Lesbók Morgunblaðsins - 13.08.1988, Blaðsíða 6
HRAFN JÖKULSSON
Opið bréf til ísaks
Harðarsonar
Auðvitað er enginn
sýningarmaður í bíóinu.
En við snúumst samt.
Snúumst samt.
Snúumst samt.
kastalavist y
vandlega afmarkaður heimur gerður
úr táknum vatnsglasi og dálítilli golu
tipla hljóðlega inn raska ekki
grafarþögninni meistaramir gömlu
líta strangir upp úr rykugum ströngum
finn hvemig súrefnið þverr æpi
heimur gerður úr táknum og nú er
einhver að kyrkja
ljóð*786(b)
ortu með mér um andleysið!
veðrabrigðin í hvirfilbylnum miðjum
og sviplaust andlit dalalæðunnar
hlustum ekki lengur á úrtölur spekinganna gömlu:
þeir vissu sínu viti segja menn
og sjá hvert þeir hafa skilað okkur
nei! hlustum ekki lengur á veður orð og hendur
höggvum þær heldur af ef með þarf
sóum ekki tímanum á málþingi trúðanna:
sem leggja endalausa Ijóðvegi um landið sitt litla
og flýja í draum-morðaheim sjálfgæskunnar
ortu með mér um andleysið!
því nú er veður til að yrkja um
að nú sé ekki veður til að yrkja um
nokkum skapaðan hlut
Hrafn Jökulsson er blaöamaöur í Reykjavík.
Ljóðin eru úr bók sem er væntanleg á næst-
■ unni.
Nína Gautadóttír við eitt verka sinna & sýningunni Morgunbiaííð/Börkur Amarson
Nína með sýningu í
Gallerí Svart á hvítu
Nína var við nám í helsta listaskóla Parísar á
árunum 1971-1976 og lauk þaðan burtfarar-
prófi í málaralist. Næstu árin sneri hún sér
að framhaldsnámi við sama skóla í högg-
myndalist og listvefnaði. Hún fékk styrki til
Nína Gautadóttir hefur
verið með sýningu á
nýjum verkum sínum í
Gallerí Svart á hvítu og
lýkur henni nú um
helgina.
námsins frá virtum aðilum, innan og ulan
Frakklands.
Nína Gautadóttir hefur tekið þátt í fjölda
mörgum samsýningum auk einkasýninga.
Húii hefur unnið til verðlauna og viðurkenn-
inga á alþjóðasýningum, nú síðast í Aþenu
í vor.
Hérlendis hefur hún aðeins sýnt verk sín
þrisvar áður. Fyrst 1980 í boði Kjarvals-
staða þar sem hún sýrtdi eingöngu vefliasta-
verk, í Listmunahúsinu þremur árum síðar
þar sem hún sýndi leðurverk og 1986 sýndi
hún svo málverk á Kjarvalsstöðum.
Nfna var búsett með fjölskyldu sinni í
Níger í Afríku 1981-1983 og síðar hélt hún
á ný til Afríku og bjó í Kamerún 1985-1986.
Verkin sem hún sýndi nú í Gallerí Svörtu
á hvítu eru flest unnin í París síðustu tvö
árin.