Lesbók Morgunblaðsins - 15.04.1989, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 15.04.1989, Blaðsíða 6
Stígamir eru oft mjóir og erGðir yfír- ferðar. Vatnið sem við gistum hjá við rætur Kafír Kotals í 4000 metra hæð. ISLENZKUR L Æ K N I R AFGAN I STAN Ferðast um fjallaskörð og jarðsprengjubelti nóvember er tímabært að leggja af stað til Pakist- an. Við gætum ef til vill dregið það aðeins lengur, hins vegar er ekki hægt að fá keypt meira hey handa hestunum og því verðum við að leggja af stað. Hestarnir komu fyrir viku frá Pakistan hlaðn- Þriðji og síðasti hluti Höfundurinn fór til Afganistan á vegum franskra læknasamtaka, sem hafa lagt Afgönum lið í baráttu þeirra. í þessum síðasta hluta frásagnarinnar lýsir Jóhanna förinni til baka til Pakistan yfir fjallaskörð, þar sem hún varð að sofa í gjótu í 4000 metra hæð og það var annað en auðvelt að komast með allt sitt hafurtask framhjá vörðunum í landamærastöðvunum. Myndir og texti: JOHANNA LÁRUSDÓTTIR ir bóluefni gegn mislingum og lyfjum fyrir veturinn. Hér eru mislingar sú sótt sem veldur mestum ungbarnadauða. Talið er að hingað til hafi allt að helmingur barna að 12 ára aldri látist út þeim. Nú á að bólusetja í fyrsta sinn. Við ráðum 20 skæruliða til að fylgja okk- ur og erum með jafnmarga hesta. Við erum bara tvö Vesturlandabúamir, ég og Fabien dýralæknir hópsins. Þegar við kveðjum þennan dal og íbúa hans hellist yfir mig tilfínning sem ég þekki svo vel núna: Ein- hverskonar yfírþyrmandi söknuður. Ég sé þetta fólk áreiðanlega aldrei aftur. Lagt er af stað snemma morguns og gengur ferðin yfír skarðið til þorpsins Sum Darara vel. Þangað er dagleið. Þorpsbúar biðja mig að líta á mann sem hafði særst í loftárás riokkurm dögum áður. „Já, en bara hann“, segi ég og fer strax í vamar- stöðu. 1 þessum afskekktu fjallaþorpum vilja nefnilega allir láta líta á sig, ef fréttist af lækni. Þessi maður er fárveikur með sprengjubrot sem hafði farið inn um læri og sennilega inn í hné. Mikill vökvi er í hnénu, lærið tvöfalt af bólgu og hann er greinilega með blóðeitrun. Eg hef það sem til þarf og næsta morgun er líðan hans mun betri. Að launum fæ ég hrísgijón að borða og sér herbergi til að sofa í sem er alger munaður. Annars hefði ég orðið að sofa í Moskunni innan um alla skæmliðana eða úti. LOFTÁRÁSIR ALLT UM KRING Daginn eftir leggjum við af stað um leið og birtir. Þegar við höfum riðið í um það bil klukkustund birtast herflugvélar og gera árásir á þorpið, sem við vorum að yfírgefa. Þetta er önnur árásin á nokkrum dögum. Óþægilegt að geta ekki snúið við og athug- að hvort einhver er slasaður. En ég er bara með lyf og umbúðir fyrir okkur og get ekki leyft mér neinar hóplækningar. Allan daginn eru gerðar loftárásir allt í kringum okkur. Við verðum að gæta þess að hafa gott bil á milli hestanna. Seinni hluta dags liggur leið okkar um sléttan dal. Hér væri gaman að láta hestana spretta úr spori. Við verðum að spara krafta þeirra og getum því lítið leyft okkur af slíkum munaði. Við komum til Jurm rétt fyrir myrkur. Þar hittum við frönsk hjón sem eru nýkom- in tii bæjarins á vegum MSF tii að endur- byggja spítalann. Jurm er nýfallin í hendur skæruliðum og þess vegna er leið okkar til Pakistans mun styttri og auðveldari en ella. Frönsku hjónin eru ekki öfundsverð af verk- efninu sem bíður þeirra. Áður en stjórnar- hermenn fóru lögðu þeir allt í rúst. Spítalinn er aðeins útveggir og þak, rúðulausir gluggar og gólfin þakin drasli. Hér er einkennilegt andrúmsloft eins og allsstaðar þar sem stjómarherinn og Rússar hafa nýlega verið. Fólkið sem flúði snýr aftur. Lítur á alla sem eftir sátu sem stjórn- arsinna og andstæðinga skæruliða. Þetta er auðvitað ekki rétt því margir eru aðeins ópólitískir og kusu að yfírgefa ekki eigur sínar og heimili. Allt skólastarf liggur niðri því allir kennarar fóru þegar skæruliðar tóku völdin. Fyrir stríð var ólæsi og mennt- unarskortur mikill í Afganistan og ekki hefur ástandið batnað. Enginn þeirra 20 skæruliða sem fylgja okkur er læs eða skrif- andi. Næsta morgun sjáum við herþotur gera stórfelldar árásir norðan við Jurm. Um sama leyti og við leggjum af stað kemur sendi- boði til læknanna. Árás var gerð á leiðina sem við fórum daginn áður og eru 40 látn- ir og margir slasaðir. Ég fullvissa hjónin um að það sé ekki erfitt að taka af hendur og fætur eftir uppskriftabókum sem við læknarnir fáum í faramesti. Svo kveðjumst við og höldum sitt í hvora áttina. Þau til fyrstu stríðssköðuöu sjúklinganna sinna, við í átt við Pakistans. „Hvað er ég að gera heim? Þar sem er hvort eð er engin þörf fyrir mig.“ Þessar hugsanir sækja á mig. í þriðja skiptið stend ég frammi fyrir þvi að stórárás er gerð á svæði, sem ég hef nýlega Á leið til Pakistan, nálægt Iskaser.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.