Lesbók Morgunblaðsins - 13.08.1988, Síða 19

Lesbók Morgunblaðsins - 13.08.1988, Síða 19
er kvatt með trega. Margt sem minnir á baráttu okkar við nátt- úruöflin, en margt er mjög ólíkt, til dæmis er veðráttan miklu stöðugri, með ríkjandi megin- landsloftslag. Finnar sækja hing- að mikið á haustin til að njóta haustlitanna og til að tína ber. En ferðaþjónusta er mest stun- duð hér að vetrarlagi, þó undar- legt sé. En upp úr áramótum er vinsælt að koma hingað á göngu- og svigskíði — einnig er hægt að þjóta eftir snjóbreiðunni bæði á hreindýra- og vélsleðum. Til Lapplands er rúmlega tveggja tíma þotuflug frá Helsinki. Flugferðin með morgunverði og gistingu í bjálkahúsi eina nótt kostar um 13.000 krónur á mann. Hver aukanótt um 1.500 krónur. Ferðimar ém seldar í gegnum Finnair, en ef til vill setja Flug- leiðir eða íslenskar ferðaskrif- stofur upp pakkaferðir þang- að á næstunni. Til dæmis gætu skipulagðar veiðiferðir hingað verið mjög áhugaverðar. En rétt er að vara við Moskitó- flugum, sem geta verið tölu- vert algengar hér í júní og fram í júlí, en í ríkjandi þurr- viðri er minna af þeim. Vænir silungar úr vatninu Lagst að bryggju í skóginum. eldað við hlóðir — grillaðar pylsur framreiddar á tréflísum — drukk- ið úr bollum, tálguðum úr tijábol- um og te og kaffí borið fram í grýtupottum. Á eftir má veiða í vatninu eða ganga eftir skóg- arstígum upp að Ravada-fossi. Hér er auðvelt að gleyma allri streitu og pappírsflóði skrifborðs- ins — sökkva sér ofan í safaríkan gróður, sem lækur og foss hjala við sumaróð. Núna fagnar öll náttúran sumri, en er bundin í ísijötra meira en helming ársins. Hreinleiki náttúrunnar blasir hvarvetna við og minnir á hroll- vekju ógnvekjandi nálægrar and- stæðu, sem hefði getað lagt allt í rúst — Chemobyl-slysið! En frá þessum slóðum er aðeins um tveggja tíma akstur að Mur- mansk og að margnefndum Kóla- skaga, en samskipti lítil sem eng- in. En kannski var það merki um „glasnost", að bandarískur ferða- skrifstofumaður var þama að skipuleggja hópferðir Banda- ríkjamanna um Murmansk til fínnska Lapplands. Lappasafnið við Inari Mjög áhugavert er að skoða Lappasafnið, sem minnir um margt á Árbæjarsafn, en þangað hafa verið flutt gömul hús alls staðar að frá Lapplandi. Lappar hafa þurrkað hey sitt uppi á grindum til að hreindýrin næðu ekki í það; geymt matinn í forða- búrum, reistum á súlum h'kt og Norðmenn. í dómhúsinu em lappneskir dómar ristir í bjálka- veggi. Veiðigildrur minna um margt á pyntingartæki, en nátt- úran er hér hörð og menn og skepnur þurfa að beijast fyrir lífí sínu. Safnið er svo fellt inn í nærliggjandi þjóðgarð, að í göml- um hreindýrakofa hafa hreindýr leitað sér skjóls undan 18 stiga hita dagsins. Flestir ferðamenn hér áveturna Hreindýr í Lapplandi em jafn- mörg og mannfólkið, en árlega er slátrað hér um 150.000 hrein- dýmm. Ennþá hefur ekki þurft að setja kvóta á hreindýrakjöt! Sagt er að Lappar hafí gengið beint inn í flugvélamenninguna af hreindýrasleðunum, en nú er algengara að ríkir Lappabændur elti hjarðimar í þyrlum. Lappland Skálað í léttu finnsku öli fyrir kvöldverð. Eldað við hlóðaeld í skóginum. Leitað að gulli. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 13. ÁGÚST 1988 19

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.