Lesbók Morgunblaðsins - 08.10.1988, Blaðsíða 17

Lesbók Morgunblaðsins - 08.10.1988, Blaðsíða 17
LESBCK M O R G U N B L A Ð 11 S 8.0KTÓBER 1988 L Lystisneklga er siglir um Karabíska hafið. Glæsiheimur Þær sigla nokkrar inn í íslenskar hafnir að sumarlagi — snjó- hvítar og leyndardómsfiillar. Farþegar fara á léttbátum í land og eyða einum degi á íslenskri grund — hverfa að kvöldi inn í fljótandi glæsiheim lystisnekkjanna. Áður var þessi heimur okkur að mestu lokaður, bæði óhóflega dýr og tímafrekur, aðeins mán- aðalangar siglingar fyrir eldra fólk, sem vissi ekki aura sinna tal. En nú eru styttri og ódýrari siglingar i boði — íslenskir ferða- menn farnir að stfga um borð á Miðjarðarhafi, Karabiska hafinu og eflaust víðar. Þess vegna skulum við skyggnast inn í þennan sérstaka heim eins elsta samgöngutækisins, sem hefiir mótast i fljótandi lúxushótel! Að leggja ferðatöskuna til hliðar Við spyrjum þá, sem hverfa hvað eftir annað inn í þennan fljótandi heim með spilavítum; bingóspilum síðdegis; íburðar- miklum máltíðum; dansleikjum og nætursýningum; þilfarsstólum og sundlaugum; fræðslufyrirlestrum og kynningum á næstu viðkomu- stöðum; kokkteilveislum hjá skip- stjóranum — eftir hveiju þeir eru að sækjast og svarið hjá þeim flestum er: „Það þarf aðeins að taka einu sinni upp úr töskunni!" Ekkjumaður segir, að hann sækist eftir félagsskapnum um borð. Og fullorðin kona, sem á 60 slíkar ferðir að baki, segir: „Ég get gengið um borð í hvaða höfn sem er og er alltaf velkomin, en í landi er kona, sem situr ein við barinn — grunsamleg!" Hjón, sem eiga 11 ferðir að baki, telja örygg- ið veigamesta þáttinn: „Oft förum við jafnvei ekki í land — að yfír- gefa skipið er eins og að yfírgefa heimili sitt. En það lærist mikið á því að heimsækja mörg lönd samtímis og við erum alveg hætt að kaupa af farandsölum í höfnum hitabeltisins — þetta dót er allt búið til í Hong Kong og flutt um allan heim!" Fötluð kona segir: „Það er of erfítt fyrir mig að eiga við farang- ur í flughöfnum og rútubflum, en Akkerum varpað og synt í land. með skipi get ég ferðast um allt án erfíðleika." Og það eru margir sem samsinna þessu. Þessar stóru listisnekkjur sigla oftast um logn- kyrr höf suðlægari slóða og öldu- gangur er fátíður. Þau draga því til sín eldra fólk, sem hefur tíma og peninga — margir koma um Allt mætist í miðju skipsins. borð í hjólastólum, með hækjur og önnur hjálpartæki. Einkennist af tímaleysi Og fleiri jákvæð viðhorf heyr- ast, hvað fríið se miklu betra um borð í skipi. „Á skipinu get ég gert hvað sem ég vil og hvenær sem ég vil — fæ nudd — fer á hárgreiðslustofu. í fríi í landi er maður alltaf bundinn af klukkunni — þarft að mæta á flugvelli og mætir síðasta brottfarartíma hér og þar. Ferðalög í landi eru hræði- leg, ferðamönnum er ýtt áfram til að ná í rútuna á réttum tíma og fleira."

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.