Lesbók Morgunblaðsins - 07.01.1989, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 07.01.1989, Blaðsíða 15
fjallanna í Lapplandi og birti áríð 1737 Flora lapponica, Flóru Lapplands. Hér er málverk af honum í þjóðbúningi Sama. meðal hvalveiðimanna sem kenndu hrefnuna við varðbergsmanninn fljótfæra og kölluðu minkhval. Það varð síðan viðtekið heiti á tegundinni á mörgum málum (mink whale, minkval). .....Hafði Þó Svo Hlálegt Heljarstórt Nef í Suðaustur-Asíu lifir nefapi, Nasalis larvatus. Karlapamir hafa, eins og jóla- sveinninn Gáttaþefur, „hlálegt og heljar- stórt nef“. Konumar em minni og hóflegar nefjaðar og apabömin eru uppnefjuð. Heimamenn þar em fremur sléttir í framan miðað við Evrópumenn og kalla nefapann orang blanda, sem mun þýða Hollendingur. Annar api á sömu slóðum heitir á malaj- ísku, og raunar á flestum málum öðmm, orang utan, sem útleggst „skógarmaður". Stundum má á ensku og fleiri málum sjá heitið orang utang, en það þýðir víst „skuldugur maður". En það em fleiri en maiajar sem velta fýrir sér mismuni kynþátta. Víkur nú sögu að jæknisfræðinni. A síðari hluta 19. aldar, þegar þróunar- kenning Darwins var að ryðja sér til rúms, var hinn hvíti Vesturlandabúi talinn standa á efsta þrepi þróunarstigans. Þrepi neðar stóðu slavar og aðrir slakari menn hvítir, þá mongólar, þar niður af aðrir „óæðri“ kynþættir með blámenn í neðsta þrepi, skammt ofan við górillu og simpansa. Væri betur ef nú væri hægt að tala um þessi sjón- armið í þátíð.1 Kynþáttaflokkun Fávita Dr. John Langdon Haydon Down var yfirlæknir á stóm hæli fyrir þroskahefta (Earlswood Asylum for Idiots) í Surrey á Englandi. Árið 1866 birti hann „Athuganir á kynþáttaflokkun fávita", Observations on an ethnic classification of idiots. Þar greindi yfirlæknirinn frá því að sjúklingar hans hefðu tekið á sig mynd og þroskastig miður þróaðra manna — snúið við niður stiga þróunarinnar og hafnað á mismunandi þrepum. Sumir vom mongólalegir, aðrir líktust indíánum, malajum eða negmm. Af þessum flokkum hefur. aðeins einn haldið velli, „mongólítamir". Um eitt af 600 til 1.000 nýfæddra bama hefur i fmmum sínum aukalitning sem tölu- settur er 21. Þau verða flest mjög þroska- heft, með stuttar, breiðar hendur og sér- kennilegt andlit þar sem stundum má greina vísi að húðfellingu er einkennir augu mong- óla. Stundum er líka gulleit slikja á húðinni. Það vom þessir einstaklingar sem Down yfirlæknir gaf fræðiheitið „mongolian idiots", mongólskir fávitar. Forsendur hans hmndu þegar upp komst um „mongólíta" meðal Austurlandabúa af mongólskum stofni — og nýlega hafa þeir einnig fundist meðal simpansa. Breskir og austurlenskir fræðimenn lögðu fyrir nokkm til að litn- ingafrávikið „þrístæða-21“ yrði kennt við doktorinn og kallað Downs-heilkenni (Dow- ns-syndróm). Það heiti er að ryðja sér til rúms. SlGLINGAR OG LANDKÖNNUN Siglingarhraði er mældur í hnútum (sjómílum (1852 m) á klukkustund.) Löngu fyrir daga rafmagnaðra hraðamæla var skriður á skipi áætlaður með því að fleygt var fyrir borð trédmmbi eða dufli með áfastri línu. Á línuna vom hnýttir hnútar með 47 feta bili, eða um 14 m. Sjómaður lét svo linuna renna um greip sína og taldi hnútana sem fóm hjá meðan stundaglas tæmdist. Mörg landfræðiheiti eiga sér að vonum sögu. Hinn 27. nóvember 1520 sigldi Mag- ellan skipum sínum vestur sundið sem nú er við hann kennt og kom að opnu hafí. I sundinu var versta öldurót en við tók lygn sjór. Vegna þess nefndi Magellan hafsvæðið Mar Pacifico, Kyrrahaf, og lét að sögn þau orð falla við þetta tilefni að hann gæfí nafn- ið í þeirri von að útsærinn mætti „ávailt vera jafnkyrr og velviljaður og hann er nú“. Það mun ekki hafa gengið eftir. Þegar menn Kólumbusar vom síðla árs 1492 að kanna eyjamar austur af Mið- Ameríku, rákust þeir á Antillaeyjum á menn sem kaníbar eða karíbar nefndust. Við þá er strandhafíð Karíbahaf síðan kennt. Indí- ánar þessir vom ójafnaðarmenn og tróðu illsakir við granna sína og menn Kólumbus- ar. Það orð fór af þeim — með réttu eða röngu — að þeir ætu stríðsfanga, og af- bökuð mynd af nafni þeirra, kanníbalar, er í mörgum málum notuð um mannætur. Meira af mannætum. Fmmbyggjar Nýja- Sjálands, maoríamir, vom taldir drýgja kost sinn með mannáti. Þegar James Cook kapt- einn tók land á Nýja-Sjálandi árið 1769 réðust maoríar á menn hans í fjörunni, felldu einn þeirra og fóm umsvifalaust að gera að skrokknum. Þama fínnst mér íslenska orðið ferða- mannaiðnaður sé við hæfí, þegar matvara er unnin úr líkömum aðkomumanna. í öðmm tilvikum fer oftast betur að tala um þjón- ustu eða fyrirgreiðslu við ferðamann. Orðið industry á ensku og fleiri málum tekur nefnilega ekki aðeins til framleiðsu eða úr- vinnslu, heldur líka til hvers kyns atvinnu annarrar. Hæsti foss í heimi er talinn vera í Chur- ún-á í Venezuela, 979 m. Fossinn nefnist þar f landi Salto Ángel en Angel Falls á ensku. Fossinn er ekki kenndur við engla guðs heldur við bandarískan flugmann og angurgapa, James Angel, sem nauðlenti skammt frá honum 1937. Hansasamtökin vom öflugt verelunarfé- lag í Norður-Evrópu á 13. til 15. öld, með bækistöðvar í Norður-Þýskalandi. Þau tryggðu sér viðskiptasambönd — og stund- um einokun — með því að heija á sjóræn- ingja, reisa vita, þjálfa skipstjómarmenn og renna á annan hátt stoðum undir öryggi kaupskipa. Þegar annað hrökk ekki til tryggðu Hansamenn sér viðskiptarétt með hervaldi. Seint á 14. öld höfðu þeir t.d. vem- Ieg ítök í stjóm Danmerkur. Einn þáttur í uppgangi Hansasamtak- anna var að þau kröfðust óskoraðrar holl- ustu kaupmanna og bönnuðu þeim — eins og rómverska kirkjan þjónum sfnum — að ganga í hjónaband. Þar sem krydd var gróðavænlegur þáttur í verslun þá á tímum vora Hansakaupmenn stundum kallaðir pip- arsveinar. Síðar festist heitið við aðra karla ókvænta. HEIMILDIK Sagan um Linné og paradfsarfligflinn fótalausa er iiður f Igamanámi dýrafræðinga við alla sænska háskóla. Stephen Jay Gould riQaði upp fávita- flokkun dr. Downs f grein sem upphaflega birtist f NaturaJ Hiatory Magazine og var endurprentuð f New Scientist 86/1205 (12. júnf 1980.) Tengsl formóðurinnar Lucy og krossbera breska heims- veldisins voru Ifka rakin f New Scientist. Um ólán hvalfangarans Minkes las ég f Whales eftir hol- Ienskan dýrafrœðing, E. J. Slfjper. Makýanafiiið á nefapanum er sótt f On the track of unknown animals eftir Bernard Heuveimans, belgfskan dýrafrœðing sem sérhæft hefur sig f að rckja slóð ókunnra dýra. Um naftigift Kyrrahafs og Karíba- hafs má lesa f Magellan eftir Ian Cameron og Kóhtmbus eftir Felipe Fernández-Armesto (Fröm- uðir landfunda; öm og örlygur.) Kennari minn f menntaskóla og sfðar samkennari, Ólafur Hans- son, greindi mér frá hugtakavenslunum milli hass- ista og launmorðingja. Olaflir er einnig heimildar- maður minn um piparsveina Hansasamtakanna. 1 H. H. Goddard, bandarfskur sálfrteðingur, taldi að greind manna færi verulega eftir kynþáttum. Hann lagði snemma á öldinni greindarpróf fýrir innflytjendur sem biðu landvistarleyfis á Elliseyju úti fyrir New York-borg. Flestir komu þessir menn frá Aust- ur- og Suður-Evrópu. Goddard taldi að yfir 80% þeirra væru treggáfaðir („feeble- minded") og lagði til að þeim yrði syqjað um landvist. Höfundur er rektor Menntaskólans (Hamrahlíð Efst: Barocco, sem í raun erfískabúrá hjólum. ímiðju: Tomoe, bíll á beltum og úrlinu, gagnsæu efíii. Neðst: Crícket, fjarskyldur ættingi tunglbílsins, tor- færutröll með hjólin á örmum. Japönsk framtíðarsýn Asíðasta ári var haldin austur í Japan dálítið sérstæð bílasýning und- ir nafninu Framtíðarsýn - Future Watch-. Það sem vakti einna mesta athygli vom þijú farar- tæki frá Toyota, sem hreinlega lflqast ekki neinu, sem nú ber fyrir augu í umferðinni. ímynd Toyota í Japan þykir dálítið „grá“ eins og segir í brezka bflablaðinu Autocar, þar sem getið var um þessa sýningu. Toyota hefur verið vel rekinn auðhringur, sem skilað hefur vænum hagnaði af bílum, sem þykja mjög traustir, lausir við bilanir, en flestir afar ófrumlegir. Nújæja, þeir em orðnir eitthvað leiðir á þessu sjálfir og finnst kominn tími til að sýna meiri dirfsku og hugmyndaflug. Pramtíðarspámönnum hjá Toyota var því gefínn fijáls taumurinn og sagt við þá; Við viljum sjá eitthvað alveg nýtt; eitthvað sem gæti komið til greina að framleiða eftir svo sem 30 ár. Þeim var sagt að taka ekkert tillit til núverandi framleiðsluhátta eða ríkjandi tækni. Þvi villtari draumur, þeim mun betra. Eftir 30 ár - þ.e. árið 2018- verður í miklu ríkari mæli en nú litið á bfla sem listmuni; einskonar skúlptúra á hjólum, sögðu framtíðarspámenn. Eftir margskonar tilraunir á pappímum fór svo að þijár gerð- ir vom smíðaðar fyrir sýninguna. Sú gerð sem sést þó að minnsta kosti að hafi hjól, var nefnd Cricket og virðist náskyld því farartæki, sem hannað var vegna geimferða og nefnt Moon. Bug - tungltík. Þetta er tveggja sæta farartæki með glerhjálmi yfir og stýringu og drif á öllum hjólum, - og eins og sést á myndinni em hjólinávökvaknú- num örmum, sem gera þetta farartæki að hinu mesta torfærutrölli og hækka bflinn eða lækka að vild. Sá í miðið var nefndur Tomoe og hefur vfst einhverskonar beltadrif í stað hjóla. Þetta er bíll þar sem ökumaðurinn slappar af og lætur fara vel um sig, því bfllinn ekur sjálfur og hefur til þess skynjara og merkja- sendingar að komast leiðar sinnar. Yfir- byggingin eða skelin em úr gagnsæu efni, sem einnig er mjúkt, en ekki fylgir sögunni hvað áhrif sú mýkt hefur á ökumann og farþega, ef bfllinn lendir í árekstri. Þriðja farartækið heitir Barocco og er afar sérhæft. Við vitum að Japanir borða gjarnan fisk og fiskkaupmenn þurfa á því að halda að geta boðið fiskinn ferskan. Hér er lausnin: Bíll fiskkaupmannsins, sem situr í kúlunni aftast og þar undir er vélin, en farartækið er mestanpart vatnstankur með lifandi físki, sumsé fiskabúr á hjólum. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 7. JANÚAR 1989 15

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.