Lesbók Morgunblaðsins - 15.04.1989, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 15.04.1989, Blaðsíða 15
Fréttabréf frá Walt Disney World Ævintýraheimur Disney - fyrir „fullorðin böm“ Allt er svo stórt í Banda- ríkjunum — líka ævintýra- heimur Walt Disney, sem er sífellt að þenja sig út og verða stærri og viðameiri. Tækninýj- ungar fléttast inn í ævintýra- legan hugmyndaheim og ekk- ert lát virðist vera á sköpunar- gleði út frá sakleysislegu teiknimyndunum um Mikka mús og Minnu. Það getur ver- ið býsna þreytandi að ganga um og skoða risavaxinn ævin- týraheim í „Walt Disney World“ — og stundum er eins og búið sé að taka hugarflug ævintýranna frá manni, þegar ævintýraheimurinn er kannski orðinn of sviðsettur — of tilbú- inn. En vissulega er þar margt að sjá. Nýjasta tæknibrellan— Disney-kvikmyndabærinn — verður opnaður við hátíðlega athöfh 1. maí nk. Gestirnir ganga fyrst inn á „Hollywood-breiðstrætið" — sem gefur mynd af gullöld Hollywood og munu mæta furðulegustu persónum! Sérkennileg veitinga- hús við breiðstrætið og verslanir endurspegla Hollywood þriðja og fjórða áratugsins. Eftirlíking af Götumyndataka í „stórborginni“ í ævintýraheimi Disneys, sem státar af eftirlíkingum af þekktustu byggingum í bandarískum stórborgum. ■ ■ | liiil! Mikki mús og Minna veifa til gestanna sney-kvikmyndabæjarins 1. maí. Mótorhjólaferðir, vítt og breitt um heiminn Ef þig langar til að ferðast um heiminn á mótorhjóli, get- ur leiðbeiningaritið „Mot- orcycle Touring: An Intern- ational Directory — 1989-90“ gefið þér góð ráð. Ritið gefur upplýsingar um 145 mótorhjólaferðir með leið- sögumanni, bæði í Bandaríkjun- um og Evrópu. Rætt er um þær tegundir mótorhjóla, sem standa til boða eða hvort þú átt að koma með þitt eigið hjól — dagsetning- ar og verð á ferðunum. Dæmi um mótorhjólaferð er til dæmis tveggja vikna ferð um svissnesku Alpana. Ferðirnar eru bæði stuttar helgarferðir, en geta teygst upp í 43. vikna ferð - frá Miinchen yfir til Afríku. Sam- kvæmt útgefandanum, Dan Kennedy, sem fór í tveggja vikna mótorhjóiaferð yfir Alpana, get- ur valið staðið á milli mjög auð- veldra og þægilegra ferðalaga upp í býsna erfið — með öðrum orðum — ævintýralöngun hvers og eins stjórnar ferðavalinu. „Motorcycle Touring“ er fáan- leg hjá: Whitehorse Press, 154 West Brookline Street, Boston, Mass. 02118. Ritið kostar um 1.200 krónur hingað komið. -oapibnonn'b aohirM) •jpbHrS mu | md?.hsbasd ro9s isd ,“to!I'fdD Á hveiju kvöldi eru flugeldasýningar fyrir framan Hótel Kanada, sem varpa draugalegri birtu á tótem-indíánasúluna. Gestirnir geta skyggnst á bak við kvikmyndatjöldin i Disney- kvikmyndaverinu. hinu fræga kínverska leikhúsi stendur við enda götunnar — um dyr þess er gengið inn í „The Great Movie Ride“ eða ferðalag um svið nokkurra vinsælustu kvikmyndanna, sem gerðar hafa verið. Tölvu- og myndbands- tækni er notuð, þegar gestum er leyft að kíkja á bak við kvik- myndatjöldin, sjá kvikmynda- stjömur við vinnu og kynnast öllum hljóð- og sjóntæknibrellun- um, sem eru á bak við dýrðar- ljóma Hollywood. Ef þú vilt, get- urðu líka fengið að sjá sjálfan þig á tjaldinu, við hlið kvik- myndastjarnanna — hætt við að sá samanburður verði harla kát- broslegur í þínum augum og annarra viðstaddra! Meðal annarra nýjunga í „ævintýraheiminum" eru: „DRAUMAFLUGFERÐ" inn í „Konungsríki töfranna", þar sem gestirnir fljúga í gegnum stormasama flugsöguna með Delta, flugfélagi „Wált Disney World“; VÍKINGABÁTSFERÐ inn um hlið Skandinavíu — inn í nýjan Noreg, „elleftu þjóðina í snjókistu heimsins"; ÆVIN- TYRAVATNIÐ fullt af öldu- gangi, vatnaskíðum, seglbrettum og litríku hitabeltissjávarlífi; ÆVINTÝRAEYJAN, með diskó- tek, rúlluskautahallir, skemmt- ana- og ævintýraklúbba á strandgötunni. Upplýsingar um hið 7.000 gistirúma hótel, fjölskyldu- orlofshúsin og tjaldsvæðið hjá: Walt Disney World Central Reservátions, P.O. Box 10100, Lake Buena Vista. Sími: 32830-1000 eða (407) 824-4531. Pantið ferðina til Frakklands fljótt Þeir sem ætla sér að fara til Parísar I sumar, ættu að panta strax, segir franska ríkisferðaskrifstofan. Ennþá er hægt að fá hótel- herbergi, en hætt er við að gist- ing verði meira og minna bókuð — einkum í júlímánuði, þegar aðalhátíðahöldin í borginni koma heim og saman við leiðtogafund um efnahagsmal 14.-16. júlf Herbergi í stærstu hótelunum eru þegar að verða fullbókuð á þessu tímabili. Greinilega þarf að ákveða Parísarferðina strax, ef einhver hugsar til hreyfings. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 15. APRÍL 1989 15

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.