.1988, Blaðsíða 2
Um hollustu kjötmetis Undanfarin tuttugu ár hefur kjöt verið um- deild fæða. Vegna áróðurs fyrir bættu matar- æði og hvatningar heilbrigðisyfirvalda víða erlendis til að minnka neyslu mettaðrar fitu hefur almenningur verið hvattur til að tak- Fyrri hluti Eftir ÓLAF SIGURÐSSON marka neyslu á rauðu kjöti frekar en hvítu eins og kjúklingakjöti og físki. Hefur verið talið rétt að ráðleggja fólki sem mælst hef- ur með of hátt kólesteról í blóði að minnka kjötneyslu. Einnig hefur kólesterólinnihald kjöts verið talin næg ástæða til að hvetja til þess að minnka neyslu þess. Nú eru famar að heyrast raddir um að ekki sé allt eins og áður var talið í þessum efnum. Ekki er talið eðlilegt að kjöt skorti í fæði fjölda einstaklinga og einnig hafa nýlegar rannsóknir leitt í ljós að grundvöllur gagnrýni á kjötneyslu er mjög veikur ef ekki brostinn að mati sumra. Hér mun verða reynt að kynna lítils- háttar þá gagnrýni sem erlendir vísinda- menn hafa sett fram á áðumefndar kenning- ar um tengsl kjötneyslu og hjarta- og æða- sjúkdóma. Vitnað verður í skrif þeirra og rannsóknir og greint frá tilvikum þar sem telja má að næringarskorts verði vart, við það að forðast matvæli eins og kjöt í þeim tilgangi að forðast neyslu mettaðrar fítu. Greint verður frá nýlegum rannsóknum á nokkrum plöntuolíum sem benda til þess að sumar þeirra séu hættulegri en dýrafítan var áður tálin. Einnig verður greint frá merkum rann- sóknum sem benda til þess að vægi fæðu- tengdra þátta í hjarta- og æðasjúkdómum hefur verið ofmetið, og telja sumir vísinda- menn að reykingar og háþrýstingur vegi mun þyngra. En fyrst skulum við líta á samsetningu vöðvans og hvað næringargildi hann hefur. Samsetning VÖÐVA Dýravöðvi (kýr eða svín) er um 40—50% af heildarþyngd dýrsins. Sé fítuvefur skor- inn frá inniheldur vöðvinn um 72% vatn, 1—20% fítu, 18% prótein, 1% steinefni og snefíl af kolvetni og vítamínum. í vöðvanum eru prótein úr vöðvavef og einnig bandvef. Þekktust þeirra eru myosin (meginprótein- ið), acto-myosin, myoglobin og títín. Vöðv- inn er ekki einungis mikilvægur fyrir allar hreyfíngar heldur er hann einnig mikilvæg uppspretta fyrir ýmsar nauðsynlegar amínó- sýnir, sem eru byggingareiningar próteina. Lifandi vöðvavefur er nefnilega í stöð- ugri endurmyndun og gegna efnahvatar (ensím) þar mikilvægu hlutverki, en þau eru einnig prótein. Þegar menn og dýr verða fyrir langvarandi fæðuskorti gengur líkam- inn á vöðvavef (einnig fítuvef) til orkumynd- unar og viðhalds. Vöðvinn verður þá megin- uppspretta steinefna og vítamína, sem eru nýtt til að viðhalda mikilvægustu lfkams- starfseminni. í Hverju Er Hollustan Fólgin? í 100 grömmum af mögru lambakjöti fær fullorðinn einstaklingur (23—50 ára karl- maður) um 12% af daglegri orkuþörf en mun meir af ýmsum næringarefnum. Sami einstaklingur fær til dæmis um heiming dagsþarfar af próteinum, um 93% af dagsþörf B-12 vítamíns, um 37% af dags- þörf zinks og um 20% af jámþörf, sjá eftir- farandi töflu 1. Tölur fyrir nauta- og svínakjöt eru ekki ósvipaðar. BætiefniílOOgaf %afráðlögðum möeru lambakiöti: dacrskammti prótein 47 jám 20 zink 37 fosfat 26 magníum 7 þíamin 15. ríbóflavín 20 níasín 42 B-6 vítamín 14 B-12 vítamín 93 Einnig hefur prótein í kjöti mjög hátt nýtnihlutfall sem gerir það að hágæðapró- teini. Prótein úr plönturíki eru talin síðri, en rótarprótein lélegust. Því er það að græn- metisfæði getur verið varasamt m.t.t. pró- teinskorts ef viðkomandi þekkir ekki nægi- lega til þessara hluta. Magur kjötvöðvi er talinn vera mjög næringarríkur sérstaklega þar sem hann gefur mikið af næringarefnum miðað við orkuinnihald. Mótsagnir Um Rautt Kjöt Þar sem rautt kjöt hefur verið talið af hinu slæma, hefur neysla þess farið minnk- andi í Bandaríkjunum. Allskyns misskilning- ur hefur komið fram og náð að „festast", til dæmis um magn og tegund fitunnar í kjöti. Dýrafíta hefur samkvæmt þessu verið flokkuð sem alfarið hörð fíta. Samkvæmt mælingum er þó minna en helmingur fítu í nautakjöti mettuð og um fjórðungur af fítu í kindavöðva er fjölómett- uð plöntufita. Einnig hafa neyslutölur reynst mjög rang- ar. Tölur frá landbúnaðarráðuneyti Banda- ríkjanna 1979 sögðu þarlenda borða 82 kg af rauðu kjöt árlega, jafngildi í heildsölu er 61 kg/ári eftir snyrtingu en þegar neyt- andinn er búinn að skera enn meiri fitu frá er neysla magurs kjöts ekki meir en 29 kg/ári það árið í stað 82 kg og allrar þeirr- ar fítu sem því fylgir. Því hefur verið bent á það að ekki sé hægt að reikna rétt neyslu aimennings á mettaðri fítu nema taka þessa þætti með í reikninginn. KÓLESTERÓLINNIHALD OG Deilur Fræðimanna Kólesterólinnihald kjöts er tiltölulega hátt miðað við ýmsa aðra matvöru eins og mjólk- urvörur eða grænmeti og ávexti sem inni- halda ekkert af því. Eftirfarandi tafla sýnir mun á kólesterólinnihaldi kjöt- og fískmetis. Tegund: Kólesterólinnihald í 100 grömmum: magurt kindakjöt 98 mg magurt nauta- og svínakjöt 91 mg dökkt kjúklingakjöt 90 mg ljóst kjúklingakjöt 64 mg þorskur 85 mg ýsa 60 mg síld 98 mg ein eggjarauða 283 mg nýmjólk, eitt glas 30 mg ávextir og grænmeti 0 mg Af þessu má sjá að afurðir úr dýraríkinu eru kólesterólríkastar. í könnun manneldis- ráðs 1979—1980 eru kjöt, fískur og egg helsta uppspretta kólesteróls. Samkvæmt bandarískum tölum frá 1982 er neyslan þar um 480 mg á dag en 38% þess kemur úr kjöt- og fískmeti. Ef ráðleggja á fólki að forðast þessar fæðutegundir vegna kólesterólinnihaldsins eingöngu er ljóst að ýmis bætiefni geta skort og eru ýmsir hópar viðkvæmari en aðrir hvað það varðar eins og böm, ungling- ar, konur og aldraðir. Einnig hafa fjölmargir vísindamenn og næringafræðingar bent á að tengsl milli kólesteróls í fæðu og í blóði hafa ekki verið sönnuð. Þessi atriði hafa m.a. valdið gagn- rýni á manneldismarkmið, sem eru ætluð almenningi (þar á meðal bömum) og síðan meðhöndlun sjúklinga með of hátt kólester- ól í blóði með því að ráðleggja gegn neyslu kólesterólríkra fæðutegunda. Heimilda er getið í seinni hluta þessarar greinar. Höfundur er matvælafræðingur Magur kjötvöðvi. Hollmeti sem enginn ætti að þurfa að láta á móti sér Fjölbreytni í kjötvinnslu er mikil. Manneldisráð hefur beint þeim tilmælum til matvælaframleiðenda að þeir taki mið af manneldismarkmiðum og minnki fitunotkun

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.