Lesbók Morgunblaðsins - 07.01.1989, Page 15
fjallanna í Lapplandi og birti áríð 1737
Flora lapponica, Flóru Lapplands. Hér
er málverk af honum í þjóðbúningi
Sama.
meðal hvalveiðimanna sem kenndu hrefnuna
við varðbergsmanninn fljótfæra og kölluðu
minkhval. Það varð síðan viðtekið heiti á
tegundinni á mörgum málum (mink whale,
minkval).
.....Hafði Þó Svo Hlálegt
Heljarstórt Nef
í Suðaustur-Asíu lifir nefapi, Nasalis
larvatus. Karlapamir hafa, eins og jóla-
sveinninn Gáttaþefur, „hlálegt og heljar-
stórt nef“. Konumar em minni og hóflegar
nefjaðar og apabömin eru uppnefjuð.
Heimamenn þar em fremur sléttir í framan
miðað við Evrópumenn og kalla nefapann
orang blanda, sem mun þýða Hollendingur.
Annar api á sömu slóðum heitir á malaj-
ísku, og raunar á flestum málum öðmm,
orang utan, sem útleggst „skógarmaður".
Stundum má á ensku og fleiri málum sjá
heitið orang utang, en það þýðir víst
„skuldugur maður".
En það em fleiri en maiajar sem velta
fýrir sér mismuni kynþátta. Víkur nú sögu
að jæknisfræðinni.
A síðari hluta 19. aldar, þegar þróunar-
kenning Darwins var að ryðja sér til rúms,
var hinn hvíti Vesturlandabúi talinn standa
á efsta þrepi þróunarstigans. Þrepi neðar
stóðu slavar og aðrir slakari menn hvítir,
þá mongólar, þar niður af aðrir „óæðri“
kynþættir með blámenn í neðsta þrepi,
skammt ofan við górillu og simpansa. Væri
betur ef nú væri hægt að tala um þessi sjón-
armið í þátíð.1
Kynþáttaflokkun Fávita
Dr. John Langdon Haydon Down var
yfirlæknir á stóm hæli fyrir þroskahefta
(Earlswood Asylum for Idiots) í Surrey á
Englandi. Árið 1866 birti hann „Athuganir
á kynþáttaflokkun fávita", Observations
on an ethnic classification of idiots. Þar
greindi yfirlæknirinn frá því að sjúklingar
hans hefðu tekið á sig mynd og þroskastig
miður þróaðra manna — snúið við niður
stiga þróunarinnar og hafnað á mismunandi
þrepum. Sumir vom mongólalegir, aðrir
líktust indíánum, malajum eða negmm.
Af þessum flokkum hefur. aðeins einn
haldið velli, „mongólítamir".
Um eitt af 600 til 1.000 nýfæddra bama
hefur i fmmum sínum aukalitning sem tölu-
settur er 21. Þau verða flest mjög þroska-
heft, með stuttar, breiðar hendur og sér-
kennilegt andlit þar sem stundum má greina
vísi að húðfellingu er einkennir augu mong-
óla. Stundum er líka gulleit slikja á húðinni.
Það vom þessir einstaklingar sem Down
yfirlæknir gaf fræðiheitið „mongolian
idiots", mongólskir fávitar. Forsendur hans
hmndu þegar upp komst um „mongólíta"
meðal Austurlandabúa af mongólskum
stofni — og nýlega hafa þeir einnig fundist
meðal simpansa. Breskir og austurlenskir
fræðimenn lögðu fyrir nokkm til að litn-
ingafrávikið „þrístæða-21“ yrði kennt við
doktorinn og kallað Downs-heilkenni (Dow-
ns-syndróm). Það heiti er að ryðja sér til
rúms.
SlGLINGAR OG LANDKÖNNUN
Siglingarhraði er mældur í hnútum
(sjómílum (1852 m) á klukkustund.) Löngu
fyrir daga rafmagnaðra hraðamæla var
skriður á skipi áætlaður með því að fleygt
var fyrir borð trédmmbi eða dufli með
áfastri línu. Á línuna vom hnýttir hnútar
með 47 feta bili, eða um 14 m. Sjómaður
lét svo linuna renna um greip sína og taldi
hnútana sem fóm hjá meðan stundaglas
tæmdist.
Mörg landfræðiheiti eiga sér að vonum
sögu. Hinn 27. nóvember 1520 sigldi Mag-
ellan skipum sínum vestur sundið sem nú
er við hann kennt og kom að opnu hafí. I
sundinu var versta öldurót en við tók lygn
sjór. Vegna þess nefndi Magellan hafsvæðið
Mar Pacifico, Kyrrahaf, og lét að sögn þau
orð falla við þetta tilefni að hann gæfí nafn-
ið í þeirri von að útsærinn mætti „ávailt
vera jafnkyrr og velviljaður og hann er
nú“. Það mun ekki hafa gengið eftir.
Þegar menn Kólumbusar vom síðla árs
1492 að kanna eyjamar austur af Mið-
Ameríku, rákust þeir á Antillaeyjum á menn
sem kaníbar eða karíbar nefndust. Við þá
er strandhafíð Karíbahaf síðan kennt. Indí-
ánar þessir vom ójafnaðarmenn og tróðu
illsakir við granna sína og menn Kólumbus-
ar. Það orð fór af þeim — með réttu eða
röngu — að þeir ætu stríðsfanga, og af-
bökuð mynd af nafni þeirra, kanníbalar, er
í mörgum málum notuð um mannætur.
Meira af mannætum. Fmmbyggjar Nýja-
Sjálands, maoríamir, vom taldir drýgja kost
sinn með mannáti. Þegar James Cook kapt-
einn tók land á Nýja-Sjálandi árið 1769
réðust maoríar á menn hans í fjörunni,
felldu einn þeirra og fóm umsvifalaust að
gera að skrokknum.
Þama fínnst mér íslenska orðið ferða-
mannaiðnaður sé við hæfí, þegar matvara
er unnin úr líkömum aðkomumanna. í öðmm
tilvikum fer oftast betur að tala um þjón-
ustu eða fyrirgreiðslu við ferðamann. Orðið
industry á ensku og fleiri málum tekur
nefnilega ekki aðeins til framleiðsu eða úr-
vinnslu, heldur líka til hvers kyns atvinnu
annarrar.
Hæsti foss í heimi er talinn vera í Chur-
ún-á í Venezuela, 979 m. Fossinn nefnist
þar f landi Salto Ángel en Angel Falls á
ensku. Fossinn er ekki kenndur við engla
guðs heldur við bandarískan flugmann og
angurgapa, James Angel, sem nauðlenti
skammt frá honum 1937.
Hansasamtökin vom öflugt verelunarfé-
lag í Norður-Evrópu á 13. til 15. öld, með
bækistöðvar í Norður-Þýskalandi. Þau
tryggðu sér viðskiptasambönd — og stund-
um einokun — með því að heija á sjóræn-
ingja, reisa vita, þjálfa skipstjómarmenn og
renna á annan hátt stoðum undir öryggi
kaupskipa. Þegar annað hrökk ekki til
tryggðu Hansamenn sér viðskiptarétt með
hervaldi. Seint á 14. öld höfðu þeir t.d. vem-
Ieg ítök í stjóm Danmerkur.
Einn þáttur í uppgangi Hansasamtak-
anna var að þau kröfðust óskoraðrar holl-
ustu kaupmanna og bönnuðu þeim — eins
og rómverska kirkjan þjónum sfnum — að
ganga í hjónaband. Þar sem krydd var
gróðavænlegur þáttur í verslun þá á tímum
vora Hansakaupmenn stundum kallaðir pip-
arsveinar. Síðar festist heitið við aðra karla
ókvænta.
HEIMILDIK
Sagan um Linné og paradfsarfligflinn fótalausa
er iiður f Igamanámi dýrafræðinga við alla sænska
háskóla. Stephen Jay Gould riQaði upp fávita-
flokkun dr. Downs f grein sem upphaflega birtist
f NaturaJ Hiatory Magazine og var endurprentuð
f New Scientist 86/1205 (12. júnf 1980.) Tengsl
formóðurinnar Lucy og krossbera breska heims-
veldisins voru Ifka rakin f New Scientist. Um ólán
hvalfangarans Minkes las ég f Whales eftir hol-
Ienskan dýrafrœðing, E. J. Slfjper. Makýanafiiið
á nefapanum er sótt f On the track of unknown
animals eftir Bernard Heuveimans, belgfskan
dýrafrœðing sem sérhæft hefur sig f að rckja slóð
ókunnra dýra. Um naftigift Kyrrahafs og Karíba-
hafs má lesa f Magellan eftir Ian Cameron og
Kóhtmbus eftir Felipe Fernández-Armesto (Fröm-
uðir landfunda; öm og örlygur.) Kennari minn
f menntaskóla og sfðar samkennari, Ólafur Hans-
son, greindi mér frá hugtakavenslunum milli hass-
ista og launmorðingja. Olaflir er einnig heimildar-
maður minn um piparsveina Hansasamtakanna.
1 H. H. Goddard, bandarfskur sálfrteðingur,
taldi að greind manna færi verulega eftir
kynþáttum. Hann lagði snemma á öldinni
greindarpróf fýrir innflytjendur sem biðu
landvistarleyfis á Elliseyju úti fyrir New
York-borg. Flestir komu þessir menn frá Aust-
ur- og Suður-Evrópu. Goddard taldi að yfir
80% þeirra væru treggáfaðir („feeble-
minded") og lagði til að þeim yrði syqjað um
landvist.
Höfundur er rektor Menntaskólans (Hamrahlíð
Efst: Barocco, sem í
raun erfískabúrá
hjólum. ímiðju:
Tomoe, bíll á beltum
og úrlinu, gagnsæu
efíii. Neðst: Crícket,
fjarskyldur ættingi
tunglbílsins, tor-
færutröll með hjólin
á örmum.
Japönsk
framtíðarsýn
Asíðasta ári var haldin
austur í Japan dálítið
sérstæð bílasýning und-
ir nafninu Framtíðarsýn
- Future Watch-. Það
sem vakti einna mesta
athygli vom þijú farar-
tæki frá Toyota, sem
hreinlega lflqast ekki neinu, sem nú ber
fyrir augu í umferðinni. ímynd Toyota í
Japan þykir dálítið „grá“ eins og segir í
brezka bflablaðinu Autocar, þar sem getið
var um þessa sýningu. Toyota hefur verið
vel rekinn auðhringur, sem skilað hefur
vænum hagnaði af bílum, sem þykja mjög
traustir, lausir við bilanir, en flestir afar
ófrumlegir.
Nújæja, þeir em orðnir eitthvað leiðir á
þessu sjálfir og finnst kominn tími til að
sýna meiri dirfsku og hugmyndaflug.
Pramtíðarspámönnum hjá Toyota var því
gefínn fijáls taumurinn og sagt við þá; Við
viljum sjá eitthvað alveg nýtt; eitthvað sem
gæti komið til greina að framleiða eftir svo
sem 30 ár. Þeim var sagt að taka ekkert
tillit til núverandi framleiðsluhátta eða
ríkjandi tækni. Þvi villtari draumur, þeim
mun betra. Eftir 30 ár - þ.e. árið 2018-
verður í miklu ríkari mæli en nú litið á bfla
sem listmuni; einskonar skúlptúra á hjólum,
sögðu framtíðarspámenn. Eftir margskonar
tilraunir á pappímum fór svo að þijár gerð-
ir vom smíðaðar fyrir sýninguna. Sú gerð
sem sést þó að minnsta kosti að hafi hjól,
var nefnd Cricket og virðist náskyld því
farartæki, sem hannað var vegna geimferða
og nefnt Moon. Bug - tungltík. Þetta er
tveggja sæta farartæki með glerhjálmi yfir
og stýringu og drif á öllum hjólum, - og
eins og sést á myndinni em hjólinávökvaknú-
num örmum, sem gera þetta farartæki að
hinu mesta torfærutrölli og hækka bflinn
eða lækka að vild.
Sá í miðið var nefndur Tomoe og hefur
vfst einhverskonar beltadrif í stað hjóla.
Þetta er bíll þar sem ökumaðurinn slappar
af og lætur fara vel um sig, því bfllinn ekur
sjálfur og hefur til þess skynjara og merkja-
sendingar að komast leiðar sinnar. Yfir-
byggingin eða skelin em úr gagnsæu efni,
sem einnig er mjúkt, en ekki fylgir sögunni
hvað áhrif sú mýkt hefur á ökumann og
farþega, ef bfllinn lendir í árekstri.
Þriðja farartækið heitir Barocco og er
afar sérhæft. Við vitum að Japanir borða
gjarnan fisk og fiskkaupmenn þurfa á því
að halda að geta boðið fiskinn ferskan. Hér
er lausnin: Bíll fiskkaupmannsins, sem situr
í kúlunni aftast og þar undir er vélin, en
farartækið er mestanpart vatnstankur með
lifandi físki, sumsé fiskabúr á hjólum.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 7. JANÚAR 1989 15