Lesbók Morgunblaðsins - 05.11.1988, Síða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 05.11.1988, Síða 13
og samtíma. Það setti að mér óhug; mér þótti ástandið minna óþægilega á stríð, þó morðtólin vantaði, en svo ógeðfellt sem það nú annars er, þá varð ég glaður innst inni yfir að hafa hugsanlega tekist ætlunarverk mitt: Að fjalla um samtímann með tilvísun í hliðstæðu. III Handrit leiksins hafði tekið nokkrum breytingum á æfingatímanum og var gefið út á frumsýningardag, í endanlegri gerð, að ég hélt. Það hafði vaxið og þróast eftir kröfum minnar sýningar, enda lít ég svo á að texti leikrits sé einungis partítúr leiksýn- ingar. Vorið 1985 tók síðan Lilla teatern í Helsinki leikritið til sýninga og leikstjórinn Johann Simberg setti sig í samband við mig til að fá heimild til að gera vissar stytting- ar. Vitaskuld. Handritið hafði alveg farið á mis við þá ítarlegu gagnrýni sem væntanleg- ur ieikstjóri gefur því. Ég hafði sjálfur verið í þeirri háskalegu aðstöðu að vera bæði höfundur og leikstjóri hér heima og skort e.t.v. hlutlægni leikstjórans. Simberg og leikararnir tveir, Mikael Rejström og Rabbe Smedlund, komu með margar tillögur um styttingar sem mér þóttu í flestum tilfellum skynsamlegar. Frumsýningin fór fram 10. apríl og var ég viðstaddur. Sýningin olli mér vonbrigð- um. Þetta fólk hafði unnið sitt verk af þeirri alúð sem það átti til, en Rejström var einfaldlega of ungur til að leika Wilhams. Hann skorti leikreynslu og ef til vill umfram allt, lífsreynslu. Ég vona að hann fái annað tækifæri fljótt. Það er illa gert ungum leik- ara að kasta honum óhörðnuðum fýrir ljón- in. Smedlund kom hins vegar með merkilega túlkun á Pound; túlkun sem opnaði augu mín frekar fyrir möguleikum hlutverksins. Vonbrigði mín með þessa sýningu urðu til þess að ég gaf lítinn gaum þó leikhús erlendis föluðust eftir sýningarrétti á næstu mánuðum. Mér fannst verkinu ekki lokið. Sýningarferðir Egg-leikhússins með leikritið til Dublin, Kaupmannahafnar og Brighton 1986 og 87 urðu mér þess vegna kærkomið tækifæri til að vinna meira við textann og prófa hlutina í sýningum fýrir kröfuharða áhorfendur. Því hafa enn verið gerðar smá- vægilegar breytingar á handriti fyrir sýning- arnar á Akureyri. Nú er ég að nálgast það að koma handritinu í „endanlegt horf“, ef slíkt er mögulegt í sambandi við hvert leik- rit. Hef ég þá ef til vill eitthvað til að senda úr landi, í þetta sinn í hendur bandarísks leikstjóra sem hefur hug á að setja verkið upp vestur þar. Uppfærsla Leikfélags Akur- eyrar er ný fæðing. Höfundur er leikskáld og leiklistarfræðingur. GUÐLAUGUR HÚNFJÖRÐ EINARSSON Hvad veldur . . . Hvað veldur því að vonir okkar bresta, og visna eins og lauf í norðankalda. Og hver er orsök þess að allt hið besta, sem óskum við miá hvergi velli halda. Og hver er valdurinn að kvölum okkar? Já, hvaða tilgang hafa soig og þjáning? Og hver er spákonan sem spilin stokkar? Eg spyr, er þetta mannsins líf og tjáning? En svarið kemur hægt þá hugann stillir, og hreinskilninnar opnast dýpsta leynið. Það ert þú sjálfur sem að veg þinn villir, þín veika trú á sjálfan þig er meinið. Þú sársaukanum gerir skýrust skilin, ef skirrist við að láta hann þig þuga. Þú leggur sjálfur niður spádómsspilin, en spáðu ei með efasemd í huga, Nei, vertu ávallt staðfastur og sterkur, og stór í trúnni á sjálfs þíns kraft og megin. Því andi þinn er máttugur og merkur, ogmegn þess einn, að greiða lífs þíns veginn. Höfundur er ballettdansari og hefur sl. 15 ár búiö og starfaö í Þýzkalandi og Bandaríkjunum HELGA JÓHANNSDÓTTIR Haust / nótt kom haustið litrík fegurð þess vefur sig um fætur þér vindur bærist í greinum skijáf fölnaðra laufa sem falla til jarðar þú stendur á öndinni hlustar í fjarska fótatak komandi vetrar Höfundur er sjúkraliði KRISTJÁN G. ARNGRÍMSSON Myndir Orð penni og pappír festa fleygar setningar Gæta hverfulla augnablika Ljós lokari og linsa greypa flöktandi myndir Varðveita brothætt andartak Höfundur er nemandi í heimspeki i Háskóla (slands. 0mega-3 og hjaftnS ,, Þorskalýsið og hjartað: Áhugaverð efni, sem virðast m.a. geta dregið úr hættu á myndun blóðtappa — segir Dr. Sigmundur Guðbjarnason. “ Morgunblaðið 6. nóvember 1984. ,, Vísindalega sannað að EPAog DHA f itusýrur, sem finnanlegareruí fiskalýsi, draga úr kólesterólmagni í blóði og blóðflögumyndun, stærsta verkefni sem Lýsi hf. vinnur að um þessar mundir. “ Þjóðviljinn 7. .febrúar 1985. Vlðtökur Omega-3 hérlendis sýna að íslendingum er annt um heilsuna 1 Omeqa-3 borskalvsisbvkkniði Rannsóknir vísindamanna um allan heim benda ótvírætt til þess að fjölómettaðar fitusýrur af Omega-3 hópnum (EPA og DHA) stuðli að því að fyrirbyggja kransæðasjúkdóma eða draga úr hættunni á þeim. Omeqa-3 frá Lýsi hf. er eina þykknið sinnar tegundar í heiminum sem unnið er úr hreinu þorskalýsi. Hráefnið er sérvalin þorskalifur. í Omega-3 er mun meira af fjölómettuðum fitusýrum en í venjulegu þorskalýsi. Nú hefur magn A og D vftamfna verið minnkað verulega. Þeir sem teljast til áhættu- hóps geta því tekið fleiri perlur á dag án þess að fara yfir ráðlagðan dagskammt af A og D vítamínum. ARGUS/SÍA LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 5. NÓVEMBER 1988 13

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.