Lesbók Morgunblaðsins - 07.01.1989, Blaðsíða 14

Lesbók Morgunblaðsins - 07.01.1989, Blaðsíða 14
 Nefapaforeldrar með barn. Myndin er tekin í Twycross-dyragarðinum. Teikning af Magellan ungum. Fornapinn Proconsui, sem eitt sinn var talinn forfaðir manna. Málverk í British Museum. Menn hafa á öllum tímum komið sér upp ein- hvers konar kerfi til að flokka það sem í kringum þá er. Það er nefnilega fleira en landslag sem verður lítils virði ef það heitir ekki neitt. Kerfíssmiðir Forn-Grikkja, eink- Hvers vegna ætli ókvæntir karlar séu nefndir piparsveinar? Það er vegna þess að Hansakaupmenn vildu eins og kaþólska kirkjan hafa ókvænta menn í sinni þjónustu og krydd, þar á meðal pipar, var eitt af því sem Hansaskipin fluttu. Eftir ÖRNÓLF THORLACIUS Ahtillaeyjum, talið vera eftir Kolumbus. um Aristóteles, komu reiðu á náttúruna og gáfu ýmsum deildum dýra og plantna nöfn. Gríska kerfið dugði fræðimönnum Gamla heimsins með litlum breytingum út miðald- ir. En með landafundum nýju aldar bárust evrópskum náttúrufræðingum allskyns plöntur og dýr sem hvergi var ráð fyrir gert í flokkun Aristótelesar. Greinilega var hér átaks þörf. SkipanKomiðá Sköpunarverkið Vandann leysti að lokum sænskur grasa- fræðingur og könnuður, Carl von Linné (1707—1778), eða Carolus Linnaeus, eins og hann neftidi sig á latínu. Hann setti fram kerfi til flokkunar á allri náttúrunni í ritinu Systema naturae, Kerfí náttúrunnar, sem út kom árið 1735. Linné skipti lífheiminum í tvö ríki, dýra- ríki og plönturíki. Hvoru ríki skipti hann í æ minni deildir: fylkingar, flokka, ættir, ættkvíslir og loks tegundir. Linné gaf teg- undum dýra og plantna fræðiheiti, sett saman úr tveimur nöfnum. Hið fyrra, ætt- kvíslamafnið, er sameiginlegt öllum teg- undum ættkvíslarinnar, en síðara nafnið, viðurnefiiið, aðgreinir þær. Þótt margt hafi verið endurskoðað í kerfí Linnés standa nafngiftarreglur hans, raunar að viðbættum ýmsum ákvæðum, m.a. til að koma í veg fyrir að sama tegund gangi undir mörgum nöfnum. Ef fleiri nöfti en eitt eru í notkun um sömu tegundina skal það hafa forgang sem elst er, ef fræðiheitið fullnægir ákveðnum skilyrðum um form og ljóst er við hvaða tegund er átt. Heiti sumra tegunda. eiga sér skrýtna sögu. Eitt sinn barst Linné pinkHl frá Nýju- Gíneu með leifum fugls sem þurfti að gefa nafn og fínna stað í kerfinu. Fuglinn hafði orðið fyrir hnjaski á langri leið og voru af báðir fætumir. Fullvíst má telja að sá ágæti náttúrufræðingur hafi farið nærri um að dýrið: hafí í lifanda lífí gengið á tveimur fóturii líkt óg aðrir fuglar. Engu að síður valdi Linné ættkvíslinni heitið Apoda, fóta- leysingi, og til þessa dags er fræðiheiti teg-l undarinnar Apoda paradisea, paradísar- ftigl. I Oðru sinni var Linné að flokka físka af varafískaætt, en einar fímm tegundir þeirra lifa við strendur Svíþjóðar. Einn heitir á sænsku berggylta en á íslensku bergsnapi. Líklega hefur andagift meistarans eða latínuþekking verið á þrotum þegar að því kom að fínna þessum sjávarbúa nafn því hann heitir einfaldlega Labrus berggylta! Mér dettur í hug þegar þeir séra Sæmund- ur og höfðinginn í neðra voru að kveðast á á latínu og Sæmundur lét á móti cornu (hom) ríma „fór nú“ og var svo lærður að hann gat sannað fyrir þeim gamla að það væri gild latína. Proconsul er fræðinafn á fmmmannapa sem uppi var í Afríku fyrir tugmilljónum ára — er raunar núorðið flokkaður undir ættkvíslina Dryopithecus. Um skeið var Proconsul talinn líklegur forfaðir manna og mannapa en frekari rannsóknir hafa þokað honum út á hliðargrein í ættar- tölunni. Einhvers staðar las ég það að vin- sæll mannapi í dýragarði, simpansi að mig minnir, hefði verið kallaður Consul, og hefðu fræðimenn valið forföður hans og sínum heiti eftir honum, „forveri Konsúls". Nafnið höfðar sem sagt ekki til embættis- manna í Rómaveldi. „LucyInTheSky WlTH DlAMONDS" Þar sem Afar heitir í Eþíópíu gróf leiðang- ur fommannfræðinga upp ýmsar leifar fmmmanna á ámnum 1972—77. Meðal annars fannst nærri hálf beinagrind úr konu, og mun vera elsta mannveran sem um er vitað, þriggja til fjögurra milljóna ára. Fræðiheiti tegundarinnar er Australopit- hecus afarensis, en stúlkan gengur meðal lærðra jafnt sem leikra undir nafninu Lucy. Hennar er m.a. getið undir þessu nafni í Encyclopædia Britannica. Fornkonan heitir eftir „Lucy in the Sky with Diamonds". Þetta bítlalag dundi í eyr- um mannfræðingsins Donalds Johansons meðan hann var að fást við beinin í Afar. Bítilfróðir menn herma að upphafsstafir nafnorðanna í textanum — LSD — höfði til fíkniefnis. Annað fíkniefni, hass, kom við sögu þeirr- ar kynslóðar ungmenna sem vildi elskast en ekki heyja stríð — „make love not war“ — og mættu aðrir taka sér það til fyrirmynd- ar. Hassið átti að gera neytendur friðelsk- andi og rólega, hreint ekki uppstökka og áflogagjarna eins og brennivínsberserki. Á elleftu til þrettándu öld fór mikið fyrir islömskum ofsatrúarmönnum sem töldu það trúarlega skyldu að myrða óvini sína og sinntu þeirri skyldu af kostgæfni. Þeir voru kallaðir hashisi sem mun þýða hassneyt- andi. Þetta er þannig skýrt að hryðjuverka- mennirnir hafí í hassvímu kynnst þeirri himnasælu er biði þeirra eftir píslarvættis- dauðann. Sagnir um hasssvall þessara ofstækis- manna, m.a. komnar frá Marco Polo, munu stórlega ýktar, en af „hashisi" er dregið assassin, sem á ýmsum málum þýðir laun- morðingi, svo að ekki hefur ævinlega farið friðarorð af hassinu. Nú skulum við gera smáútúrdúr er snert- ir þýðingu úr ensku á íslensku (og trúlega fleiri mál). Vinsælir kapphlaupahundar, ekki síst á Englandi, eru svo nefndir grey- hounds, sem á íslensku eru oftast nefndir, og með réttu, mjóhundar. Ég hef í þýðingu séð þetta hundakyn kallað „gráhunda", sem ætla mætti að væri kórrétt þýðing. Hins vegar les ég í orðabókum að þama þýði grey einfaldlega grey, það er hundur. Þess- ar skepnur ættu því frekar að kallast grey- hundar en gráhundar. íslensk heiti á erlendum dýrum bera þess sum merki að kvikindin hafí verið landanum lítt kunn. Við köllum það dýr td. úlfalda sem á flestum skyldum málum heitir kaniel eða camel. Fyrir því er hins vegar gömul íslensk málhefð að kalla aðra af tveimur úlfaldateg- undum kameldýr en hina_ drómedara. Þessi hefð er nú að riðlast og íslendingar hyllast til að kalla alla úlfalda kameldýr í samræmi við það sem aðrir gera. Trúi ég að vindlinga- pakkar merktir Camel en með mynd af drómedara hafí átt sinn þátt í þessari þróun. En hvemig er orðið úlfaldi komið inn í málið? Mér skilst að það sé orðið til við misskilning, afbökun úr nafni á annarri skepnu, elefant eða olifant, s_em sé fíl. Hvað þá um orðið fíll? í langflestum tungumálum er heiti þeirrar skepnu sótt í latneska orðið Elephas. Svo var mér sagt — og hef ekki ástæðu til að rengja það — að orðið fíll sé af arabískum uppruna. Skyldu leysingjamir úr tyrkjaráninu hafa flutt það með sér heim úr ánauðinni? Af Réttum Hvölum Ogröngum Framan af gekk hvalveiðimönnum illa að ráða niðurlögum reyðarhvala. Þeir syntu of hratt til að hvalveiðibátar hefðu við þeim, auk þess sem dauðir reyðarhvalir sukku í sjó. Lengi var vænlegast að veiða sléttbak. Hann fór ekki hratt yfír og hræin flutu. Af þessum sökum hlaut sléttbakurinn á mörgum málum nafnið „rétthvalur“ (right whale, rátval), þ.e. sá rétti til að veiða. Þetta breyttist þegar leið á 19. öldina. Hraðskreið gufuskip höfðu við reyðarhvöl- unum og norskur hvalfangari, Svend Föyn, tók í notkun sprengiskutulinn. Fram kom einnig tækni til að halda skrokkunum á floti. Eftir þetta seig brátt á ógæfuhliðina fyrir reyðarhvölunum og verður sú saga ekki rakin hér. En í áhöfn Föyns var maður sem Minke hét (hann stafaði nafn sitt víst reyndar Meinke eða Meincke). Hann var einhveiju sinni uppi í tunnu og hrópaði til félaga sinna að framundan væri vaða af steypireyði. Þegar betur var gáð reyndust þama vera hrefnur á ferð, sem sagt minnstu reyðar- hvalimir í stað þeirra stærstu. Háðung Minkes þótti mikil og sagan barst brátt út 14

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.