Lesbók Morgunblaðsins - 15.04.1989, Síða 11
Infíniti bílarnir hafa fengið góðar móttökur í Bandaríkjunum.
! ' “J J| j | | l[ f *"í ‘‘ | j { i
AÐ UNDIRBÚA FJÖLDAFRAMLEIÐSLU BÍLA
Fimmtíu milljarða flárfesting
Þótt
bílamir
séu ekki
stórir
þarf
ýmsu að
kosta til
áður en
fram-
leiðslan
hefst
eins og
til dæmis
var þjá
Ford áð-
ur en ný
Fiesta
leit dags-
ins Jjós.
Ahveiju ári renna úr
verksmiðjum bíla-
framleiðenda nýjar
gerðir bíla sem hafa
verið mismunandi
lengi í hönnun og til-
raunum áður en
fjöldaframleiðslan
hefst. Það er líka langur vegur frá því
að hönnunarstigi er lokið og þar til sjálf
framleiðslan getur hafist og kostar sá
undirbúningur líka stórfé. Þegar Ford
verksmiðjurnar hófu framleiðslu á hinni
nýju gerð Ford Fiesta höfðu átt sér stað
endurbætur í verksmiðjum fyrirtækisins
fyrir sem svarar yfir 50 milljörðum
íslenskra króna.
Að sjálfsögðu þarf ekki í hvert sinn sem
breyting er gerð á bílum að gjörbreyta verk-
smiðjunum, minni háttar skipulagsbreyting-
ar og stillingar á tækjum nægja oft en öðru
hveiju þarf að snúa öllu við og taka upp
nýja starfshætti. Það var gert hjá verksmiðj-
um Ford í Dagenham í Englandi, Köln í
Þýskalandi og Valensía á Spáni áður en
framleiðsla á hinum nýja Ford Fiesta hófst.
Rúmlega 8 milljarðar króna fóru í breyting-
ar í verksmiðjunni í Englandi, 11 í Þýska-
landi og 12 á Spáni. Þama var einkum um
að ræða kostnað við smíði yfirbygginganna,
stönsun þeirra og samsetningu og síðan
kaup á hvers kyns nýjum búnaði til fram-
leiðslunnar. Alls fóru um 40 milljarðar króna
í breytingar á vélbúnaði og 10 milljarðar
að auki í annan undirbúnipg. Meðal breyt-
inga á sjálfri framleiðslulínunni, færiband-
inu, má nefna að dyrnar eru ekki settar á
bílana fyrr en síðast, þær eru málaðar og
fullfrágengnar fyrst. Gefur það starfsmönn-
um betri aðgang að öðrum verkefnum við
bílana og að lokum eru dymar festar á með
vélbúnaði. Þessa aðferð hefur Ford þegar
notað við framleiðslu á Sierra og Scorpio
bílunum.
Um leið og þessar miklu breytingar voru
gerðar fór fram endurskoðun á flestum
þáttum framleiðslunnar. Þannig vom 3.580
suðuhlutar í eldri gerð Fiesta bflsins en með
nýja bílnum tókst að fækka þeim niður í
3.073 eða um 14%. Um leið var sjálfvirkni
við suðuvinnu aukin vemlega og til þess
að svo mætti verða var vélmennum eða
iðnróbótum fjölgað vemlega. Þeir vom áður
73 í öllum þremur verksmiðjunum en em
eftir breytingamar 298.
Þjálfun starfsmanna er líka lykilatriði og
um leið er ráðgert að auka framleiðsluna.
Byijað var mjög hægt, aðeins framleiddir
um 40 bílar á dag í hverri verksmiðju með-
an starfsmenn vom í þjálfun og vélar reynd-
ar en síðan verða framleiddir milli 690 og
1.100 bílar í hverri verksmiðju. Síðar á enn
að auka framleiðsluna úr 2.510 bílum í 2.810
bíla á dag samanlagt.
Litlir og stór-
ir frá Nissan
úxusbílarnir frá Nissan, Infiniti Q45 og M30
sem sagt hefur verið frá hér á bílasíðu, voru
kynntir í Bandaríkjunum nú eftir áramótin og
stendur kynningar- og sýningarherferð yfir
fram eftir árinu. Hafa bílamir einkum verið
sýndir í stærstu borgum landsins og hefur
þeim verið vel tekið. Nissan réði 65 sérstaka
umboðsmenn úr hópi 1200 umsækjenda til
að annast sölu bílanna. en þessum bflum
er ætlað að ná til nýs kaupendahóps fyrir
Nissan, þeirra vandlátu sem vilja stóra bíla
og greiða fyrir það uppsett verð. Þá kynnti
Nissan fyrir nokkm tvær nýjar gerðir smá-
bíla á heimamarkaði. Heita þeir PAO og
S-Cargo en fmmgerð þeirra var fyrst kynnt
fyrir tveimur ámm.
Þessir nýju smábílar frá Nissan verða í
raun ekki fjöldaframleiddir heldur aðeins
eftir pöntun. Framleiddir hafa verið 10 þús-
und bflar á síðustu vikum og lýkur fyrsta
sölutíma PAO nú um miðjan apríl en S-
Cargo verður hægt að fá keyptan í tvö ár.
Með PAP bflnum er Nissan að bjóða eins
konar sumarleyfisbfl eða sérstakan bíl með
stórri sóllúgu, sjálfskiptan eða beinskiptan
og allan mjög einfaldan í sniðum.
PAO frá Niss-
an er eins kon-
ar skemmti-
eða sumarleyf-
issmábíll.
S-Cargo bfllinn er líka nokkuð frábmgð-
inn hefðbundnum sendibíl en hann er sagð-
ur skemmtilegur í akstri og notkun og fjöl-
hæfur. Þegar bílarnir vom fyrst kynntir var
hugmynd forráðamanna verksmiðjunnar að
setja þá á markað til reynslu og í fram-
haldi af góðum móttökum var ákveðið að
framleiða þá í ákveðinn tíma en ekki er
lofað ijöldaframleiðslu til margra ára.
S-Cargo er hugsaður sem fjölhæfur sendibíll.
LESBÓK MÖRGUNBLAÐSINS 15. APRlL 1989 1 1